Mánudagsblaðið - 19.12.1967, Blaðsíða 8
\
ÚR EINU
f ANNAÐ
SJÓNVARP REYKJAVlK í
I
ÞESSARS VIKU
Sjónvarp — Símahappdrætti — Dýrasta bókin — Jólaljós —
Verðlag — Helgislepja
Þaíí. er ansi smekklegt af sjónvarpinu að skíra einn skemmti
þáttinn sinn eftir þessum dálki okkar, sem hér hefur birzt í
fimmtán ár undir sama nafni. Ekki að sjónvarpsþátturinn
sé eins góður og þessi þáttur heldur hitt, að hann gerir tals-
verða viðleitni, og væri enn betri, ef stjórnandi hans eða
þula væri ekki of tilgerðarleg. Hún ætti að vera alþýðleg,
eins og við — og talandi um sjónvarp, þá er það einkar
smekklekt , að eyða nú talsverðum gjaldeyri í Leonard Bem-
stein-þættina — músíkk — sem við fengum frítt í Vallarsjón-
varpinu. Að tarna er laglegur háttur til að spara gjaldeyri ..
Vitið' þið hve margir verða Símahappdrætti fatlaðra og
lamaðra sárreiðir, jafnvel ofsareiðir — vegna þess að þeir
sjálfir gleymdu að taka þátt í happdrættinu, þegar síminn
. hringir. Sei, sei, nei, en sannleikurinn er sá, að það er fjöldi
manna, sem er sjálfum sér sár, og þá ekki síður fyrirsvars-
mönnum hapþdrættísins, fyrir að hafa gleymt að taka þátt
í því. Skrítið er nú það, en þar sem um göfugt málefni og
þarft er að ræða, þá ættuð þið ekki að gleyma því nú —
enn er tími.
Það væri gaman að vita hvaða lýsingar-----og hrifningarorð
íslenzkir framámenn myndu nota ef þeir einhvern tíma lentu
í bókmenntum, sem raunverulega væru mikils virði, listaverk
á einn eða annan hátt. Mbl. hefur viðtal við helztu framá-
menn okkar í bókmenntum og öðru í sambandi við Svetlönu
hina rússnesku og hin plebiska hrifning og „stóru“ orðin yfir
sniilld hennar eru svo gífurleg, að ef til sannrar listar kæmi
yrðu þessi sjení okkar að sitja eftir orðlaus — algjörlega
krúkk eða mynda ný orð, sem þeim er raunar ófært, vegna
þess, að þau sem fyrir eru ná hámarki lýsinganna. Eða hvað
er ofar „stórkostlegustu skrifum“ — eins og eitt sjeníið orð-
aði það.
Dýrasta 'bók ársins ku vera bréfa- og reikninga- og bók-
haldssafn Friðriks Jörgensen, sem rannsóknarar hafa nú tekið
saman og bundið í eina heild. Þetta merka safn er aðeins til
í fjórum eintökum og kostar litlar 54 milljónir króna, aftir
því, sem enn er komið fram. Jörgensen mun vera okkar dýr-
asti höfundur og komast karlar eins og Kilijan hvergi nærri
honum. Vissulega met á heimsmælikvarða.
Jæja, Geir borgarstjóri kveikti loksins aftur jólaljósin í
bqrginni eftir tveggja ára jóla-„black-out“, naut þar ágætrar
samvinnu kaupmanna við Laugaveg, Austurstræti og Skóla-
vörðustíg, en allar þessar götur þurfa nauðsynlega að vera
upplýstar mánuði fyrir jól og út þrettándann. Vonandi hefur
borgarstjórnarmeirihlutinn séð sjónvarpsmyndirnar frá öðr-
um höfuðborgum og þá miklar jólalýsingar þar. Ljós og skraut
er ekki aðeins sómi fyrir borgina heldur er það líka „gott fyrir
business" eins og kaupmenn segja.
Húsmóðir skrifar: ........
„Verzlun er nú komin á það stig á íslandi, að kaupmenn
hljóta að fara að gera greinarmun á t.d. ávöxtum. Hér eru
seldar misjafnar tegundir af appelsínum, súrar, sætar, safa-
miklar og safalitlar, en ALLAR á sama verði. Þetta er mol-
búakaupskapur, lítt bjóðandi fólki upp á slíka verzlunarhætti.
Að vísu erum við kröfulítil þjóð enn, en því gera kaupmenn
ekki, sém allt vita, greinarmun á þessum varningi, hafa mis-
munandi verðlag eftir gæðum?, er þetta móske þessi mjög-
rómaði kaupmannamórall hér á íslandi?"
