Mánudagsblaðið - 23.10.1967, Qupperneq 2
Mánudagsbiaðið
Máiradagor 23 oktober W67
Jónas Jónsson frá Hriflu:
Tveir merkir þjóðleiðtogar
Tryggvi Þórhallsson og Jón Þorláksson
Þessir þjóðleiðtogar áttu mik-
inn þátt í að mynda og móta
flokkaskipun á Islandi í sam-
ræmi við lífsskoðanir og lífs-
kjör fslendinga á ofanverðri tutt-
ugustu öld. Er fordæmi þessara
þingskörunga í mörgu lofsamlegt
og á maf-gan hátt til fyrirmynd-
ar samtíðarmönnum og eigi
síður fyrir komandi ár. Ef þjóð-
in ber gæfu til á ókomnum
öldum að varðveita frelsi og þjóð-
lega menningu þá verður þess-
ara leiðtoga minnzt fyrir lof-
samlega forgöngu þeirra við að
takmarka áhrif bölvalda þjóð-
arinnar, áhrif áfengiseitrunarinn-
ar- Það gerðu þeir með misjöfn-
um en áhrifamiklum hætti.
Tryggvi Þórhallsson tók ungur
þá stefnu að láta áfengi aldrei
koma inn fyrir sínar varir og
hann stóð við þetta æskuheit
Reyndi þó meira á hann f þessu
efni heldur en aðra menn hon-
um samlenda. Tryggvi Þórhalls-
son var forsætisráðherra í fimm
ár, einmitt það tímabil þegar
’ gestkvæmara var hér á landi
heldur en endranær. Það var
árabil alþingishátíðarinnar miklu
þegar nálega 40 þúsund gestir
innlendir og útlendir gistu land-
ið þar af þrjá daga við tjald-
búðalíf á Þingvöllum. Tryggvi
Þórhallsson hafði orð fyrir þeim
ungmennafélögum sem báru
fram á Alþingi óskina um hin
miklu hátíðahöld allrar þjóðar-
innar og fékk það mál sam-
þykkt. Fulltrúar allra flokka
unnu -að undirbúningi þessarar
samkomu í 4 ár á 150 fundum.
Allt það starf var ólaunað á-
hugmannastarf. Alveg sérstak-
lega reyndi Tryggvi Þórhallsson
að hafa mikla reisnu fyrir
innlenda og útlenda menn,
sem voru flestir óvanir
algeru bíndindi á manna-
mótum- En engir dómhæfir menn,
átöldu ráðherrann fyrir stefnu-
festu sína og enginn vafi er að
hin einlæga og óhvikula forseta
Tr. Þ. í áfengismálinu varð hon-
um og landinu til. sóma.
Jón Þorláksson var áhrifamik-
ill forustumaður um árabil sem
flokksleiðtogi, borgarstjóri og for-
o sætisráðherra- Hann lét hafa vín
um hönd í opinberum veizlum en
gaf ætíð það fordæmi að láta
eingöngu lyfta glasi við skála-
ræður eða samskonar kveðjur en
ekki í staðinn fyrir drykkjar-
vatn. Telja má að þessir tveir
forystumenn hafi markgð tvær
leiðir í stórmáli. Þær eru báðar
færar og virðulegar. Fyrri leið-
in er nokkuð erfið sumum Is-
lendingum en jafnframt virðuleg
og mjög til fyrirmyndar í þjóð-
aruppeldi. Leið Jóns Þorláksson-
ar er eini sómasamlegi vegur
menntaðra manna þegar vin-
notkun er talin óhjákvæmileg í
samkvæmum f opinberu lífi.
Fordæmi Tryggva Þórhallssonar
er sem betur fer örugg heim-
ilum og sumum mannamótum
hugsjónafólks. Fordæmi J. Þ- er
fyrirmynd . fjölmargra dugandi
manna. Telja má að þriðji hver
ráðherra í núverandi ríkisstjóm og
fyrri ríkisstjómum síðan Tryggvi
Þórhallsson lét af stjómarforystu
fylgi línu J. Þ. Þegar sleppir
tilgreindum undantekningum eru
mörg dæmi óskemmtileg fyrir
þjóðina. Kunn dæmi eru um ráð-
herra, sendiherra og bankastjóra
sem komu flugleiðis úr trúnað-
arferðum fyrir þjóðina frá út-
löndum en voru mjög ósjálf-
bjarga svo að þeir þurftu hjálp
áleiðis að og inn í bílinn. Þá
vaknar efi um hvort þessir leið-
togar hafi getað staðið vel fyrir
málstað landsins á erlendri
grund-. Hinar tíðu ferðir íslenzks
liðsodda á norrænar samkomur
hafa komið óorði á íslenzku þjóð-
ina jöfnum höndum fyrir hið al-
þekkta tilgangsleysi slíkra mann-
funda og í öðru lagi fyrir drykkju-
Iæti margra Islendinga í þessum
tilgangslausu ferðum. Frægt er
dæmið úr slarkveizlu á Þingvöll-
um. Búið var að sýna gestum
Sogsvirkjunina. Veitingar voru
miklar en kveðja skyldi .fara
fram £ Valhöll. Greindur en ölv-
aður oddviti Islendinga stóð upp
til að halda kveðjuræðuna en
þá slitnaði sálarþráðurinn. Mað-
urinn mundi að lokum eftir krist-
indómi í sambandi við staðinn.
