Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1986, Blaðsíða 35

Skinfaxi - 01.04.1986, Blaðsíða 35
Þing U.D.N. Héraðsþing U.D.N. var haldið í Búðardal sunnudaginn 27. apríl s.l. Þetta var fjölmennt þing og starfssamt, mörg mikilvæg mál rædd og margar samþykktir gerðar bæði vegna sumar- starfsins og einnig hugað að undirbún- ingi fyrir Landsmótið á Húsavík sem er á næsta ári. Helstu samþykktir voru: Að halda for- mannafund minnst þrisvar á ári. - Samstaða um og samþykkt var að gera átak í skíðalyftumáli svæðisins. Tekið skal upp skráningargjald í íþróttum. - Samþykkt var að skipa starfsíþrótta- nefnd til að undirbúa starfsíþróttir fyrir Landsmótið. - Samþykkt að gera Lauga að aðalíþróttavettvangi sambandsins og að ná samstöðu við heimamenn um það. Þá voru fjölmargar tillögur um íþróttir, fjármál, reglugerðir, hreinlæti/snyrti- mennsku innan héraðs, lagabreytingar, útgáfustarf o.fl. Ráðinn hefur verið framkvæmdastjóri í sumar Heiðar Gíslason. Forðmaðurinn Sveinn K. Gestsson var endurkjörinn og aðrir í stjóm eru: Bryndís Karlsdóttir varaform. Karl Sigurðsson ritari, Sigrún Halldórsdóttir gjaldkeri og Sigríður Kristjánsdóttir meðstj. Gestir frá U.M.F.Í. voru þeir Pálmi Gíslason form. sem tílkynnti um bikar- gjöf til sundíþróttarinnar innan U.D.N. en vaxandi áhugi er nú fyrir sundi. Þá mættu einnig Þórir Jónsson gjaldk. U.M.F.Í. og Hörður S. Óskarsson starfsmaður U.M.F.Í. Þing USAH Ársþing USAH var haldið 15. feb. s.l. að Húnavöllum. Var mjög góð mætíng á þingið eða 100% og mættu önnur sambönd taka þetta sér til fyrirmyndar. Þingið var mjög starfsamt og gott, mörg mál voru rædd og margar tillögur afgreiddar. Samþykkt var að starfrækja ungmennabúðir í sumar í samvinnu við USVH og HSS og yrðu þær að Reykjum við Hrútafjörð. Þá urðu umræður um fjármál, framkvæmda- stjóra, þjálfara og mótahald. Stefán Hafsteinsson er áfram formaður USAH. Af hálfu UMFÍ sóttu þingið Pálmi Gíslason formaður, Dóra Gunnarsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson stjómarmenn og Guðmundur Gísalson ritstjóri Skinfaxa. Þing UMSE Ársþing UMSE var haldið í Þelamerkur skóla 1. og 2. mars s.l. Daníel Bjöms- son fráfarandi formaður UMSE settí þingið og flutti skýrslu stjómar. Gestir þingsins voru Pálmi Gíslason formaður UMFÍ, Þóroddur Jóhannsson varaform. UMFÍ, Sigurður Magnússon framkv- æmdast. ÍSÍ og nokkrir fulltrúar sveit- astjóma á sambandssvæðinu, sem var sérstaklega boðið á þingið. Forsetar þingsins vom Ari Jósavinsson og Þór- oddur Jóhannsson en ritarar Bjöm Friðþjófsson, Helga Níelsdóttir og Vík- ingur Guðmundsson. öll sambands- félögin sendu fulltrúa á þingið. Miklar umræður urðu á þinginu og margar tillögur voru samþykktar varðandi framtíðarstarf UMSE. Mikill áhugi og ágæt þátttaka fulltrúa í þinghaldinu setti góðan svip á þetta sambandsþing. Eitt félag bættist í UMSE á þinginu. Var það íþróttadeild Hestamannafélags- ins Hrings á Dalvík. Innan UMSE em nú 14 félög. Daníel Bjömsson gaf ekki kost á sér tíl endurkjörs í formannssæti og Bjöm Friðþjófsson ritari baðst undan endur- kjöri. í stjórn voru kosnir: Bjöm Ingimarsson formaður, Pétur Þórarins- son ritari, Helgi Steinsson gjaldkeri, Klængur Stefánsson varaformaður og Valgeir Anton Þórisson meðst. í vara- stjóm vom kosin: Guðrún Lárusdóttir, Stefán Ámason og Kristínn Kristinsson. í lok þingsins bauð Umf. öxndæla til glæsilegs kaffisamsætis. Þar var tilkynnt um kjör íþróttamanns UMSE 1985. Fyrir valinu varð Aðalsteinn Bemharðsson hinn kunni landsliðs- maður í fr. íþróttum. Einnig var Umf. Svarfdæla afíientur "Sjóvábikarinn", en félagið fékk flest stig úr mótum UMSE á s.l. ári, Skíðafélagi Dalvíkur "Félagsmálabikar UMSE" fyrir mikið starf á s.l. ári og Umf. Möðru- vallarsóknar var afhent 20.000 kr. styrkur úr Menningarsjóði UMSE vegna leikstarfsemi 1985. Þ.J. Þing UÍA Þing UÍA það 43. í röðinni var haldið á Egilsstöðum dagana 25. og 26. apríl s.l. Var það mjög vel sótt að þessu sinni eða um 70 fulltrúar frá 21 félagi, og er það óvenju góð mætíng því undanfarin Verið að ræða málin á þingi USÚ Ljósmynd: Skinfaxi/P.G. þing hafa verið frekar illa sótt. Þá var öll umgjörð og aðstaða hin glæsilegasta á þinginu. Þetta þing var frekar óvenjulegt að þvi leiti að það em ekki nema 7 mánuðir frá síðasta þingi, en þá var ákveðið að hafa þingin framvegis á vorin en ekki haustín eins og verið hafði. Miklar og góðar umræður urðu um hin ýmsu mál sambandsins og bar þar einna hæst umræða um samkomuna í Atlavík. Að kvöldi föstudags var úrslitakeppnin í spumingakeppni UÍA og var hún mjög spennandi og skemmtíleg, en að þessu sinni vom það kvennfélögin sem kepptu og sigruðu konumar úr Kvennfélaginu öskju á Jökuldal. Gestir þingsins voru þeir Pálmi Gíslason og Guðmundur Gíslason frá UMFÍ, Sigurður Magnússon frá ÍSÍ og Erlendur Kristjánsson Æskulýðsfulltrúi ríkisins. Adólf Guðmundsson var kosinn formaður UÍA áfram. Ákveðið var að næsta þing UÍA yrði á Fáskrúðsfirði. Þing UMSS Ársþing UMSS var haldið að Héðins- minni í mars s.l. Var þingið sæmilega vel sótt og urðu nokkrar umræður um hin ýmsu mál.sambandsins. Þar á meðal íjármál, íþróttír og margt annað. Af hálfu UMFÍ sóttu þingið Sigurður Geir- dal framkvst. Diðrik Haraldsson stjóm- armaður og Guðmundur Gíslason rit- stjóri Skinfaxa. öm Þórarinsson var kosinn áfram formaður UMSS. Skinfaxi 2. tbl. 1986 35

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.