Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Blaðsíða 14

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Blaðsíða 14
Á þeim þrem árum, sem liðin eru síðan Vík- ingurinn hóf göngu sína, hafa vinsældir hans meðal landsmanna farið jafnt og þétt vaxandi. Upplag blaðsins hefir meira en tvöfaldast síð- an útgáfan hófst og enn er útlit fyrir að auka verði uppiag þess að mun, þar sem engin tök hafa verið á því í seinni tíð að fullnægja eftir- spurn lesendanna. Þessi glæsilegi árangur er ekki sízt að þakka því, að blaðið hefir eignast víðsvegar um land ósérplægna velunnara, sem unnið hafa að út- breiðslu þess með alúð og kostgæíni. Meðal þeirra sem í þessum efnum hafa trú- lega staðið í fylkingarbrjósti, meðan yfirstíga þurfti byrjunarörðugleikana í sambandi við út- gáfu blaðsins, er útsölumaðurinn á Eskifirði, Kristján Tómasson verzlunarmaður. Þá sem Kristjáni eru kunnugir furðar sízt á þeim stuðningi, sem hann, með afskiptum sín- um af þessum málum, hefir veitt íslenzkum sjó- mönnum í viðleitni þeirra til sjálfstæðrar blaða- útgáfu. Hann er sjálfur gamall sjómaður og þótt langt sé nú liðið, síðan hann hvarf að öðr- um störfum og settist að í landi, rennur honum enn þá, sem áður, blóðið til skyldunnar, þegar málefni sjómanna eru annars vegar, en þeim hefir hann jafnan reynzt vel og drengilega. Hann er og gæddur þeim eiginleikum að ganga heill og óskiptur að hverju því verkefni, sem hann tekur sér fyrir hendur og hafa þau ein- kenni hans komið greinilega fram í þessu máli sem öðrum. Á tæpum tveim árum hefir hann aflað blaðinu 70 fastra kaupenda á Eskifirði og í nágrenni. Sá árangur hefir að sjálfsögðu kost- að erfiði og fyrirhöfn, en um slíkt er ekki feng- izt af Kristjáni, þegar um hugðarmál hans er að ræða. Víkingurinn þakkar Kristjáni drengilegan stuðning á þeim tíma sem liðinn er, og væntir þess jafnframt að fá sem lengst að njóta hinna frábæru starfskrafta hans. — Athugasemd Víking hefir borist eftirfarandi í bréfi frá Akureyri: „í Sjómannablaðinu Víkingur 6. tbl. 3. árg. á bls. 32, eru sögur eftir einhvern „Baldur í Bjarkahlíð". Telur hann sögur þessar frá „frumárum Akureyrar", en í þeim eru nefndir, svo auðþekkt er, gamlir menn, sem enn eru á lífi. Sögur þessar bera það með sér, að þær eru skröksögur og sennilega skrifaðar í þeim tilgangi að þjóna lund sinni.“ Sjómannablaðið Víkingur birtir þetta orðrétt, þar sem viðkomandi maður hefir þau rök fram að færa fyrir máli sínu, sem fullgild mega teljast. Vill blaðið um leið afsaka þessi mistök, þar sem það hafði enga aðstöðu til þess að véfenga frásögn „Baldurs i Bjarka- hlíð“ og tók hana sem góða og gilda vöru. Jafnframt er þessi „athugasemd" birt til hliðsjónar þeim, sem vildu senda blaðinu frásagnir, að gæta hinnar fyllstu varúðar um, að rétt sé frásagt. # I síðasta tbl. hefir misritast í tilvitnunum úr Sæ- farabálki, „vaki vindur“, en á að vera: reikar ekki sve.f né skeikar hendi, þó að vaxi vindur. Og í kvæðinu um Þorbjörn Kolka: eftir, en á að vera, Tók hann skipið í togi á ettir. VÍKINGUR 14

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.