Bað hann gestina þá að drekka
skál Jesú Krists. Þá var veizl-
unni lokið í það sinn.
Drykkjuskapur svokallaðra heldri
manna í landinu er háskalegt
fordæmi. Jóla- og áramótafagn-
aður á heimilum ölvaðra manna
er víða sorglegur atburðyr. Hús-
faðirinn dauðadrukkinn hrakyrðir
konu sína og lemur bséði hana
og börnin. Stálpuð böm hringja
í lögregluna. Hún kemur á friði
um stund en illindi halda oftast
áfram. Þegar meirn er haft við,
einkum um hvítasunnu eru yfir-
FYRSTIR með STÆRRA rými
320 lítra DJUP-
FRYSTIRINN
STÆRRA geymslurými
miöaö viö utanmál.ryö-
frír, ákaflega öruggur í
notkun, fljótasti og bezti
djúpfrystirinn.
KPS-djúpfryst er
örugglega djúpfryst.
Aðalumboð: Einar Farestveit & Co. Vesturgötu 2
BALDUR JÓNSSON, Hverfisgötu 37.
RATSJÁ, Laugavegi 47. — BÚSLÓÐ v/Nóatún.
ölva ungmenni og eldra fólk
i Hundraða eða jafnvel þúsunda
tali á Þingvöllum, Þrastaskógi,
Þjórsárdal, Laugarvatni, Bifröst
í Borgarfirði- Eitt sinn komu
fjögur þúsund óboðnir gestir til
Þingvalla. Athugull læknir kast-
aði tölu á lýðinn og taldi helm-
ing gestanna lítt sjálfbjarga.
Sumir voru að reyna að bíta
gras úr flögum til að seðja hung-
ur sitt.
f Reykjavík og flestum kaup-
stöðum og þéttbýlissveitum er
drykkjuskapur eins konar inn-
gangur að dansi. Þar sem löfi-
regla er ekki til varðgæzlu má
búast við áflogum og illindum
Saga félagsheimilanna snertir
áfengismál líðandi stundar. —
Nokkrir bsendaþingmenn og leik-
menntavinir i Reykjavík fundu
upp það snjallræði að leggja
skatt á’ lítt menntandi skemmt-
anir til að styðja þjóðleikhús-
byggingu í Reykjavík og fþrótta-
og fundarhús í sveitum og
kaupstöðum. Þetta hefir tekizt.
Þjóðleikhúsið er perla í listalífi
höfuðborgarinnar. Jafnframt hafa
verið og er unnið að því að reisa
fjölmörg stórmyndarleg félags-
heimili í sveitum. Þessi fram-
kvæmd hefur orðið mikill menn-
ingarauki landinu- Leikmenntin
stendur með miklum blóma í
tveim leikhúsum í höfuðstaðnum
og þessi listgrein er ein um hit-
una að bjarga eldi og anda
menningarinnar gegnum brim og
boða dásvefnsins sem herjar víða
um lönd frægar listgreinar. En
skuggar hvíla því miður að veru-
legu leyti yfir framkvæmd
þessa máls víða um land. Fyrir
nokkrum árum var ég staddur
við vígslu félagsheimilis í sveit.
Það var góður samkomustaður
fyrir 400 gesti. Fór ein slik sam-
koma þar fram með miklum
myndarskap. Nokkrum vikum
síðar var þar önnur samkoma
mjög ólík þeirri sem fyrr er að
vikið. Nú var öllum seldur að-
gangur að húsinu til að afla
fjár án áfengis. Allt var gróða-
vænlegt. Dýr söugflokkur. —
Margir höfðu birgðir áfengis í
fórum sínum. Innan tíðar voru
ofurölva hundruð manna- Áflog
og riskingar, brotnir gluggar,
hurðir, borð og békkir. Staður-
inn allur í rústum nema vegg-
ir og öflugir stigar. Hér var fólk
við hyersdagslegan ölæðisdans og
síðast áflog og húsbrot.
Þetta hús var hugsjónabygging,
dregið niður í sorpið með ölæði
afvegaleiddra manna-
Hér má benda á glöggar hn-
ur í þýði n garmiklu þjóðmáli.
Línu Tr. Þ. mun lengi minnst
að verðleikum. Lína J.Þ. er verð-
ur vegur þeirra sem vilja og geta
notað áfengi eins og eld á is-
lenzkum hlóðum án þess að neita
siðmenningunni. Fyrir þá, sem
eru of veikgeðja, brjóta húsgögn
og siði mannfélagsins eru eins til
lækningaleiðir fyrir utan stúk-
una. Ég mun síðar í lítilli blaða-
grein gefa þeim tvö vinsamleg
heilræði- Ef mannfélagið ber
gæfu til að nota heilræðin eftir
þvi sem við má koma munu ó-
gæfusöm böm aldred framar
þurfa að biðja feður sína að
hætta að misþyrma þeim og
mæðrum þeirra.
Auglýsið /
Mánudags-
blaðinu
bera TVÆ R
bragðljúfar sigarettur
nafiiið CAM E L
ÞVÍ CAMEL — FILTER ER KOMIN Á MARKAÐINN
Lí sjö og landi, sumar og veiur
Ilmandi Camel- og allt gengur betur
4