Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1941, Blaðsíða 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1941, Blaðsíða 9
þegar þau fara að.þorna. Annarstaðar er það vani, að hafa barefli eða þjót, til þess að slá á netið, þegar það er þornað....“. Bezt sé, að þjótur þessi sé „gjörður úr spanskreyr, sívalur, sléttur utan, beygjanlegur en þó staðgóður“. — Þá snýrJón Sigurðsson sér aftur að því, hvernig bezt sé að leggja netin. Nauðsynlegt sé að hafa „íhvolft trog“ fyrir hvert net, til þess að þau flókni ekki, þegar verið er að leggja. Ræðir Jón Sigurðsson þetta atriði allnákvæmlega. — Þá talar hann um, að það sé viðsjárvert, að netin dragist mikið við borðstokkinn, „það slítur net- unum og níðir þau, oð margur fiskur dettur úr fyrir það, að netið gengur ekki eins liðugt og þarf“. — Til að bæta úr þessu eigi menn að fá sér netahjól eða kefli, sem gjörir dráttin auð- veldari. Minnist hann þá aftur á kosti, sem fylgja því að menn leggi net sín saman. „Þá verða bæði netin vel lögð, og komi veður, þá verður hægra að bjarga til lands bæði skipi og mönnum, því að þá er lið nóg og gott. En þar að auki er sá hagnaður með, og hann er mikils verður, að þegar sumir verða veikir, og geta ekki séð um net sín, þá verða samlagsmenn þeirra hver öðrum til hjálpar og afli allra verður meiri, því öll veiðarfærin verða eins notuð eptir sem áður, og gjöra sitt fulla gagn; og þennan styrk veitir hver með ánægju, því hann veit að hann á sömu hjálpar von, ef hann fatlast, eins og hann hefir veitt hinum. Þetta er því ekki einungis öllum hagnaður, og hið bezta ráð til að auka aflann, heldur vekur það einnig fé- lagsunda og samheldni meðal fiskimannanna og í allri veiðistöðinni, sem er mjög affarasælt. — Með þessu móti mundu menn læra, að stærri bátar eru að tiltölu kostnaðarminni en hinir smáu, og þegar þeir eru vel mannaðir og út- búnir, geta þeir sókt betur sjó og aflað meira, og þegar samiögin eru geta hvorutveggja bát- arnir, hinir smærri og hinir stærri, beinzt að til að styrkja hverir aðra, eptir því sem hentug- ast er“. Leturbreytingarnar hef ég gert. En þessi ábending Jóns Sigurðssonar um sam- tryggingu meðal fiskimanna er mjög merkileg, ekki sízt fyrir þá sök, að hún kemur fram á þeim tíma, sem hér um ræðir, þegar allt ástand í sjávarútvegsmálum íslendinga var hið erfið- asta. Þá bendir Jón Sigurðsson á hversu mikils virði aukinn afli sé, yrði það „auðsuppspretta fyrir hinn gætna og hirðusama fiskimann, og fyrir allt landið, því að góð og dugleg fiski- mannastétt er meðal hinna nytsömustu stétta í landinu“. Jón Sigurðsson átelur þær öngultegundir, sem notaðar eru, og segir, að önglarnir séu klunnalegir, en það megi ekki vera, því öngl- ar og haldfæri séu helztu veiðarfæri á íslandi. En þegar menn sjái „hvaö heppnast með þess- um staurum, þá geta menn getið nærri hvað fiskast mundi á miklu skemmri tíma á öngla, sem væru minni og vel lagaðir, með ásteyptum tinfiski, sem greypt væri í perlumóðir, svo að hann glitraði sem mest í sjónum“. Slíka öngla með perlumóðir eða agnöngla þurfi fiskimað- urinn að afla sér. Fylgja nákvæmir uppdrættir af þessum öngultegundum. Ef perlumóðir væri greypt í öngulinn, þá glitrar hann sem síld væri, en síldin sé sú fiskitegund, sem þorskur- inn sækist mest eftir. Jón Sigurðsson býður að útvega mönnum fyrirmyndir að önglum þeim, sem hann mælir með. Urðu það ekki orðin tóm, því að þegar hann kom upp til Islands árið 1859, þá hafði hann með sér sýnishorn af ýms- um veiðarfærum, og m. a. af önglum. Hélt hann sýningu á þessum veiðarfærum, en gaf þau Húss- og bústjórnarfélagi Suðuramts, þeg- ar hann hélt af landi burt. Félag þetta hélt síð- ar sýningar á veiðarfærunum, og urðu þær hin þarfasta nýjung, enda kjöri félagið Jón Sig- urðsson heiðursfélaga sinn 28. jan. 1860. Klunnalegir önglar spilla aflanum, segir Jón Sigurðsson, og góðir önglar ganga úr sér, ef ekki er vandlega með þá farið. „Þessvegna ætti hver sá fiskimaður, sem fær sér aungul með perlumóðir í, eða slíka agnaungla, sem vér skýrðum frá, að þurrka upp aungul sinn vand- lega, jafnskjótt og hann hættir að renna honum .... og leggja hann síðan í hulstur....“. Sama gildi um fiskihnífinn. Honum þarf að halda „beittum og spegilfögrum, svo aldrei falli á hann ryð eða skarn“. „Þetta gjöra hinir ágætu hollenzku og ensku fiskimenn. ...“. Ýmsar ráðleggingar gefur Jón í sambandi við lóðir og lagningu þeirra. Þegar lóðin liggur með botni, þá „þeggst aungullinn þar með, því hann er þó svo þungur, að hann leggst til botns“. — Þetta dregur úr aflanum. Ráðið við þessu seg- ir Jón, að sá að festa lítinn „korksnúð á taum- inn, skammt frá önglinum“. „í stað þess að aungull með beitu lá kyrr áður, þá halda snúð- arnir honum nú frá botninum, svo að aungl- arnir með beitunni standa eins og hnappar upp frá botninum, og blasa við, þegar fiskurinn syndir hjá. Þorskurinn stendst ekki þessa freistni.... “. Öllu þessu fylgja nákvæmir upp- drættir. Allar tafir við lóðarlögnina „eru bæði til spillingar veiðinni, og þar að auki geta þær marg opt stofnað mönnum og skipi í háska, þeg- ar veður gánga að“. Ráðið við þessu sé að nota „lóðarkvíslina“. En lóðarkvísl þessi er nokkurs konar gaffall með mörgum álmum. „Nú þegar hver öngull er beittur, skipar maður þeim í fyrstu álmu kvíslarinnar, hverjum af öðrum, fyrsta önglinum innst og svo frameptir. Þegar VÍKIN0UR 9

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.