Skyldu nú siðferðisyfirvöldin hætta helgislepjunniá þeim
dögum, sem AÐEINS á íslandi eru álitnir helgir dagar þ.e. 2.
dagur jóla, Þorláksmessa o. s. frv.? Við erum orðnir að at-
hlægi fyrir „messumar“ okkar á gervihelgidögum, töpum
tugmilljónum í peningum á „frídögum", sem hvergi þekkjast
í nútíma þjóðfélagi, en ríðum svo hnút á ósómann með því
að hleypa þjóðinni á skemmtistaðina með „böll“ út um allt
daginn fyrir almennan vinnudag. Og svo undrast menn lé-
legar heimtum á vinnustöðum og fyllast umvöndunum vegna
hegðunar almennings.
GLEÐILEG JÓL!
Sunnudagur 24. 12. 1967.
Aðfangadagur.
14.00 íþróttir. Efni m.a.: Tott-
enham Hotspur og Leicester
City.
15.00 Jólaundirbúningur um
víða veröld. Myndin lýsir
jólaönnum í ýmsum löndum,
og börn svara spurningum
um jólasveininn. Þulur og
þýðandi: Tómas Zoega.
15.25 Á biðilsbuxum. Skop-
mynd með Stan Laurel og
Oliver Hardy (Gög og Gokke)
í aðalhlutverkum. íslenzkur
texti: Andrés Indriðason.
15.55 Drengjakór Kaupmanna-
hafnar syngur.
16.25 Hlé.
22.00 Aftansöngur. Biskupinn
yfir íslandi, herra Sigurbjörn
Einarsson prédikar og þjónar
fyrir aldari. Dómkórinn í
Reykjavík syngur. Organleik-
ari: Ragnar Björnsson.
22.45 Helg eru jól. Kammerkór
Ruth Magnússon flytur jóla-
söngva og helgisöngva ásamt
hljóðfæraleikurum Musica da
Camera.
23.15 Cancerto grosso eftir Cor-
elli. Flutt af þýzkum lista-
mönnum (Þýzka sjónvarpið).
23.35 Dagskrárlok.
Mánudagur 25. 12. 1967.
Jóladagur.
17.00 Stundin okkar. Umsjón:
Hinrik Bjarnason. Jólatrés-
skemmtun í sjónvarpssal.
Börn og unglingar úr Hafnar-
firði og frá Selfossi syngja.
Jólasveinninn kemur í heim-
sókn. Barnakór syngur i Ak-
ureyrarkirkju. Heimsótt hús
sr. Mathíasar Jochumssonar.
20.00 Jólahugvekja. Séra Emil
Björnsson.
20.10 Hátíð í borg og byggð.
Dagskrá um jólin, fléttuð við-
tölum og svipmyndum úr
skammdegisannríkinu. Um-
sjón: Gísli Sigurðsson.
20.50 Fæðing frelsarans. Kvik-
mynd þessi er helguð fæðingu
frelsarans en að auki er
brugðið upp myndum úr sögu
. Gyðingaþjóðarinnar fyrir
daga Krists. Sýndir eru ýmsir
helztu helgistaðir Biblíunnar.
Þýðinguna gerði séra Lárus
Halldórsson og þulur með
honum er Valgeir Ástráðsson,
stud. theol.
21.40 Sönglög úr íslenzkum
leikritum. Guðrún Tómasd.
syngur. Til aðstoðar er söng-
fólk úr Pólýfónkómum og
Ólafur Vignir Albertsson,
sem ánnast undirleik á píanó.
22.00 Gullvagninn. (Le carrosse
d’or). Frönsk-ítölsk kvik-
mynd gerð af Jean Renoir
árið 1952. Méð aðalhlutverk
fara Anna Magnani, Duncan
Lamont, R. Rioli og O. Spad-
aro. ísl. texti: Óskar Ingimars.
23.40. Dagskrárlok.
Þriðjudagur 26.12. 1967.
Annar í jólum.
18.00 Kertaljós og klæðin rauð.
Jólaþáttur Savanna tríósins.
Áður fluttur á jólum 1966.
18.25 Vinsælustu lögin 1967.
Hljómar frá Keflavik flytja
nokkur vinsælustu dægurlög-
in á þessu ári í útsetningu
Gunnars Þórðarsonar.
18.40 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.15 Spurningakeppni sjón.
varpsins. Að þessu sinni
keppa lið frá bifreiðast. Bæj-
arleiðum og Hreyfli. Spyrj-
andi er Tómas Karlsson.
20.45 „Hér gala gaukar". Svan-
hildur .Takobsdóttir og sex-
tett Ólafs Gauks flytja
skemmtiefni eftir Ólaf Gauk.
21.15 Valsadraumar. Óperetta
eftir Oscar Strauss. F. Dör-
mann og Leopold Jacobsen.
