Skinfaxi - 01.04.1986, Síða 36
Krýsuvíkursamtökin
spjallað við Sr. Birgi Ásgeirsson og Ragnar Lárusson
N ú fyrir skemmstu voru stofnuð samtök er nefnast
Krýsuvíkursamtökin, þessi samtök hafa það að markmiði að koma á
fót meðferðarheimili fyrir ungt fólk á aldrinum 14-20 ára. Hafa
samtökin nú þegar eignast húsnæði en það er hinn marg umræddi
Krýsuvíkurskóli sem hefurstaðið ónotaður fráþvíhann var byggður,
en byrjað var að byggja hann 1967. Skólinn er mjög illa farinn og
þarf mikið að gera við hann áður en hægt er að hefja starfsemi í
honum. Meðferðin sem samtökin ætla að reka miðast við langan tíma
frá 6 mánuðum úl tveggja ára og byggist áþví að hjálpa unglingum að
komastyfir neysluvandamál sín með sérstakri dagskrá sem felurísér
m.a.
Fræðslu um vímuefnamál - hópmeðferð - andlega uppbyggingu og
sálgæslu - dagleg heimilisstörf - sérstök vinnuverkefni utanhúss sem
innan - afmarkað skólastarf- líkamleg þjálfun og heilsurækt.
Tilþess að fræðast nánar um þessi samtök spjallaði ritstjóri Skinfaxa
við þá Sr. Birgi Ásgeirsson formann þeirra og Ragnar Lárusson
ráðgjafa.
Hvert er upphafið að stofnun
þessara samtaka?
Birgir: Fyrir um það bil 2 árum voru
menn famir að gera sér grein fyrir því að
vímuefnaneysla fór vaxandi meðal
unglinga og vandinn óx stöðugt. Þá
tóku sig saman nokkrir einstaklingar,
sem vildu sinna þessu vandamáli, og
ákváðu að koma á fót meðferðaheimili
fyrir þessa unglinga. Á sama tíma var
Krýsuvíkurskólinn auglýstur til sölu.
Ragnar: Upphaf samtakanna var 12
manna hópur, sem unnið hefur að
undirbúningi þessa máls þ.e.a.s.
kaupunum á skólanum og formlegri
stofnun samtakanna á sumardaginn
fyrsta 1986.
Sverrír Hermannsson menntamálaráðherra
afhendir Valgeiri Ástráðssyni fundar-
stjóra afsalið fyrír Krýsuvíkurskóla.
Er mikil þörf fyrir slíkt heimili
sem þetta?
Ragnar: Já þörfin er örugglega mjög
mikil og fer því miður vaxandi einsog
fram hefur komið" í allri umræðu um
þetta vandamál.
Á þetta að vera eingöngu fyrir
14-20 ára unglinga?
Ragnar: Þessi rammi er mjög
sveigjanlegur, því vandamálið er til
staðar nú þegar hjá miklu yngri
krökkum. Ég var t.d. spurður að því um
daginn hvort við tækjum 11 ára, en
viðmælandi minn sagðist þekkja dreng á
þessum aldri sem væri búinn að vera í
stöðugum hassreykingum síðan hann
var 7 ára gamall, og þá með foreldrum
sínum.
Birgir: Þetta vandamál virðist fara alveg
ótrúlega langt niður í aldri, en þó held
ég að flest þeirra séu á þessum aldri þ.e.
frá 14-20. Hitt er líka að fólk á aldrinum
26-30 ára er mjög oft að þroska eins og
i4 ára, bæði andlega og líkamlega.
Hvernig hafa viðbrögðin verið
hjá hinu opinbera þ.e. ríki og
sveitarfélögum?
Birgir: Þau hafa verið mjög góð,
sveitafélög sem áttu hlut í
Krýsuvíkurskólanum gáfu sum okkur
sinn hluta í honum. Þá hefur
menntamálaráðherra sýnt þessu máli
mikinn áhuga og vilja til að styðja við
bakið á okkur.
Sr. Birgir Ásgehsson form. Krýsuvíkur-
samtakanna í ræðustól á stofnfundinum.
Hvemig ætlið þið að fjármagna
þetta?
Ragnar: Stjóm Krýsuvíkursamtakanna
hefur leitað eftir fyrirgreiðslu hjá
Byggingasjóði ríkisins og er verið að
kanna þar alla lánamöguleika nánar.
Jafnframt er í athugun ýmsar mjög
raunhæfar hugmyndir um fjáröflun, en
allar nýjar hugmyndir eru vel þegnar.
Birgir: Krýsuvíkursamtökin hafa verið
kynnt á fundum hjá ýmsum
líknarfélögum og fengið mjög jákvæðar
undirtektir. En stærsti sjóður
samtakanna eru hinar mörgu vinnufúsu
hendur félaganna, sem með framlögum
sínum, jákvæðum anda og bjartsýni,
vinna létt og mikið verk.Sá sjóður er
ómældur og verður aldrei metinn til fjár.
Jæja að lokum, hvenær búist
þið við að geta hafið starfsemi?
Ragnar: Við höfum þegar hafist handa
við skráning'u nýrra félaga og munum
taka á móti umsóknum í síma
91-621005 milli 17.oo og 19.oo alla
virka daga til að byrja með.
Guðmundur Gíslason
KRÝSUVÍKURSAMTÖKIN
36
Skinfaxi 2. töi. 1986