Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Side 22
hefir auk þess haft nær alla söluna á hendi.
Hefir nefndin jafnan selt fiskinn fyrirfram,
að undanteknum tilraunasendingum á nýja
markaði, og má því segja, að framleiðslan
hafi verið áhættulaus fyrir frystihúsin og hefir
það sölufyrirkomulag vafalaust örvað fram.
ieiðsluna frá því sem annars hefði orðið. Fiski-
málanefnd hefir leiðbeint með framleiðsluna
og jafnan haft fagmenn frá neyzlulandinu til
leiðbeiningar um verkunina.
Lang þýðingarmesta atriðið er þó það, að
síðustu árin hefir nær eingöngu verið fluttur
út flakaður fiskur og með því móti orðið veru-
leg atvinnubót að frystihúsunum á þeim stöð-
um sem þau starfa. Má svo heita að frystihús-
in séu langstærstu vinnuveitendur í ýmsum
þorpum landsins.
Á undanförnum árum hefir Fiskimálanefnd
gert margar og allvíðtækar sölutilraunir í ýms-
um löndum sem kostað hafa mikið fé. Ýmsar
þessar tilraunir hafa mistekist í bili, en þær
hafa allar borið þann gleðilega árangur að
sanna neyzluþjóðunum ágæti íslenzka fiskjar-
ins og vafalaust eiga þær eftir að bera árangur
í framtíðinni, þó að af ýmsum óviðráðanlegum
orsökum hafi ekki tekizt að afla markaða strax
nema í sumum löndum.
Stórt atriði, sem frystingin hefir fært með
sér, er nýting ýmsra þeirra fisktegunda, sem
áður voru lítils eða jafnvel einskis virði. Má
þar tilnefna karfa, steinbít, smáskötu, lang-
lúru o. fl.
Þess er að vænta, að framtíðin eigi eftir
að sanna, að með frystingunni séum vér á
réttri braut í verkun fiskjarins og hin mikla
aukning sem orðið hefir í þessari atvinnugrein
hér á landi hin síðari ár, bendir ótvírætt til
að svo sé. Á Fiskimálanefnd þakkir skilið fyr-
ir það starf, sem hún hefir unnið á þessu
sviði.
Nýr tiskibátur
Skipið er byggt á skipasmíðastöð Þorgeirs
Jósefssonar á Akranesi. Yfirsmiður, Eyjólfur
Gíslason, skipasmíðameistari, Reykjavík. —
Stærð: Lengd 65,8 fet. Breidd 17,1 fet. Dýpt
8,8 fet. Rúmmál 61,41 smálest brúttó. Djúp-
rista án farms 7 fet, fullfermt 10 fet. Byggð-
ur úr eik. Innrétting: Hásetaklefi með 14
hvílum, lestarrúm, vélarrúm, skipstjóraklefi
með 2 hvílum. Aflvél: Alpha dieselmótor 140
/160 ha. Burðarmagn skipsins ea. 75 smá-
lestir. Kostnaðarverð 115 þúsund krónur. —
Styrkur frá Fiskimálanefnd kr. 21,350.00.
Eigendur: Bergþór Guðjónsson skipstjóri
og Sigurður Þorvaldsson vélstjóri, báðir ung-
ir og efnilegir menn, til heimilis á Akranesi,
fæddir og uppaldir þar.
VÍKINGUE
Sigurfari, Akra-nesi.
Báturinn stundar nú þorskveiðar með línu, í
venjulega 7—8 daga veiðiferðum. Ætlar að
stunda síldveiði á sumri komandi. Svo er og
hugsað til að fá ,,troll“ útbúnað á bátinn og ef
til vill fleiri tegundir veiðarfæra, ef heppni
leyfir og tilefni gefast.
,,Víkingur“ óskar eigendunum til hamingju
með bátinn. —
22