Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Qupperneq 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1941, Qupperneq 24
Júlíus Kr. Olafsson. Júlíus Kr. Ólafsson yfirvélstjóri á e. s. „Súð- in“ varð fimmtugur þ. 4. júlí s. 1. Hann er í fremstu röð meðal stéttarbræðra sinna og nýt- ur mikils álits. Hefir hann starfað sem vélstjóri yfir 30 ár og lengst af yfirvélstjóri. Júlíus er hinn mesti áhuga og framfaramað- ur um málefni sjómanna. Hann hefir átt sæti í stjórn Vélstjórafél. Islands um 20 ár og annast þar margvísleg trúnaðarstörf. Hin síðari árin hefir hann átt mestan þáttinn í samningsgerð- um við útvegsmenn og jafnan lagt þar gott til. Júlíus var einn af hvatamönnum að stofnun F. F. S. I. og hefir verið fulltrúi Vélstj.félags- ins í sambandsstjórn og á sambandsþingum. Það er ósk „Víkings" að Júlíusar njóti sem lengst við í röðum sjómanna, hann skipar þar virðulegt sæti. Og þó nokkuð sé um liðið, þá leyfir hann sér að færa Júlíusi bestu árnaðar- óskir í tilefni af fimtugsafmælinu. Ég verð að segja, að lífsvonin var lítil. Va|r þá rætt um, hvað taka skyldi til bragðs, en fá úrræði sáust. Meðan á þessum umræðum stóð, sáum við hvar ,,Sæbjörg“ kom með ára- bát aftan í og stefndi í áttina til okkar. Lífs- vonin glæddist af nýju — en víst var það, að úr ,,Sæfaranum“ varð okkur ekki náð. Við urðum að komast niður á skerið, hvað sem það kostaði. „Sæfarinn“ lá hreyfingar lítill, fullur af sjó, með síðuna brotna inn. Sá var siður hér á þessum dögum, að árar fylgdu hverjum vélbát. Við losuðum ár og brúuðum með henni af hástokk bátsins niður í skerið. Tilætlunin var sú, að einn okkar henti sér í senn út á árina og renndi sér á henni niður á skerið, en hinir; sem í bátnum voru, héldu henni stöðugri á meðan. Eftir nokkrar tilraunir heppnaðist Ste- fáni Erlendssyni að henda sér með snarræði á árina og komast eftir henni niður á skerið. Hélt hann svo í endann sín megin meðan við hinir rendum okkur niður. Gekk þetta allt vel og farsællega og langtum betra en áhorfð- ist. Vorum við svo allir brátt teknir af sker- inu og fluttir í land. En „Sæfarann" dró út af skerinu og sökk hann þar. Þegar í land kom, var tekið á móti okkur með hinum mestu ágætum og allt hugsanlegt fyrir okkur gert. Geymi ég það í þakklátri endurminningu.“ — „Þakka þér nú fyrir þetta, Tómas minn. Hefir þú ekki eitthvað fleira að segja?“ „Nei, ekki að sinni. En þess bið ég samt, að „Víkingur- inn“ megi lengi lifa og vænt þætti mér um, að hann vildi skila kærri kveðju minni til allra gömlu hásetanna minna og annara þeirra sjó- manna víðsvegar um landið, er ég þekkti og átti samskipti við, meðan ég var og hét — sjó- maður!“ — V. VÍKINGUR 24

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.