Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1941, Blaðsíða 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1941, Blaðsíða 22
T undur duf lar ekið Skrif blaðsins um tundurduflarekið hafa vak- ið mikla athygli, eins og til var ætlast, meðal þeirra, sem málið heyrir undir. Og sjómenn- irnir hafa snúið sér til stjórnar Farmannasam- bandsins um að halda því stöðugt vakandi, með- an þörf gerist, sem verður gert. Margt hefir mönnum verið óljóst um tundurduflin sjálf og gagnvart eyðingu þeirra, og hefir því ritstjórn- in snúið sér til forstjóra skipaútgerðar ríkisins, sem haft hefir umsjón með þessum málum af ríkisins hálfu og Péturs Sigurðssonar sjóliðs- foringja, sem hefir haft framkvæmdir á hendi um eyðingu rekdufla. Og segist þeim svo frá: Fyrsta rekdufl, sem frétzt hefir af hér, rak á land á Breiðuvík eystra um 16. des. 1940, og mun þetta dufl hafa verið flutt á brott af brezku herstjórninni nokkrum dögum síðar. í sama mánuði barst önnur tilkynning um rekdufl, en þegar nánar var að gætt, þá reyndist hér ekki vera um rekdufl að ræða. Frá ársbyrjun 1941 og þar til nú, hafa alls borizt 154 tilkynningar og upplýsingar um tundurdufl, bæði á reki eða þá rekin-á land. Af þessum duflum hafa 118 verið á reki, 25 á landi en 11 sprungu í lend- ingu. Af þesum duflum hefir 41 verið sökkt, 16 gerð óvirk og flutt burtu, en 1 sprakk, er verið var að sökkva því. Þegar meðtalin eru duflin, sem sprungu í lendingu, hafa því alls 69 dufl eyðilagzt eða verið eyðilögð, af hinum 154, sem vitað er um. Mest bar á rekduflum í marz-mánuði, en þá bárust 35 tilkynningar (af þeim voru eyðilögð 20), en minst í maí, eða alls 9). Bróðurparturinn af þeim duflum, sem eyði- lögð hafa verið, eiga íslenzku varðskipin Þór, Óðinn og Sæbjörg, sem samtals hafa eyðilagt eða gjört óvirk um 40 dufl. Með v.s. Þór og v.s. Óðinn voru um tíma brezkir tundurduflasér- fræðingar, sem gerðu þau dufl óvirk, er rekið höfðu á land. Um starfið við eyðingu duflanna segir Pétur Sigurðsson svo: Um miðjan marz, eða þegar mest bar á rek- duflunum og kröfur almennings fóru að verða all-háværar um eyðingu þeirra, var v. s. Þór VÍKINGUB sendur út til höfuðs þeim. Með honum var brezkur tundurduflasérfræðingur, eins og áður er sagl. Var Þór að þessum starfa þar til í júní- byrjun, en þá var hann tekinn í vöruflutninga. Til þess að eyðileggja duflin, voru notaðir venju- legir rifflar, sem brezka herstjórnin lánaði skip- inu. Er Þór var látinn hætta, var v. s. Óðinn vopnaður og síðan Sæbjörg, er hún var tekin til gæzlustarfa, — og núna fyrir skömmu síð- an fékk vitaskipið Hermóður riffla og skotfæri til sömu notkunar. Duflunum er sökkt á þann hátt, að 1—2 menn skjóta á duflið á meðan skipið er látið reka í svo sem 2—300 metra fjarlægð frá því. Ef því verð- ur við komið, standa skytturnar einhvers stað- ar þar, sem vænta má, að þeim yrði hlífð af, ef duflið kynni að springa, og auk þess er helzt engin óþarfa umferð um þilfar leyfð á meðan. Venjulegast nota skytturnar allt að 100 skot- um hver eða meira, áður en duflið fer að sökkva, en það gerir það ekki, fyrr en sjór gengur inn um eitt eða fleiri göt á því. Því miður nægir ekki aðeins að riffilkúla hitti duflið, því að það er úr þykku járni og þarf lítið til þess að kúl- an skriki af, ef hún ekki kemur beint á belg- inn. Þegar séð er, að duflið er að sökkva, er hætt að skjóta að því og beðið þar til það er horfið sjónum. Stundum getur þessi bið orðið allt að 4—5 klst. Einu sinni hefir það skeð, að dufl hefir sprungið, er verið var að sökkva því. Það var botnfast dufl, sem v.s Sæbjörg var að eiga við norður af Mánáreyjum. Það sprakk um 15—20 mínútum eftir að seinasta skoti var hleypt af að því. Er slíkt einstakt fyrirbrigði, sem sýnir, hve nauðsynlegt er að gæta allrar varúðar við þessi tæki. í björtu og góðu veðri sjást rekduflin yfir- leitt vel, en ef nokkur gráði er á sjó eða sér- staklega ef duflin mara í hálfu kafi, má búast við að þau sjáist nokkuð skammt, eða ekki yfir hálfa sjómílu. Öll rekduflin, sem gerð hafa verið óvirk, hafa rekið á land, nema eitt, en það tók v.b. Óðinn úti á Húnaflóa, dró það til lands og tók það síð- an um borð. 22

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.