Meðal leikenda: Ellen Winth-
er, Susse Wold, Else Marie,
Édith Foss, Peter Steen og
Dirch Passer. Danska út-
varpshljómsveitin leikur und.
ir stjórn Grethe Kolbe. Söng-
fólk úr kór Konunglega leik-
hússins aðstoðar. Óperettan
er flutt samtímis á öllum
Norðurlöndum CNordvision
— Danska sjónvarpið).
22.35 Dagskrárlok.
Miðvikudagur 27.12. 1967.
18.00 Grallaraspóarnir. Teikni-
myndasyrpa gerð af Hanna
og Barbera. íslenzkur texti:
Ingibjörg Jónsdóttir.
18.25 Denni dæmalausi. Aðal-
hlutverk Jay North. ísl. texti:
Guðrún Sigurðardóttir.
18.50 Hlé.
20.00 Fréttir.
20.30 Steinaldarmennirnir.
Teiknimynd um Fred Flint-
stone og granna hans. ísl.
texti: Vilborg Sigurðardóttir.
20.55 Björgunarafrekið við
Látrabjarg. í þessum mánuði,
nánar tiltekið 12. des. voru
liðin 20 ár frá því að björgun-
arafrekið við Látrabjarg var
unnið. Slysavarnafélagið lét
gera þessa kvikmynd, sem
vakið hefur athygli víða um
heim, eins og björgunarafrek-
ið gerði á sínum tíma. For-
maður björgunarsveitarinnar
var Þórður Jónsson, bóndi á
Látrum. Óskar Gíslason tók
myndina en þulur er Björn.
Sv. Björnsson.
21.45 Listasafnið í Louvre.
Tvinnuð er saman saga
Louvre hallarinnar og hins
heimsfræga listasafns þar og
sýnd mörg listaverk. Leið-
sögumaður er franski leikar-
inn Charles Boyer. Þýðandi
og þulur: Valtýr Pétursson
listmálari.
22.35 April í París. Bandarísk
dans- og söngvamynd. Aðal-
hlutverkin leika Doris Day
og Ray Bolger. ísl. texti: Ósk--
ar Ingimarsson. (Áður flutt
23. des. 1967).
00.15 Dagskrárlok.
Föstudagur 29. 12. 1967.
20.00 Fréttir.
20.30 í Nýja íslandi. Kvikmynd
gerð af ísl. sjónvarpinu í ná-
grenni Winnipeg-borgar á sl.
sumri. í myndinni eru m. a.
viðtöl við nokkra Vestur-ísl:
Umsjón: Magnús Ö. Antonss.
21.10 „Riedaiglia". Ballett sam-
inn fyrir sjónvarp af Alvin
Ailey og dansaður af ballettfl.
hans. (The Alvin Ailey Ame-
rican Dance Theater). Tónlist:
Georg Riedel. Stjórnandi:
Lars Egler. Ballett þessi hlaut
1. verðlaun í Prix Italia fyrir
skömmu. (Nordvision —
Sænska sjónvarpið).
21.35 Guðrún Á. Símonar syng-
ur. Á efnisskránni eru ísl. og
erl. sönglög. Undirleik annast
Guðrún Kristinsdóttir.
21.45 Dýrlingurinn. Aðalhlut-
verk leikur Roger Moore, ísl.
texti: Bergur Guðnason.
22.35 Dagskrárlok.
Laugardagur 30. 12. 1967.
17.00 Endurtekið efni. 1. Með-
ferð gúmbjörgunarbáta.
Skipaskoðun ríkisins lét gera
þessa kvikmynd. Hannes Þ.
Hafstein erindreki Slysa-
varnafél. flytur inngangsorð.
Áður flutt. 28. 12. 1966 og 19.
3. 1967. — 2. Hornstrandir.
Heimildarkvikmynd þessa
gerði Ósvaldur Knudsen um
stórbrotið landslag og af-
skekktar byggðir, sem nú eru
komnar í eyði. Dr. Kristján
Eldjárn samdi texta og er
hann einnig þulur. Áður flutt
2. desember 1967.
17.50 íþróttir.
Hlé. "
20.30 Riddarinn af Rauðsölum.
Framhaldskvikmynd byggð á
sögu Alexandre Dumas. 3.
þáttur: Genéviéve. ísl. texti:
Sigurður Ingólfsson.
20.55. Frá heimssýningunni.
Sjónvarpið hefur áður sýnt
kvikmyndir, sem það lét gera
á heimssýningunni í Montreal
sl. sumar, en þessi mynd er
kanadísk. Heimsóttir skál-
ar ýmissa þjóða á heimssýn-
ingunni, sem ber hátt í sögu
þessa árs, sem nú er senn á
enda. Þýðandi og þulur: Gylfi
Gröndal.
