Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Side 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Side 11
skag-a. En um það leyti fór vindur að verða breytilegur og gekk meira til norðvesturs. Aðfaranótt föstudagsms urðu þeir varir við 10—20 togara, en enginn þeirra sinnti bátn- um að neinu, enda þótt kynnt væri stórt bál á þilfarinu, og sá togari, sem hann komst næst, slökkti öll ljós, er báturinn nálgaðist. Telur formaður að togararnir, a. m. k. einhverjir þeirra, hafi hlotið að verða bátsins varir. — Klukkan 3 um nóttina lét formaður taka fokk- una og leggja bátnum til með stórsegli og „messan“ og beið svo þannig birtu. Klukkan hálf sjö um morguninn fór að birta og sá þá bæði Stafnes og Reykjanesvita. Yar vindur þá rétt á norðvestan og gekk á með éljum. — Bátsverjar voru nú komnir á sömu slóðir og þeir voru á, þegar vélin bilaði og hrakningur- inn byrjaði. En nú var eftir að ná til lands. Formaður sá nú brátt að ekki varð kom.izt fyrir Stafnes eða Skaga, enda fór veður nú versnandi, svo að engin leið virtist opin nema sú, að reyna að nauðlenda í Höfnum. Var bátnum því siglt með fullum seglum til brots í svonefndri Skiftivík, sem er milli Merkiness og Junkaragerðis, en þar sýndist bátsverjum tiltækilegast að taka land, enda er það talið af kunnugum mönnum vera eini staður- inn á þessum slóðum, sem mögulegt hefði verið að bjarga bátsverjum, því veður var vont og haugabrim. Þar, sem bátinn bar að landi, var íyrir all- margt manna úr Höfnum, undir forystu Vil- hjálms Magnússonar formanns Slysavarna- sveitarinnar þ?.r. Höfðu Hafnamenn, er þeir komu á fætur um morguninn komið auga á bát undir seglum skammt frá landi, og séð þegar, að ekki var allt með feldu og að gera þyrfti ráðstafanir til björgunar. Jafnskjótt og báturinn kenndi grunns — um 60—70 faðma frá landi — skaut Vilhjálm- ur Magnússon af línubyssu út í bátinn og hitti línan bátinn, en í sömu svifum hvolfdi honum. Bátsverjar höfðu þá fleygt sér í sjóinn. Náði einn þeirra í línuna og bjargaðist þannig í land, en hinum skolaði brimið upp í flæðar- málið og tóku Hafnamenn þar á móti þeim. Sluppu allir menn í land ómeiddir og má þakka Hafnamönnum það, enda gengu þeir vasklega fram við björgunina og hlífðu sér hvergi. — Var bátsverjum komið strax heim að Merki- nesi, gefin þar heit mjólk að drekka og hlynnt að þeim hið bezta. Hresstust þeir furðu fljótt og ekki er vitað annað, en að þeir hafi nú náð sér til fulls. Hefir þá verið rakin hér í helztu atriðum, hrakningasaga bátsverjanna á m.b. „Krist- jáni“, og þarf hún engra skýringa við — hún skýrir sig sjálf. Mennirnir, sem á „Kristjáni“ voru og ham- ingjan hre.if úr heljargreipum Ægis og skil- aði aftur heilum til lands, voru þessir: Guðmundur Bæringsson formaður, 34 ára gamall, búsettur í Reykjavík. Kjartan Guðjónsson vélamaður, 32 ára gamall, búsettur í Ólafsvík. Haraldur Jónsson háseti, 32 ára gamall, búsettur í Reykjavík. Sigurður Baldur Guðmundsson háseti, 20 ára gamall, búsettur í Reykjavík. Sigurjón Viktor Finnbogason háseti, 32 ára gamall, búsettur í Reykjavík. Vélbáturinn „Kristján“, sem nú hefir borið beinin í Skiftivík í Höfnum, var eign Gissurar Kristjánssonar útgerðarmanns í Reykjavík. — Báturinn var 15 brúttósmálestir, byggður úr eik og furu árið 1923 af Daníel Þorsteinssyni skipasmið í Reykjavík. Hét báturinn þá „Jón Finnssson“ og var í eign Jóhannesar Jónsson- ar útvegsbónda á Gauksstöðum í Garði, allt frá því hann var byggður og til ársins 1939, að hann var seldur Gissuri Kristjánssyni. Bát- urinn hafði talstöð, en hún var ekki um borð, og ætlaði formaður að taka hana til notkunar síðar á vertíðinni. Báturinn var í vetur gerður út frá Sandgerði, af Lúðvík Guðmundssyni, útgerðarmanni þar. Gerist áskrifendur að Sjómannablaðinu Vikingur. Sími 2630. Box 425 u VÍKINGUE

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.