Skinfaxi - 01.04.1986, Side 29
Hvað er til ráða? Aukin fræðsla meðal
unglinga er nauðsynleg. Viðhorf til
reykinga þurfa að breytast enn meira en
orðið er. Koma þarf þeim hugmyndum
inn hjá unglingum, einkum stúlkum, að
það er ekki fínt að reykja. Réttur þeirra
sem ekki reykja verður að aukast, nú
þegar hættan af óbeinum reykingum
hefur orðið ljós. Kvennasamtök verða
að vakna og sjá þennan skaðvald í réttu
ljósi, ósið sem veldur konum, bömum
þeirra, fjölskyldum og vinnufélögum
óþægindum, sjúkdómum og mörgum
þeirra dauða um aldur fram, verði ekkert
að gert.
Sveinn Magnússon læknir er sérfræð-
ingur í heimilislækningum og starfar á
Heilsugæslunni í Garðabæ. Hann er í
stjórn Læknafélags íslands og formaður
RÍS 2000
Heitirhann ekki....
í úrslitakeppni spurningakeppni UÍA þar sem kvenn-
félögin kepptu, var ein spurningin þessi "Hvað heitir
ritstjóri Skinfaxa málgagns UMFÍ?" Er spyrjandi var
búinn að spyrja eitt liðið þessarar spurningar og
konurnar urðu mjög hugsi bætti hann við " hann er
mikið glæsimenni" stóð ekki á svarinu "Er það ekki
Pálmi Gíslason" því er við að bæta að Pálmi hafði flutt
gamanmál í hlé og konumar því munað vel eftir honum.
Knattraksleikur
strákar í Umf. Austra á Eskifirði rekja
bolta frá Reyðarfirði til Eskifjarðar
Nú fyrir skömmu efndi knattspymuráð Umf. Austra á Eskifirði til
knattraks frá Reyðarfirði til Eskifjarðar en það er um 15 km. Fór
þetta fram á sumardaginn fyrsta í blíðskapar veðri og tókst með
miklum ágætum. Vom það piltar í 4. fl. sem röktu knöttinn á milli sín
þessa leið og voru ekki nema eina kls. og tuttugu mínútur að því.
Tilgangurinn með þessu var að safna peningum fyrir knattspymuráð,
en bæjarbúum var gefinn kostur á að heita á piltana með ákveðinni
upphæð fyrir hvem km. Tóku bæjarbúar vel í þetta og hétu margir á
piltana. Myndina hér fyrir ofan af piltunum tók Emil Thorarensen
fréttaritari DV á Eskifirði eftir að þeir komu í mark.
Ritnefnd UMFJ þingar
Eftirfarandi vísa varð til er ritnefnd
afmælisblaðs Umf. Jökuldælinga
var á ritnefndarfundi.
Þriggja manna nefndin þingar
þrautir ýmsar vinnur.
Fylgdarliðið, fáráðlingar
flatmagar og spinnur.
Gréta og Kidda
Sundþjálfari
Umf. Afturelding Mosfells-
sveit leitar nú eftir sund-
þjálfara til starfa við sund-
laugina að Varmá í sumar og
fram að Landsmóti UMFÍ á
Húsavík 1986.
Þeir sem áhuga hafa á þessu
tali við Hafstein Pálsson í
símum 91-83200 eða
91-6661247
Skinfaxi 2. tbl. 1986
29