Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Side 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Side 4
sem ísland ber nafnið land miðnætursólarinn- ar, með rentu. Norður af Ströndum sézt sóliti yfir hafsbrún í hánorðri klukkan 12 á lág- nætti, en þetta stendur ekki lengi. Smám sam- an fer nóttin að gera vart við sig aftur, vinnu- tími sjómannanna fer að smá styttast. Hann er ekki lengur 24 klukkutímar á sólarhring. í myrkri veður síldin ekki og þó hún gerði það, þá væri ekki hægt að kasta fyrir torfurnar, þær sæust ekki. Þegar kemur fram í miðjan september fer síldin venjulega að tregðast. Skipin fara að týgja sig til heimferðar og fólk- ið fer að fara, — hver heim til sín. Þá dofnar yfir öllu, aðeins nokkrir menn hafa þar vetur- setu til þess að sjá um verksmiðjuna og aðrar eignir Djúpuvíkur. Þar á meðal er Guðmundur Guðjónsson verkfræðingur og frú hans, bæði frá Reykjavík. Þau hafa komið sér notalega fyrir þarna inni á milli fjallanna og virð- ast una vel hag sínum. Þar sem mönnum líður vel, þar er gott að vera, fjarri öllum ys og þys og yfirborðshætti. Það sem einkennir Strandirnar einna mest er það, hve þær eru afskektar og fjöllóttar, samgöngur eru því mjög erfiðar á landi, miili bæja, fjarða og byggðarlaga. Sjórinn er hér lífæðin sem fyrri. Yzt við Reykjarfjörðinn að norðan stendur Gjögurvitinn. Hann er þarfasti þjónninn fyrit' siglingar um Útstrandirnar. Úti fyrir nesinu, sem Vitinn stendur á, er fullt af boðum og blindskerjum. Þetta eru fjöll, sem rísa upp af mararbotni á miklu dýpi. Þau skjóta kollinum upp undir yfirborð sjávar, en eru vandlega hulin þegar gott er veður og sjór sléttur. En hvessi hann upp af norðlægri átt breytist um- hverfið skjótlega. Vindurinn æsir upp öldurn- ar, þær stækka og stækka og grafa æ meira um sig, unz þær kenna grunns á þessum neðan- sjávarfjallatoppum. Um leið og þær kenna grunnsins, sem verður þeim að fótakefli, þrýst- ist vatnsmagnið upp á við, þær rísa upp, svo við himinn ber, í ofsa reiði og brjóta af sér öll bönd. Þær slíta sig úr tengslum við stall- systur sínar, hinar öldurnar, sem nóg hafa dýpi og olnbogarúm. Að síðustu hafa þær reist sig svo hátt, að þær vantar stuðninginn. ,,Ber er hver að baki nema bróður sér eigi“. Fjalla- topparnir, sem rísa upp af mararbotni, hafa brugðið fyrir þær fæti. Örlög þeirra eru inn- sigluð, þær hljóta að falla, en ferleg eru fjör- brotin. Hæsti og þynnsti hluti öldunnar bognar fram á við og síðan bognar öll aldan niður eftir, þangað til úr verður við mesta mein- vætti, sem kallast holskefla. Hundruð þúsunda eða miljónir smálesta af vatnsmagni bruna áfram með ofsa hraða og falla samtímis niður úr mikilli hæð; allt, bæði dautt og lifandi, sem fyrir þessum fjanda verður, mölvast og malast mélinu smærra á svipstundu. Það er því um að gera að forðast þessa óheillavænlegu staði ems og pestina. Út á það gengur sigl- ingafræðin og sjókortin meðal annars og skip- in þurfa að vera sterkbyggð og með miklu vélarafli til þess, að geta boðið óveðrunum byrginn. Siglingatækin eru ómissandi hjálp- armeðul. Vegmælirmn, áttavitinn, lóðið, en þessi tæki eru dauðir hlutir, sem getur skeik- að. Þau taka auk þess strauma, afdrift og krókótta stýringu ekki með í reikninginn. Það er því ekki hægt að reiða sig á þau nema upp að vissu marki og alls ekki á þröngum sigl- ingaleiðum í námunda við land. En hvað er það þá, sem varar sjófarendur við hættum og vísar þeim leiðina, þegar augun fá ekki notið sín? Sé náttmyrkri um að kenna, þá vinnur ljós- glæta frá ákveðnum stað í landi þetta þrek- virki, en sé það þoka eða dimmviðri, þá eru það hljóðbendingar eða merki frá loftskeyta- tæki, sem vinnur verkið, en sérstakan útbúnað þarf til þess að hægt sé að notfæra sér hið síðast nefnda. Þar sem skipaferðir eru miklar og siglingar eins og á sér stað úti fyrir Hornströndum, þarf að koma einhverju af þessum tækjum, helzt öllum, á fót, til þess að vara sjófarendur við hættunum, vísa þeim leiðina, létta þeim störf- in og fiýta fyrir ferðum þeirra. Þetta hefir ekki verið gert á Ströndum norður nema að litlu leyti, enn þá sem komið er. Strandamenn þui'fa mikið á skipakomum að halda. Allur þunga- vöruflutningur verður að fara sjóleiðina, sömu- ieiðis fólksflutningar frá og til annara lands- fjórðunga. Síldarverksmiðjan á Djúpuvík hefir aukið þörfina gífurlega. Strandamenn þurfa því að beita sér fyrir því, að skipum verði gert VÍKINGUR 4

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.