21.45 Maðurinn í hvítu fötun-
um. Brezk gamanmynd. Að-
alhlutverk: Alec Guinness,
Joan Greenwood og Cecil
Parker. ísl. texti: Dóra Haf-
steinsdóttir.
23.15 Dagskrárk>k.
Miðvikudagur 19. desember 1967
Nýjar bækur frá
Bókfellsútgáfunni
HAFÖRNINN
eftir Birgi Kjaran.
Bækur Birgis Kjarans, alþing-
ismanns, eru löngu þjóðkunnar,
enda Birgir mikill ferðamaður og
náttúruskoðari, eins og Auðnu-
stundir og Fagra land báru með
sér. Nu hefur Bókfellsútgáfan
gefið út enn eina bók eftir Birgi
og nefnist hún Haförninn og fjall
ar um hinn tignarlega en hverf-
andi konung loftsins, en þessari
tegund arna hefur fækkað um
/
gjörvallt norðurhvel jarðar. Síð-
asta talning arna leiddi í ljós, að
á öllu íslandi er nú um 40 full-
orðnir fuglar en 16 ungar, en sú
talning fór fram s.l. sumar.
í bók þessari, sem er í senn
fræðandi og skemmtileg, leitast
höfundur við að gera íslenzka
haferninum nokkur skil, lífi hans
og háttum. Hefur hann safnað
frásögnum víðsvegar að af land-
inu, einkum þar sem fólk hefur
haft náin kynni og búið nálægt
dvalarstað hans. Inn^er svo skot-
ið ýmsum þjóðsögum og sögnum
um haförninn, ásamt Ijóðum.
Auk Birgis sjálfs, sem er aðalhöf-
undur, ritar dr. Finnur Guð-
mundsson fuglafræðingur ýmis-
legt fræðirit um örninn. Myndir
eru fjölmargar bæði svartar og
hvítar svo og litmyndir og eru
sumar þeirra hreinustu listaverk.
Er bók þessi hin eigulegasta,
skemmtileg og fróðleg, 205 bls.
MERKIR ISLENDINGAR
Bókfellsútgáfan sendir nú frá
sér Merka íslendinga, nýr flokk-
ur, IV, en bækur þessar komu
fyrst út árið 1962 og síðan eitt
nýtt bindi á hverju ári.
Bókaflokkur þessi hefur náð
geysilegum vinsældum hjá al-
menningi; enda hafa íslendingar
jafnan haft gagn og gaman af
æviágripum merkra manna, sem
völdust til forustu á þeim árum,
sem þjóðin var að vakna af alda-
gömlum dvala. í þeim flokki, sem
nú lýkur hafa verið birt æviágrip
74 manna frá ýmsum öldum,
flestra frá 19. öld og fyrri hluta
20. aldar. Eins og í fyrri bindum
er það timaröðin sem ræður mið
uð við fæðingarár þess sem um
er ritað. í þessu bindi er sú ný-
breytni upp tekin, að birtar eru
ævisögur tveggja kvenna, sem
mikið komu við menningarsögu
þjóðarinnar á þessari öld.
Meðal ævisagna, sem hér birt-
ast eru: Jósep Skaftason, læknir
Naustum, Pétur Guðjohnsen org-
anleikari, Einar Jónsson, Hoíi
Vopnafirði, Sigurður prestur í
Vigur Stefánsson, Bríet Bjarnhéð
, . v.
insdóttir, Jón Olafsson, bankastj.,
Magnús Sigurðsson, bankastj.,
Gunnlaugur Claesen yfirlæknir
og fjöldi annarra merkra manna.
Jón Guðnason, fjrrrverandi
skjalavörður bjó til prentunar og
er allur frágangur bókarinnar
skínandi góður, en hún er 280
síður.
Svikulgagnrýniíbókmenntum
Framhald af 4. síðu.
ar og vilja sitja á friðarstóli og sáttir við alla menn. Slíkir menn
eru búnir að vera sem gagnrýnendur og byggja venjulega á
þegjandi samþykkt: þú skrifar vel um mig og ég um þig.
Við verðum að losa okkur við þessa gömlu fauska. Bók-
menntir okkar fara vaxandi, skáldum fjölgar og verkin aukast.
Ef ungu skáldin eru gerð að „efnismönnum" löngu áður en
þau hafa þroska og reynslu til verka, þá er um leið vísað á bug
allri von um að þau reyni að bæta sig. Þetta er nú bókmennta-
stefnan í dag.
VEKJARAKLUKKUR.
LÓÐAKLUKKUR.
SKÁPKLUKKUR.
ELDHÚSKLUKKUR.
MAGNÚS
E. BALDVINSSON,
Laugavegi 12-, sími 22804
Hafnargötu 19,
Keflavík>