Mánudagsblaðið - 17.07.1967, Page 6
ÚR EINU
í ANNAÐ
Rykmekkir enn — Skrií um „flöskuhálsinn" —
Óþrifamenn og nývöknuð blöð — Öskjuhlíð og
glerhúsið — Möguleikar að Laugarvatni — Val-
höll og vínveitingar.
Lítið virðist nú fara fyrir rykbindingu á vegum í nágrenni
Reykjavíkur, svo ekki sé talað um þjóðvegina. Sólardagana
í síðustu viku var rykmökkur óþolandi alla leið að Þingvöll-
um svo og austur í sveitir. Það hljóta að vera einhverjar
sáiir, sem beinlínis koma í veg fyrir þetta verk, því vel má
binda rykið hér í næsta nágrenninu þar sem umferð er
\ þéttust.
Það er mikil ánægja hve vel blöðin hafa nú tekið „flösku-
hálsmálið"! við Elliðaár, sem hið opinbera hefur þverskall-
ast við að lagfæra. Nú er þegar komið í ljós, að vandræðin
ve'rða aldrei meiri en í sumar og viðkomandi aðilum alls-
endis óstætt á þessari fáránlegu afstöðu sinni. Bráðabirgða-
brú er í senn ódýr, miðað við allt annað, og allir sem af-
skipti hafa haft af umferð þarna hafa krafizt úrlausnar. Og
viti menn — þetta er þjóðvegur og hlýtur þá að falla und-
ir verksvið vegamálastjóra — og við þekkjum öll vega-
málastjóra — hann er ennþá á haka og skóflustiginu —
ansar ekki alþýðunni — enda langt upp yfir hana hafinn.
Og talandi um vakningu blaðamanna, þá er ekki ónýtt, að
nú hafa opnast augu hinna viðlesnustu um óþrifalýðinn, sem
hingað hefur flækzt og stundar, vægast sagt, viðbjóðslega
hegðan hér á landi, flökkulýður frá N-Afríku, alræmd vand-
ræðakvikindi, sem flæða hingað vegna þeirra afspurna af
skandinövum almennt og íslendingum sérstaklega, sem fá-
fróðu naive fólki, með fullar hendur fjár, sem gjarna vilja
„imdirhalda“ þessa útlendinga. Þetta er sami skríllinn sem
íslendingar í siglingum í N-Afríku sér liggjandi á götunum,
betlandi eða seljandi kvennalið ættingja sinna fyrir dálítinn
skilding eða tóbaksbita. Nú reyna þeir að fá smástelpuóvita
hér til að afla „sér“ fjár á sama hátt. Þá hefur þjó^in kom-
ið sér upp útlendum „alfonsum" — Nokkuð fleira?
Þetta er gömul lumma, en hve oft dettur manni ekki 1
hug á sólbjörtum dögum hve skemmtilegt væri ef að ofan
við hitaveitugeymana á Öskjuhlíð væri stór matsalur með
glerveggjum og útsýni í allar áttir. Menn geta ímyndað sér
hve tilkomumikið það yrði, bara borið saman við útsýni frá
Grillinu á Hótel Sögu. Á sumrum sést yfir allt nágrenni
Reykjavíkur og langt vestur á Snæfellsnes, fjallgarðurinn,
Suðurnesin, en á vetrum í skammdegi ljósadýrðin suður á nes
og upp á Akranes, Hvalfjarðarkjafturinn og svo höfuðborg-
in sjálf. Þetta yrði á borð við slíkar „útsýnisresturasjónir“
sem stórborgir bjóða upp á. Heilbrigðisyfirvöldin ku hafa
sett sig upp á móti þessari hugmynd af hreinlætisástæðum
og sýnir það gleggst hve langt á eftir þau eru í þessum efn-
um en furðu langt á undan í bönnum.
Jónas Jónsson frá Hriflu hefur marga ágæta grein ritað um
Laugarvatn og möguleika þess á 2., síðu hér í blaðinu. Við
hér í snakkdálknum viljum meina eftir stutta heimsókn
þangað nýlega, að Jónas gangi einum of skammt. Möguleik-
ar Laugarvatns eru óþrjótandi og nálega synd, að ekki
skuli nú þegar hafa verið gerðar margfaldar ráðstafanir til
að nýta þá til fulls. Nútímatækni gæti bókstaflega framið
galdra í sambandi við aðstöðuna þar.
