Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1986, Side 33

Skinfaxi - 01.04.1986, Side 33
eins og fullyrt er í fjölmiðlum og af alþingismönnum á hinu háa Alþingi. Óheilindi hinna pólitísku-afla í þjóð- félaginu róa svo undir öllu saman, og koma jafnvel í veg fyrir að hægt sé að ná fram breytingum á kerfinu, bæði rekstri þess, og útlánareglum. —0— Byggðastefna er áhugaverð hugsjón, en hún segir ekki að öll landsvæði í okkar stóra og söjálbýla landi skuli endilega setin búandi fólki á líðandi stund. Fjárhagslegar forsendur einar meiga þó ekki ráða ferðinni, horfa verður til félagslegra aðstæðna einnig, og ekki verður komist hjá því að beina orkunni að hagkvæmustu kostunum fyrst, enda þótt aðrir kynnu að þurfa að bíða um sinn. Framleiðslustjómun t.d. í land- búnaði hlýtur að þurfa að draga mið af landkostum, vegna hinna ýmsu fram- leiðsluþátta, og sömuleiðis nálægðar við helstu markaðssvæðin. Þannig jafnrétti styð ég milli landshluta. —0— "Lífið býr í dölunum" segir gamalt norskt málstæki. Auðvitað verður engum meinað að búa á afskektum stöðum við frumstæðar aðstæður, ef menn kjósa endilega slíka búsetu. En slík ákvörðun á að vera á ábyrgð viðkomandi, bæði fjárhagslega og félagslega, nema hún sé liður í áformaðri og áður samþykktri byggða- stefnu, og búsetuþróun, til þess að koma í veg fyrir eyðingu byggða, sem bíður upp á nýtingu auðlinda og góða landkosti. Samtök áhugamanna um jafnrétti milli landshluta styð ég, þau eiga fullan rétt á sér, sem byggist m.a. á því, að byggðastefna stjómvalda nú er óskýr, tilviljanakennd, og nálgast beint ráðleysi á stundum. Ég er sammála þessum áhugamönnum um að þessar línur þarf að skerpa, enn vara við ofstæki, sem fengið gæti fólk uppá móti félagsskapnum. Trúlega verða sjónarmiðin margvísleg, þegar kemur að því að forgangsraða verkefnum, og beinum stuðningi við einstök byggðarlög. Ofstæki gegn aðal- stjómsýslumiðstöð Iandsins, höfuðborg- inni Reykjavík, er álíka fáránlegt og að vera á móti stjómsýslumiðstöðvum héraðanna, það virkar á mig sem öfund, skammsýni, og héraðarígur. Við skulum í lengstu lög trúa því að við getum byggt upp á einum stað, án þess að rífa niður á öðmm. Þá skulum við allavega að hluta til láta hagsýnis- viðhorf njóta sín varðandi dreyfingu á þjónustu, þannig verður hún mark- vissari og betri. —0— Að sinni læt ég lokið þessum hugleiðingum mínum um jafnrétti o.fl. Ég veit raunar að margir eru mér ósammála, það verður hinsvegar að hafa það, þótt ég nái ekki allsherjar jöfnuði við samborgara mína á þessum sviðum. Ég mun alla tíð styðja sanna jafnaðar- mennsku, en mun áfram verða á móti alhæfingu meðalmennskunnar. Hifsteinn Þorvildsson Til að forðast misskilning skal það tekið fram að greinarhöfundur setur bér fram persónuleg sjónarmið sín, en ekki stefnu blaðsins, né stjómar UMFÍ. Ritstjóri FERÐAFOLK ATHUGIÐ Verslum með allar avörur í nauð synj Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga sími: 97-5240 Skinfaxi 2. tbl. 1986 33

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.