Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Síða 3

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Síða 3
Henry Hálfdánarson: Frjáls síldarsala Greinarhöfundur, sem einna fyrst- ur var til að kenna rétta verkun mat- jes-síldar hér á landi, ræðir síldar- sölumálin og vekur upp gamla hug- mynd sína, um kælihús og geymslu- miðstöð léttverkaðrar síldar. Nú, þegar barátta fyrir frelsinu og gegn ein- ræðinu virðist gagntaka alla hugi, finna sjó- menn sem útgerðarmenn ekki til annars en léttis yfir þeirri ráðstöfun atvinnumálaráð- herra, að leysa síldarsöluna undan söluviðjum pólitískrar síldarútvegsnefndar. Það er ekki einungis að einokunin er hvimleið, og fráhrindandi fyrir alla dugandi og áhuga- sama menn, heldur eru hinar pólitískt reknu nefndir hér á landi orðnar svo illa þokkaðar, að jafnvel þótt þær væru skipaðar hinum færustu mönnum, fengju þær ekki notið sín, fyrir því vantrausti, sem almenningur ber til þeirra. Reynzlan af slíkum nefndum hefir verið sú, að ráðandi hluti þeirra hefir tekið meira til- lit til flokkshagsmuna en almennings heilla. Ef nefndarmönnum hefir þá verið umhugað um annað, en fríðindi sér til handa. Sögur um misnotkun aðstöðunnar, ganga í flimtingum manna í milli. Síldarútvegsnefnd, sem nú hefir verið synj- að um einkasölu á léttverkaðri síld er skipuð mönnum úr öllum flokkum, formaður hennar hefir verið Finnur Jónsson alþingismaður og skrifstofustjóri Erlendur Þorsteinsson alþing- ismaður, báðir jafnaðarmenn. Hlutverk nefnd- arinnar hefir verið að ákveða lágmarksverð á nýrri og saltaðri síld, úthluta veiðileyfum á hverju ári, og svo hefir henni að undanförnu verið falið að sjá um sölu síldarinnar. Störf og aðgerðir nefndarinnar hafa sætt misjöfn- um dómum, og þeim hefir þótt minst um hana vert, sem þarna hafa haft hagsmuna að gæta, en það eru útgerðarmenn og sjómenn. Menn voru t. d. óánægðir með aðferðina við úthlut- un veiðileyfa. Þótt sjómenn séu engir ójafnað- armenn, þá fannst þeim sú jöfnun keyra úr hófi fram og vera þróun í öfuga átt, sem neyddi dugnaðar og heppnismenn til að draga sig í hlé og hætta, eða bíða eftir þeim, sem ver gekk. Síldarskip eru alltaf misjafnlega hepp- in að ná í góða síld til söltunar, og það gat komið sér illa fyrir saltendur að þurfa að bægja þeim skipum frá og sem miklu fremur kusu að fiska í bræðslu. Þá hefir nefndin þótt afburða lítilvirk í að sclja síldina á erlendum markaði. Síldareig- endur komust að því að þeim tókst betur að komast í samband við kaupendur en nefnd- inni. Nefndin virtist vinna að því eins og aðrir einræðisherrar, að sama skipulaginu yrði komið á hjá viðskiftavinunum, að kaupand- inn yrði að eins einn í hverju landi. Virtist þeim sérstaklega verða vel ágengt með þetta í Póllandi, þar sem örfáir harðsvírugir síldar- menn mynduðu innkaupshring með aðstoð ís- lenzks milliliðs, sem lagði það á sig að vera umboðsmaður beggja aðila, og hefir verið það síðan, í góðu yfirlæti Síldarútvegsnefndar. Niðurstaðan varð sú, að mikil verzlunar- félög í sama landi, reyndu eins og þau gátu að kippa fótunum undan einokunarhringnum og kostuðu til þess miklu fé. Keyptu þeir ís- lands Matjes af sænskum, dönskum og norsk- um kaupendum og demdu henni á pólska markaðinn fyrir minna verð en þeir keyptu hana fyrir. Rétt við nefið á pólska einokunar- hringnum, sem fannst hann vera illa svikinn og heimtaði skaðabætur af Islendingum. Ekki er vitað, hvoi’t þróunin hefir síðan ver- ið sú, að takmarka það sölu til annara landa, að frjálsir kaupmenn í Póllandi gætu ekki keypt þaðan Islandssíld til að klekkja á böðl- um sínum, en vitað er að síldarútvegsnefnd hefir haft miklar mætur á hinum tvöfalda um- boðsmanni og hefir tengst honum æ nánari böndum. Síldarútvegsnefnd á þakkir skilið, fyrir hversu umhugað henni hefir verið um vöru- vöndun, og þar hefir hin sterka aðstaða henn- ar komið að tilætluðum notum. Henni er og þakkað fyrir hvað síldarsaltendur hafa orðið VÍKINGUR 3

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.