Kaupmaður skrifar: „Ég kom til Þingvalla s.L þriðjudag
ásamt tveim Bretum. Sól skein í heiði, Þingvellir skörtuðu
sínu bezta, nokkrir hestamenn voru kornnir þangað til að
matast og áðu hestum sínum í nesinu við vatnið. Alli það
sérstæða á íslandi sýndi sig þar í hinni beztu mynd, fegurð,
kátína og fyrirtaks móttökur. Gestir mínir eru heimsborgar-
ar og vel kunnir íslandi. Þeir eru ekki vínmenn, en kunna
illa öllu banni, ekki síður heima en heiman. Báðir höfðu
þeir orð á því, að það væri fáránlegt, að staður eins og Val-
höll skyldi ekki heimilt að selja hressingu með mat — þótt
ekki væri til annars en ná rykinu úr kyerkunum. Valhöll
hefur tekið stakkaskiptum og sjálfsagt að leyfa hótelinu að
veita sömu fyrirgreiðslu og aðalhótelin í Reykjavík".
Keffavíkur
sjónvarpið
Sunnudagur
1400 This Is the Answer
.1430 This Is the Life
1500 Sports
Greatest Fights
1630 Leningrad
1730 Navy Film
1800 G.E. College Bowl.
1830 Crossroads
1900 News
1915 Sacred Heart
1930 Ted Mack
2000 Ed Sullivan
Duke Ellington, Peggy Lee,
Jim Nabors
2100 Bonanza
2200 New’s Special
2230 What's My Line
2300 News 1
2315 „Blondie Brings Up Baby“.
Peggy Singelton, Arthur
Lake
Mánudagur
1600 Coronado 9
1630 Dennis Day
1700 Sjá sunnudag kl. 11.15.
1830 Andy Griffith
1955 Clutch Cargo
1900 News
1925 Moments of Reflection
1930 My.Favorite Martian
2000 Daniel Boone
Lolyd Nolan, Myra Fakey
2100 Official Detective
2130 Password
2200 12 O’Clock High
2300 News
2315 Tonight Show
Liza Minnelli, Rich Little,
Chris og Peter Allen
Þriðjudagur
1600 Odyssey
1630 Joey Bishop
1700 „Dante’s Infemo“
Spencer Tracy, Claire
Trevor.
1830 Dupont Cavalcade of
America
1855 Clutch Cargo
1900 News
1930 My Favorite Martian
1930 News Special
2000 Lost in Space
2100 Green Acres
2130 Hollywood Palace
2230 Fractured Flickers
2300 News
2315 „Heartaches“
Miðvikudagur
1600 Colonel Flack
1630 Peter Gunn
1700 Sjá þriðjudag kl. 11.
1830 Pat Boone
1855 Clutch Cargo
1900 News
1925 Moments of Reflection
1930 Untouchables
2030 Smothers Brothers
Nancy og Frank Sinatra,
yngri
2130 To Tell the Truth
2200 Texaco Star Parade
Robert Preston, Sergio
Franchi, Caterina Valenta
2300 News
2315 „„Dark Corner"
Lucille Ball, Clifton Webb,
Mark Stevens (Headline),
William Bendix
Fimiptudagur
1600 The Third Man
1630 My Little Margie
1700 Sjá miðvikudag kl. 11.15
1830 Social Security
1855 Clutch Cargo
1900 News
1925 Moments of Reflection
1930 Beverly Hillbillies
2000 21st Century
2030 Dick Van Dyke Special
Dans, látbragðsleikiur, gam
anþættir
2130 News Special
2200 Coliseum
Donald O’Connor kynnir
Dinah Shore kynnir ríkis-
sirkusinn í Moskvu. Tekin
í Minsk.
2300 News
2315 „Claudia & David“
Dorothy McGuire, Robert
Young, Mary Astor, John
Sutton, Gail Patrick
Föstudagur
1600 Wanted Dead or Alive
1630 Danny Thomas
1700 Sjá miðvikudag kl. 1115.
1830 Roy Acuff’s Open House
1855 Clutch Cargo
Mánudagur 17. júlí 1967
Sjónvarp Keflavík
Frábær sýning rússneska ríkissirkussins — Bæði
fyrir börn og fullorðna — Keflavíkursjónvarpið —
Fá kommar líka að eyðileggja þetta? — Sagan um
þjóðvegina endurtekin?
