Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1946, Page 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1946, Page 5
frumskógunum töldu menn trumbuslögin, en á sléttunum töldu hinir ríðandi riddarar reykgos, sem voru framleidd á þann hátt, að votum á- breiðum var fleygt yfir eldinn og kippt burtu aftur. Undanfari ritsímans voru aftur á móti merkjastengurnar, sem voru með hreyfanlegum álmum. Slík tæki voru notuð til að koma skip- unum Napoleons til herja hans. Hugmynd framkvæmd. Þegar Scully náði höfn hafði Morse teiknað hugmynd sína að móttökutæki og samið merkja- kerfi úr punktum og strikum, sem þýða mátti í orð. Samt sem áður tók það Morse nokkur ár að smíða tækin. Það var ekki fyrr en 1835. Fyrstu tilraunirnar voru gerðar 1837, yfir 510 metra langan rafmagnsvír. Hugmyndir Alfred Wail voru hagnýttar. Hann bauð Morse fjár- styrk, en heimtaði hlutdeild í væntanlegum hagnaði. Faðir hans lánaði 2000 dali til frekari tilrauna og bauðst til að lána verksmiðju sína, Speedwell Foundry. Þessi uppörfun ýtti undir Morse. Hinir rólegu dagar málarans voru liðnir. Innan eins árs frá því að félagið var stofnað, gátu þeir sent og tekið á móti skeytum yfir 5 km. vegalengd í Morristown New Jersey. Morse leitaði nú á náðir þingsins, en mætti háði og spotti margra þingmanna. Eftir 6 ára baráttu tókst honum loks að fá samþykkta 30 þús. dala fjárveitingu til að leggja tilraunaritsímalínu frá Washington til Baltimore. Síðan þessi lína var lögð 1844, hefir ritsímalínan náð ótrúlegri lengd. Eftir eina öld er ritsímakerfi Bandaríkj- anna 340.000 km. á lengd, með um 3.7 milj. km. af vír. Starfsliðið telur 64.400 manns og stöðv- arnar eru um 40 þús. talsins. 1941 var lokið við að leggja ritsímalínur 52 þús. km. að lengd, sem eingöngu voru notaðar fyrir veðurfregnir í sambandi við póst- og farþegaflug. Byltingakennd áhrif. Áhrif hraðans á samskiptin í heiminum ollu byltingu, bæði viðskiptalega og menningarlega. Nú var hægt að reka viðskipti heimshornanna á miíri. i-iernaðartæknin breyttist; skipanir bárust xiú a cinu augnabliki fram í fremstu víglínu. í ófriðnum 1812 háði Andrew Jackson orrustuna við New Oreans eftir að friður hafði verið sam- inn, en 11. nóv. 1918 vissi allur heimurinn sam- dægurs um ófriðarlokin. Fleiri uppfinningar fylgdu fast eftir á sviði samgangnanna. Edison fann brátt leið til að senda 4 skeyti samtímis eftir sama vír. Auðkýf- ing að nafni Cyris Field dreymdi um að tengja saman, ekki aðeins ríki, heldur heimsálfur. Draumur hans rættist dag nokkurn 1858. 4 skip, sem höfðu spunnið úr sér ritsímaþráð eftir botni Atlantshafsins, mættust í miðju hafi, og héldu síðan heim til stöðva sinna, Agamemnon og Valoros til frlands en Gargon og Niagara til Bullflóa við Nýfundnaland, 3000 mílur í burtu. Þá skeði sá stórviðburður að rafstraumur þaut neðansjávar milli heimsálfanna. Victoria Eng- landsdrottning og Buchanan Bandaríkjaforseti skiptust á kveðjum. Skeyti drottningarinnar var á þessa leið: Til forseta Bandaríkjanna, Washington: „Drottningin er sannfærð um, að forsetinn tekur undir þá innilegu ósk, að rafmagnsþráður sá, er nú tengir Stóra-Bretland og Bandaríkin, verði hlekkur til styrktar þeirri vináttu, sem byggð er á sameiginlegum áhugamálum og gagn- kvæmri virðingu". Forsetinn svaraði: Til hennar konungl. há- tignar Bretlandsdrottningar: „Megi Atlants- hafsritsíminn fyrir blessun Drottins verða var- anlegt band friðar og vináttu milli skyldra þjóða og verkfæri, skapað af guðlegri forsjón, til þess að útbreiða trú, menningu, frelsi og mannrétt- indi um gjörvallan heim“. Þetta var á bernskudögum uppfinninganna á sviði rafmagnsins; til alls þessa þykir nú harla lítið koma. Talsíminn var fundinn upp af Alexander Gra- ham Bell eftir að hann hafði glímt við hann í mörg ár ásamt tryggðarvini sínum, Watson. — Hann heyrði rödd Bell segja kvöld nokkurt ár- ið 1875: „Komdu, Watson, ég þarf að finna þig“. Þetta var fyrsta setningin, sem heyrðist í síma- tæki. 40 árum síðar, 1915, fór fram fyrsta lang- línusamtalið frá New York til San Fransisco. Þá voru þessi orð Bell endurtekin. Og enn fleygir þróuninni áfram. ítalinn Gug- lielmo Marconi sendi fyrsta loftskeytið í garði föður síns 1895. Árið eftir sendi hann skeyti 3 km. Fyrsta loftskeytið var sent yfir Ermar- sund 1897. 1901 tók Marconi á móti fyrsta loftskeytinu yfir Atlantshaf, í Foldhu á Englandi, frá höfða nokkrum á Nýfundnalandi. Þýðing loftskeyt- anna fyrir björgunarstarfsemi hlaut almenna viðurkenningu 1909, þegar loftskeytamaðurinn á e.s. „Republick“, Jack Binns, náði sambandi við skip, sem björguðu skipshöfninni eftir að skip hans hafði lent í árekstri. 1910 var fyrsta loftskeytið sent frá flugvél. Stórkostlegar framfarir hafa orðið á sviði loftskeyta og annarar tækni; ennþá er mörgum þeirra haldið leyndum, en þær munu koma í Ijós þegar er veraldarhjólið snýst snurðulaust á ný. G. Jensson. V í K I N G U R 165

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.