Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Side 26
r
Frá Slysa varnafélagi Islands
Nokkur atriði úr skýrslu forseta félagsins um starfsemina á síðastliðnu ári
Á árinu 1939 drukknuðu 25 manns hér við
land, bæði í sjó, ám og vötnum, en af þeim
voru aðeins 12 lögskráðir sjómenn. Síðan far-
ið var að birta skýrslur um þessi efni, er þetta
áreiðanlega lang-lægsta drukknanatalan, sem
vitað er um á einu ári, hjá sjómannastétt okk-
ar. Þó hafði ófriðurinn geysað í fjóra síðustu
mánuði ársins, og skip okkar siglt mestan þann
tíma yfir hættusvæði Norðurálfunnar, svo að
segja við sömu skilyrði og skip annara hlut-
lausra þjóða, sem daglega berast fregnir af að
farizt á einn eða annan hátt af völdum stríðs-
ins.
Það var því engin furða, þó menn hugsuðu
með nokkrum ugg til þess, hvernig okkar sjó-
mönnum myndi farnast undir þessum kringum
stæðum, og þó menn hefðu varla búizt við svo
góðum árangri, sem raun varð á, því að við
misstum á þessum tíma ekkert mannslíf af
völdum ófriðarins. Þó allt sé að vísu enn með
sama sniði hvað siglingahættuna snertir, þá
getum við íslendingar verið þakklátir forsjón-
inni fyrir þann tíma, sem liðinn er, því ekki
er kunnugt um að farizt hafi nema fjórir ís-
lenzkir menn af þessum völdum fram á þenn-
an dag, þó ferðir íslenzkra skipa yfir hættu-
svæðin skipti nú orðið hundruðum frá því í ó-
friðarbyrjun. Þessir fjórir Islendingar fórust
í janúarmánuði af erlendum skipum, því að
engu okkar skipa hefir hlekkst á til þessa af
völdum ófriðarins, svo vitað sé.
Af þeim 25 manns, sem drukknuðu á s.l. ári
voru sem fyrr segir aðeins 12 lögskráðir sjó-
menn, en á undanförnum árum hefir sú stétt af
eðlilegum ástæðum orð.'ð harðast úti að þessu
leyti. Af þeim drukknuðu 4 af v.b. ,,Þengli“ á
leið frá Hofsós til Siglufjarðar hinn 7. febr.,
fjórir í lendingu á Akranesi hinn 19. s. m., þeg-
ar hinn landskunni dugnaðarmaður Bjarni Ól-
afsson fórst þar ásamt þrem hásetum sínum og
loks féllu samtals fjórir sjómenn fyrir borð af
skipum og bátum á árinu. Auk þess drukknuðu
5 manns — 4 karlmenn og 1 kona — sem
voru farþegar með ,,Þengli“, og fórust þannig
9 manns í þessu slysi, sem var hið mesta á ár-
inu, Ennfremur fórust 4 manns í ám og vötn-
um, og loks drukknuðu fjórir manns af öðrum
orsökum.
Bjarganir og þó einkum aðstoð veitt skip-
um og bátum, var með mesta móti á árinu. Eins
og vitað er, þá er oft erfitt að gera glögga
skilgreiningu á því, hvað telja beri björgun
og hvað aðstoð, en björgunarskipið ,,Sæbjörg“
veitti í öllu falli mikilvæga aðstoð við strand
b.v. „Hannesar ráðherra" á Kjalarnesstöngum
hinn 14 febrúar s.l. ár. Skipshöfnin, 18 manns,
yfirgaf skipið í brimi og náttmyrkri og komst
í björgunarskipið, sem hafði fundið strand-
staðinn með hjálp radíómiðarans og lagst
skammt frá honum. Með ljóskastaranum vísaði
svo björgunarskipið strandmönnunum leið út
úr skerjagarðinum. — En auk þessa var að
minnsta kosti 10 manns bjargað frá drukknun
á árinu. Tveim var bjargað við áður umgetið
slys á Akranesi, 4 af v.b. ,,Ingu“, sem hlekktist
á á Stokkseyrarsundi hinn 14. marz, en einn
maður drukknaði af skipshöfninni. Þá vann
ungur sjómaður, Pétur Magnússon, úr Reykja-
vík, frækilegt björgunarafrek í janúarmánuði
s.l. ár., með því að kasta sér til sunds af vél-
báti í Grindavíkursjó í versta veðri og ná fé-
laga sínum ósyndum, sem fallið hafði útbyrð-
is. Fyrir þetta afrek var hann heiðraður með
björgunarverðlaunum á síðasta Sjómannadegi
og um leið má geta þess hér, að Pétur hafði
lært sund á námsskeiði Slysavarnafélags ls-
lands árið áður.
í ágústmánuði bjargaði Gunnar Þorsteins-
son í Keflavík og lífgaði við dreng, sem fallið
hafði út af bryggju, og ennfremur bjargaði
Bernódus Ólafsson á Reykiarfirði á Ströndum
manni af bát, sem hvolfdi þar á firðinum í
VÍKINGUR
26