S.l. fimmtudag sýndi Kefla-
víkursjónvarpið fyrri hluta þátt-
arins „Rússneski ríkis-sirkusinn“
en sirkus þessi er sennilegast
langfærasti sirkus í heimi og
nýtur, á sínu sviði, sömu virð-
ingar og Bolshoi-ballettinn.
Bandaríska söng- og leikkonan
Dinah Shore skýrir atriðin, en
en hún var á ferð í Minsk, þar
sem þau eru tekin á venjulegri
sýningu, og rómar mjög, ekki
aðeins listamennina, heldur alla
ar móttökur Rússanna.
Atriðin voru fjölmörg og með
allt öðrúm svip, en menn og börn
eiga að venjast í vestrænum
löndum. Fyrsta atriðið, kúnstir
á hestum, var frábærlega vel
unnið, og ekki lét hinn heims-
frægi rússneski trúður (Pablov,
að mig minnir) á sér standa,
því trúðatriði hans eru hrein
listaverk, allt önnur en hinn
grátbroslegi standard vestræni
trúður, málaður og skoplega
ýktur. Fjórar stúlkur sýndu eins-
konar loftballett á snúrum langt
frá jörðu og síðan var sýnt at-
riði með síberískum tígrisdýr-
um.
Þá voru hrikaleg atriði, jafn-
vægisatriði, hátt í lofti, og afl-
raunamaðurinn Atlas lék sér að
þungum kúlum og öðrum afl-
raunatækjum eins og fislétt
væru. Nokkur önnur atriði voru
sýnd, sem öll vöktu athygli.
Þetta var fyrri hluti, en sá
seinni verður á sama tíma nú
í þessari viku, en þáttur þessi
nefnist Coliseum og er kl. 10 á
fimmtudagskvöld.
íslenzk börn hafa lítið af sirk-
us að segja og ættu foreldrar
gjaman að leyfa þeim að skoða
þessa góðu skemmtun n.k.
fimmtudagskvöld.
1900 News
1925 Moments of Reflection
1930 The Addams Family
2000 Voyage to the Bottom o£
the Sea
2100 Andy Griffith Uptown-
Downtown
Andy Griffith, Don Knotts
(Barney), Tennessee Ernie
Ford
2200 Rawhide
2300 News
2315 „Academy Awards“
Veiting Oscarverðlauna
Laugardagur
1030 Animal Secrets
1100 Captain Kangaroo
Cartoon Camival.
1330 Sports'
1700 Dick Van Dyke
1730 Profile
Þátur um jazz
1800 Town Hall Party
1855 Chaplain’s Comer
1900 News
1915Jungle
1930 Away We Go. Gamanmynd
Sheila MacRae o.fl.
2030 Perry Mason
2130 Gunsmoke
2230 Get Smart
2300 News
2315 Sjá þriðjudag kl. 5.
Það er skrítið — ekki sízt
fyrir öfgamennina hér, — ^ð
„erkióvinimir" Bandaríkjamenn,
skuli ekki hika við að sýna
rússneska listamenn — eflaust
vakir ekki fyrir þeim að láta
„rússnesk áhrif“ ná yfirtökum
hér. Margsinnis hefur verið bent
á þag hér — í umræðum um
sjónvarp og frjálst val' í þeim
Fyrirsögn vikunnar
Ekkert lýsir þrá þjóðarinnar
til meira sólskms en fyrirsögn
Alþýðublaðsins s.l .fimmtudag:
„SKEMMTIFERÐASKIP FÉKK
SÓLSKIN HÉR“.
Tækniorg eru nú óðum að
vaxa í íslenzkri tungu ,og notar
íslenzka pressan þau nú meira
en áður. Nýjar uppfinningar, ný
tæki af ýmsum tegundum bera
nöfn framandi íslenzku og mála-
menn okkar eru í óðaönn að
smíða orð — og oft ný orð-
skrípi — til að fylgjast með.
