Skinfaxi - 01.04.1986, Blaðsíða 23
"Heilbrigt líf - hagur allra"
fréttatilkynning frá Trímmnefnd ÍSÍ
í tilefni af heilbrigðisári Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar og átaki
heilbrigðisráðuneytisins hér á landi gegn
hreyfingarleysi, hefur trimmnefnd ÍSÍ
ákveðið að ganga fram fyrir skjöldu og
freista þess að sameina starf frjálsra
félagasamtaka um að bjóða öllum lands-
mönnum til hollrar hreyfingar dagana
20. 21. Og 22. júní n.k. undir kjör-
orðunum "Heilbrigt líf - hagur allra"
Föstudagurinn 20. júní verður tilein-
kaður leikfimiiðkun og mun Fimleika-
samband íslands annast allan undir-
búning á því sérsviði.
Laugardagurinn 21. júní verður síðan
dagur sundsins í umsjón Sundsambands
íslands hvað varðar faglegan undir-
búning.
Sunnudagurinn 22. júní verður svo
auðvitað dagur gönguferða, skokks og
útivistar. Allir geta fengið sér hressandi
gönguferð í tilefni dagsins eða tekið þátt
í skokki ákveðna vegalengd eftir getu,
leiðbeinendur munu verða til aðstoðar á
vegum Fijálsíþróttasambands íslands.
Göngudagur fjölskyldunnar sem UMFÍ
hefur gengist fyrir árlega fellur á þennan
dag og ungmennafélögin um land allt
drífa fólk til fjalla.
Þá munu Ferðafélag íslands og Útivist
bjóða upp á fjölbreytt úrval skoðunar-
ferða í nágrenni Reykjavíkur án endur-
gjalds.
Því er beint til allra félaga, klúbba og
samtaka í landinu að þau skipuleggi
þátttöku í einhverri mynd eða í það
minnsta taki undir kjörorð Sameinu-
þjóðanna og hvetji sína félaga til að
vera með í hollri hreyfingu dagana 20.
21. og 22. júní n.k.
Því er einnig beint til allra trimmara í
landinu að þeir bjóði með sér a.m.k.
einum sem væri hreyfingar þörf
einhvem fyrmefiidra daga.
Trimmdagar "86
Holl hreyfing er öllum nauðsynleg, hún
er ekki aðeins lykill að betri heilbrigði
líkamlega heldur jafnframt mjög mikil-
væg fyrir andlegt jafnvægi og vellíðan.
Fjöldi fólks stundar íþróttir í einhverri
mynd og hreyfir sig reglulega, annar
stór hópur hreyfir sig stundum en
tilviljanakennt og köflótt, er sú hreyfing
oft bundin við árstíma en stærsti
hópurinn hreyfir sig alltof lítið og
sjaldan á reglubundinn hátt. Það eru
engin forréttindi að stunda holla
hreyfingu því allir geta fundið sér aðferð
sem hvorki útheimtir mikinn tíma,
kostnað né mikið álag. Besti kosturinn
er t.d. ganga eða sund með miðlungs-
álagi. Kröfur um betri tíma eða röð svo
sem gildir í keppni eiga lítið skylt við
þá hollu hreyfingu sem nægir til að
bæta heilsuna og finna til aukins þreks.
Fólk á miðjum aldri og eldri borgarar
ættu sjálfgefið að tryggja líkama sínum
reglubundna hreyfingu og tengja hana
hollum matarvenjum og heilsusamlegu
lífemi.
Það er engin afsökun að segjast ekki
hafa tíma því ein vika hefur að geyma
336 hálftíma svo það sér hver maður að
þrátt fyrir 30 mínútur til hollrar hreyf-
ingar fjórum sinnum í viku verða samt
334 hálftímar eftir.
Það þýðir heldur ekki að segjast vera of
gamall eða of gömul því þess meiri er
ástæðan til að stunda holla hreyfingu,
seinka öldrun og skapa sér ánægju og
vellíðan.
Sama má segja um þá sem telja sig of
þreytta og stressaða þegar heim kemur
úr vinnunni. Ekkert er betra til að losa
um andlega og sálræna spennu en
einmitt líkamleg útrás að ekki sé talað
um líkamlega endumæringu.
Ef um bakverki er að ræða eða annað
sem hindrað getur þátttöku einstaklings
í t.d. ákveðinni íþróttagrein er um að
gera að leita til lækna og sjúkraþjálfara
og fá leiðbeiningar um æskilegustu
aðferðina til þjálfunar.
Ungmennahreyfingin á íslandi er
Qöldahreyfing sem setur hag lands og
lýðs í öndvegi. Þess vegna er það
verðugt verkefini að starfa myndarlega að
undirbúningi og framkvæmd Þjóðar-
átaks gegn hreyfingarleysi á Jónsmess-
unni undir kjörorðunum "Heilbrigt líf -
haguralka".
Islandi allt
Hermann Níelsson
Frá göngudegi fjölskyldunnar í Bitrufirði 13. júní 1983
Skinfaxi 2. tbl. 1986