Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1940, Síða 24
leið er venjulega farin á þremur sólarhringum
í sæmilegu veðri.
Þegar komið var í Norðursjóinn hélzt enn
sami suðaustan stormurinn, en þar við bættist
blindbylur, svo að ekki sást til lands nema
endrum og eins, og mynti sú sjón okkur á
Hornstrandir um hávetur.því hvergi sást dökk-
ur díll, nema þar, sem landið var skógivaxið og
vindurinn hafði feygt snjónum af trjánum. —
Það vakti því ekki litla undrun okkar, þegar
skip fóru að tilkynna, að þýzkar flugvélar
væru að gera loftárásir á þau. Við vorum ekki
meira inn í styrjaldarmálum en það, að við
bjuggumst við, að þessi hættulegu hernaðar-
tæki héldu kyrru fyrir í sínu föðurlandi í slíku
veðri og vakti það því, að vissu leyti, aðdáun
okkar á áræði og kjarki þeirra, sem með stjórn
þessara manndrápstækja fóru, en óhjákvæmi-
lega skýtur þeirri hugsun upp í huga manns,
að betur hefði mátt nota þessa karlmennsku
og til þarfari verka, en þarna var um að ræða.
Þarna vorum við milli tveggja elda. Norður
af okkur varð skip fyrir loftárás á þeim slóð-
um, þar sem við höfðum verið fyrir rúmum
fjórum tímum og annað skip suð-austur frá
okkur um 50—60 mílur. Undarlegar tilfinning-
ar, sem gera vart við sig undir slíkum kring-
umstæðum! Mitt í ógnum grimmdarinnar og
miskunnarleysisins, getum við ekkert aðhafst
nema hlustað á lýsingu viðureignarinnar, sem
skipin senda frá sér, enda eru tilraunir til að-
stoðar af okkar hálfu þýðingarlausar, því hér
þarf skjótari viðbragða við, en við getum í té
látið. Landsstöðin ,,Wick-radio“, er önnum kaf-
in. í langan tíma hefir ekkert heyrst í skipinu,
sem er fyrir norðan okkur. Skipsverjarnir
hafa líklega yfirgefið það og reynt að bjarga
sér í björgunarbátana. Skipið, sem er suð-
austur frá okkur, hefir enn samband við
landsstöðina. Loftskeytamaðurinn skýrir frá
því, að flugvélin hafi hæft skipið, sem er oiíu-
flutningaskip, að aftanverðu, og enn hæfir
hún með eldsprengju. ,,Wick-radio“ tilkynn-
ir, að hraðskreiður torpedóbátur sé lagður af
stað til hjálpar. Skipverjar olíuskipsins verða
nú að yfirgefa skipið og gefa sig á vald hinna
smáu og veikbyggðu björgunarbáta í stormi
og stórsjó. ,,Wick-radio“ óskar loftskeyta-
manni og öðrum skipverjum alls hins bezta
og þá er þeun viðskiptum slitið. Allt í einu
heyrum við hvin mikinn úr lofti og sjáum við
hvar flugvél kemur þjótandi frá landi og flýg-
ur með geysihraða rétt yfir siglutoppanna á
skipi okkar og stefnir hún á árásarstaðinn.
Aðra flugvél sáum við einnig halda í sömu átt.
Síðar fréttum við, að þarna hafi lent í loft-
orustu milli hinna þýzku og ensku flugvéla
og að ein þýzk var skotin niður. Einnig fréttum
við að björgunarbátum olíuflutningaskipsins
hafi hvolft áður en hjálpxn kom, og 27 menn
drukknað. Þetta sama kvöld rakst danskt
flutningaskip á tundurdufl, sem var suður af
okkur, en þrátt fyrir að annað danskt skip
kom bráðlega á vettvang, drukknuðu margir.
Þannig hefir nálega enginn dagur liðið til
enda, síðan styrjöldin hófst, að atburðir líkir
þessum hafi ekki gerst. Menn eru hætLr að
reka upp stór augu yfir slíkum fréttum, þeim
venst maður einnig, sem og öðrum sorglegum
viðburðum þessa tíma.
Klukkan 16,00 þennan sama dag urðum við
að leggjast við akkeri undir Kinnard-head
vegna byls og storms. Þarna lá einnig fjöldi
skipa, sem treystust ekki til að halda ferð
sinni áfram, þar sem sigla verður í vissri fjar-
lægð frá landi, en það er ógjörningur í slíku
veðri, enda logar ekki á neinum vita, sem hægt
er að átta sig eftir, þegar myrkrið skellur yfir.
Laust fyrir miðnætti urðum við varir við
undirgang mikinn, var líkast því, að eitthvað
strykist með miklum hraða aftur með skipinu.
Varð mörgum hverft við og þutu sumir upp á
þiljur, en þeir sem uppi voru sáu ljósblossa,
sem lýsti upp himininn, en ekki var hægt að
greina úr hvaða átt hann kom. Hér hefir verið
um einhverja sprengingu að ræða, ef til vill
hefir tundurdufl sprungið í fjörugrjóti töluvert
langt frá okkur, því engan hvell heyrðum við,
en skruðningar þeir, sem fyrr er getið, munu
hafa verið hljóðbylgjur frá sprengingunni, er
bárust neðansjávar. Við urðum' einskis varir
eftir þetta.
Morguninn eftir var akkerið dregið inn og
haldið af stað, en við urðum fljótlega að snúa
við aftur vegna dimmviðris og storms. Næsta
morgun er svo haldið af stað í annað sinn og
VÍKINGUR
24