En einna sízt gengur blöðun-
um að nýta orð yfir hina ýmsu
fyrirliða í herjum, tignargráður
hermanna virðast íslenzku blöð-
unum mjög framandi og gætir
þar oft barnalegrar orðabókar-
þýðingar. Verst sett allra blaða
er þó Alþýðublaðið, sem aldrei
virðist viðurkenna r.ema tvær
tignarstöður innan hersins þ.e.
hershöfðingjar og liðsforingjar.
Það virðist sem orðið offi-
cier gildi aðeins um liðsforingja,
alls ekki ofursta eða önnur
millistig upp til hershöfðingjans.
Síðast bauð Dayan hinn ísraelski
„hóp liðsforingja" til Suez og
geta allir ímyndað sér hve
sennilegt er, að varnarmálaráð-
herrann hafi aðeins kallað í
nokkra „leautinants" — lautin-
anta, en sleppt öllum öðrum til
að sýna landvinninga sína. Geta
má þess, að lautinantar eru
lægsta virðingargráða meðal
svokallaðra „commissioned offi-
ciers", þ.e. næst ofan liðþjálfans,
sem ekki er „commissioned“.
Það er síður en svo, að Al-
þýðublaðið sé eitt um hituna í
þessum efnum. Þetta hefur ver-
ið vandræðamál síðan Stab
generáll sá fyrst dagsins ljós á
síðum Morgunblaðsins og margn
ar aðrar fjólur hafa verið ritað-
efnum — að Keflavikursjón-
varpið, sem mjög oft sýnir lé-
lega og algjörlega máttlausa
þætti, sýnir líka listaverk, svo
sem Bolshoi-ballettinn og bæði
þá dönskiu og brezku kollega
hans, ýms Shakespeare-verk með
beztú brezku og bandarísku
leikkröftum, ágteta franska lista-
menn o.s.frv., svo ekki sé talað
um þeirra eigið listafóik. Menn
gera sér almennt ekki Ijóst, að
í raun og veru er sjónvarp
þetta aðeins ætlað mönnum í
bandaríska hernum, og er sumt
Framhald á 5. síðu.
ar um hermenn og tignarheiti
þeirra. Það er tími til kominn
að, ef notast á við þýðingar á
íslenzku, að einhver nafngift
verði samin svo þessi sífelldi
ruglingur sé ekki prentaður ár
eftir ár, auk þess hve-heirriskúl
legur hann er. Orðfræðingar
okkar ættu að hkrapa- undir
þagga með blöðunum og gefa
okkur nöfn á þessa karla, eða
blöð neyðast til að notast við
erlendu, alþjóðlegu nöfnin, sem
sennilega eru bezta lausnin.
Og enn gerir pressan okkar
stundum voðalega vitleysu þeg-
ar hún er að apa borga- og
landanöfn, jafnvel nöfn á höf-
um upp úr Heimskringlu eða
öðrum fornum ágætisritum. Nú-
tíminn býður ekki upp á þær
aðstæður, sem tíðkuðust á tím-
um Snorra Sturlusonar eða þeg-
ar ritöld hófst almennt á ís-
landi. Nú eru þessi nöfn næst-
um öll alþjóðleg, en gömlu
fornritanöfnin algjörlega úrelt
og óskiljanleg miklum hluta
lesenda. Þýðing á borgarnöfnum
er jafn fáránleg og eltingurinn
vig ritaldarnafngifimar og hafa
flestar siðmenntaðar þjóðir látið
af þeim. Rembingsháttur og sér-
vizka ásamt vissum menntunar-
hroka er ærið úrelt fyrirbrigði
í nútíma blaðamennsku, því
blöðin eru fyrst og fremst flytj-
endur frétta af daglegum at-
burðum, en ekki einskonar éft-
iröpun á gullaldarmáli, sem
blaðamenn hvorki kunna né
hafa í rauninni tíma til að elt-
ast við. En þetta þýðir alls
ekki, að íslenzk blöð eigi að
temja sér lélegt málfar né held-
ur hætta að nota sum eldri orð,
sem enn eru í fullu gildi og oft
miklu heppilegri og fallegri en
orðskrípin, sem oft skreyta síð-
urnar.
Liðsforingjar og titlalýður — Gullaldar-nöfnin,
vonlaus eltingarleikur — Borgar- og landanöfn —
Kjarnyrt ritmál.