Skinfaxi - 01.04.1986, Side 19
Köst
Sem fyrr er árangur kastara frekar góður.
Sérlega er árangur spjótkastara góður
með Einar í fararbroddi. Bæði Sigurður
Matthíasson og Unnar Garðarsson
köstuðu yfir 70 m. í sumar og geta
báðir náð langt ef þeir halda sig við
efnið.
Árangur í kringlukasti og kúluvarpi var
svipaður og í fyrra og lítið um stórar
bætingar.
Árangur í sleggjukasti Var hins vegar
frekar lélegur.
Aðalsteinn Bemharðsson UMSE nú KR
Stökk
Líklega er best að segja sem minnst um
þessar greinar.
Einna helst er þó hægt að geta árangurs
í langstökki, þar eru nokkrir ein-
staklingar sem án efa eiga eftir að bæta
sig verulega.
Um hástökkið og þrístökkið gildir hins
vegar reglan um að fæstir bæta sig
eitthvað að ráði án þess að æfa.
Svo enn um stund verðum við líklega
að búa við það ástand að eiga í þeim
greinum (hást.-þríst.) nokkra unga og
efnilega sem síðan ekkert verður úr.
Þó vonar maður alltaf að einn slíkur
taki sig til og fari að hugsa og síðan í
framhaldi af því að æfa.
Tugþraut
Eftir því sem ég kemst næst var
Auðunn sá eini sem lauk einni slíkri á
úrinu. Er vonandi að hann láti engan
bilbug á sér finnast og haldi ótrauður
áfram.
KONUR
Spretthlaup
Svanhildur hafði algera yfirburði í
spretthlaupunum á árinu. Náði hún að
bæta sig verulega í 100 m. 200 m. og
400 m. hlaupum.
Þó aðrar standi nokkuð langt að baki
um þessar mundir eru þó nokkrar sem
munu án efa láta frekar að sér kveða á
næsta ári.
Tel ég að í þessum greinum kunni að
leynast hvað mestur vaxtarbroddur um
þessar mundir.
Millivegalengdir
Hér var Unnur áberandi best. Að öðru
leyti er lítið um athyglisverða hluti
nema ef vera skildi góður árangur þeirra
Ingibjargar og Birgittu í 800 m.
Grindahlaup
Árangur í þessum greinum er fremur
dapur en þó líklega eitthvað á uppleið.
Boðhlaup
Sveit UMSK náði viðunandi árangri í
boðhlaupum, svo og sveit HSK. Önnur
félög stóðu þeim langt að baki.
Köst
Nokkuð þokkalegur árangur náðist í
köstum. En sem fyrr ber mest á íris
Grönfeld sem stefnir ótrauð á 60 m.
markið.
Soffía er best í kúlu og Guðbjörg
Gylfadóttir bætti sig mikið og sækir
stíft á.
Már Hallgrímsson UMFK
Birgitta Guðjónsdóttir HSK
Stökk
Ekki er hægt að segja annað en að mjög
góður árangur hafi náðst í langstökki.
Kom þar aðallega til stórmikil bæting
þeirra Ingibjargar og Birgittu.
Ef heldur sem horfir gætu 6 m. stökk
verið á færi nokkurra þessara stúlkna
strax á næsta ári.
Inga ölfarsdóttir náði bestum árangri í
hástökki. Annars var árangur þar ekki
nógu góður. En eins og annars staðar
nóg af efnum sem þarf að skóla til.
Unnur Stefánsdóttir HSK
7þraut
Enn sem fyrr voru það þær Ingibjörg og
Birgitta sem bestum árangri náðu.
Árangur þeirrar síðamefndu er nokkuð
góður og báðar geta þær meira.
NIÐURLAG
Eins og í upphafi sagði, er mikið um
sömu nöfn og svipaðan árangur frá einu
ári til þess næsta.
Hvað seinni hluta fullyrðingarinnar
varðar er einungis hægt að ráðleggja
íþróttafólkinu að setja sér hærri takmörk
og æfa síðan í samræmi við það.
Er vonandi að þeir sem eru á listanum
er fylgir þessum ráðleggingum, og
einnig þeir sem ekki komust þar á
síðastliðnu ári, verði þar á því næsta.
Skinfaxi 2. tbl. 1986
19