Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1986, Side 38

Skinfaxi - 01.04.1986, Side 38
Hvaða fiagl er þama? Hugleiðing um fugla fyrir göngufólk Þorsteinn Einarsson Allt árið hérlendis ber fugla fyrir augu og raddir þeirra til eyrna, en um þennan tíma árs verður návist þeirra á jörðu og í lofti fjölbrey tilegri. Inn í hópinn, sem nefnast íslenskir varpfuglar bætast árvissir umferðafuglar á leið til norð- lægari varpstöðva til að mynda rauðbrystingur, tildrur, sanderlur í fjörur og helsingjar, blesgæsir í varplendi og nýrækt, en margæsir sjást á sjávarfitjum eða á sundi á grunnsævi. Slæðingjar geta bæst í hópinn, svo sem landsvölur, bæjarsvölur og fjallafinkur. Fyrir nokkru kom ég í trjágarð í Fossvogi og heyrði úr garðinum berast einhverja unaðs- legustu fuglsrödd, sem til eyma berst að vorlagi í skógum meginlands Evrópu. Söngur svartþrastar. Fuglinn sat á toppi barrtrés. Svartur en goggur ljósgulur. Hér varp hann í fyrra. Voru þeir komnir aftur til varps? í síðasta hefti Skinfaxa varð eigi komið fyrir öllu lesmáli og myndum af öndum. Hér kemur framhaldið og til viðbótar lýsingar á tegundum, sem halda sig á vötnum og tjömum. Húsönd (gjallönd): Höfuðlag sérkennilegt, enni bratt, frá ávölum nær flötum kolli gúlpast út vangarnir. Goggur stuttur, svartur. Fætur svartir. Blikinn hefur hálfmánalaga hvítan blett aftan goggróta og axlafjöðrum hallandi hvítar rákir. Bláleitum gljáa slær á höfuð. Á höfuðfiður kollunnar slær roðagljáa. Hingað út berast oft Hvinendur frá norðanverðri Evrópu. Hvítur blettur aftan goggs blikans hringlaga, rákir á axlafjöðrum samfelldari. Kollan með hálsband hvítt og hvítur vængreitur. Æðarfugl: Stærst anda, gildvaxin, höfuð ílangt og framlágt. Goggur fölgrár, eins fætur. Frá skoltum goggs teygjast 4 vik í átt til ennis og kverkar. Á vetrum halda bæði kynin sig í stórum flotum nærri ströndum. Verpa í misstómm vörpum. Af öndum er blikinn sú eina svört á kvið og hvít á baki. Bringa hefur roðablæ. Um enni og aftur fyrir augu er svört hetta sem klofnar um hvítt vik í kollinn. Á hnakka mosagrænir blettir. Stél, handflugfjaðrir og armfjaðrir svartar. Kollan er einlit, gulbrún og eina öndin sem er sett þéttum Æðarkóngur: Sést hérlendis á vetmm í flotum æðarfugls og á summm í vörpum. Blikinn með háan gulrauðan goggkamb. Skutulond: Fágæt, goggur svartur settur hringljósbláum þverrákum. í væng grátt vængbelti. Bliki dökkrauðbrúnn um höfuð og háls. Bringa svört. Kollan brún á höfði, háls og bringu. Kemur í ætisleit á land í ljósaskiptum, annars úti á vatni. Ljóshöfðaönd: Ber hér fyrir augu, amerískur flækingur. Skild rauðhöfða. Goggur blýgrár, nögl áberandi svört. Fætur dökkir. Spegill grænn, með svörtum jöðrum. Neðanverðir vangar og háls grátt, bogadreginn grænn geiri aftur frá augum, hvítur í kollinn. Rauðbrúnar síður. Kollan svipuð rauðhöfðakollu, en verður greind á gráu höfði. Fiskiendur: Toppönd og Gulönd Fljúga með tíðu vængjablaki í beinni línu, ekkert svif, háls og goggur teygðir stífir fram af mjóslegnum bol; stél bogadregið. Goggur rauður, langur og hvass, nögl krókbeygð, skoltrendur brúnar afturhöllum göddum. Djúpsyntir. Fætur rauðir. Sft* V '' \ Toppönd v Hefur áberandi tvíklofinn topp aftur frá hnakka. Höfuð blikans er dökkgrænt. Um háls hvítur kragi, en frá hálsgróp breiðist ljósbrún svunta niður um bringu. Kviður ljós, síður og stélþökur blýgráar, bak dökkt. Um axlastaði hvítar doppur. Handflugfjaðrir dökkbrúnar og frá þeim tvær dökkar rákir inn á hvítt væng- mynstur. Kollan er brúngrá, rauðbrún um höfuð og niður á háls. Ofan á væng hvítt vængmynstur með stutta svarta rák. Utan varptíma sjófugl. Leitar með varp í þéttan gróður, gjótur og holur í bökkum Er stærri en toppönd Áberandi hvítur litur með rjómagulum blæ einkennir blik- ann. Svart fleygar sig niður bakið að blýgráum stélþökum, en stél dökkbrúnt. Sama brúnleita lit hafa fleyg lit hafa flugfjaðrir en andflugfjaðrir hvítt mynst- ur. Höfuð án topps úr hnakka það og niður á miðjan háls er dökkgrænt. Koll- una prýðir rauður litur á höfði og niður á háls og aftur úr hnakka samlitur óklofinn toppur. Um bak og síður er hún blýgrá en kviður ljós. Áberandi á flugi er hvítur reitur armflugfjaðra. Leitar með varp í fylgsni klettaskúta og hola í vatns- og árbökkum. Á vetn m heldur hún sig á ám og vökum stöðuvatna. Er ekki á sjó sem frænkan. Skinfaxi 2. tbl. 1986 38

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.