Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1946, Qupperneq 18
IJR VÉLARÚMIISIU
Verða mótorskip framtiðarinnar
ineð skiptiskrúfu?
Karlstads Mekaniska Verkstad í Kristinehamn, Sví-
þjóð, hefur nú í áratugi smíðað vatnstúrbínur í verk-
smiðjum sínum. Nú á seinni árum hafa verksmiðjur
þessar smíðað vatnstúrbínur með skiptanlegum skóflum
í gangi, með vökvaþrýstingi. Uppfinninguna að þess-
ari túrbínu átti sænski prófessorinn V. Kaplan, og ber
bún því hans nafn: „Kaplantúrbína“.
Fyrsta stóra Kaplantúrbínan var smíðuð fyrir sænska
í'íkið, og var hún sett í vatnsaflstöðina við Lilla Edet.
Þvermál á skófluhjóli þessarar túrbínu var 5,8 m. —
Reynsla Kaplantúrbínanna hefur verið svo góð, að nú
eru þær af ýmsum stærðum útbreiddar um ailan heim.
Stærsta Kaplantúrbínan, sem til þessa hefur verið
smíðuð, afkastar með fullu álagi 60.000 virkum hest-
öflum. Þvermál skófluhjólsins er 8 m., og vegur túr-
bínan samtals 160.000 kg. Þess má í þessu sambandi
geta, að vatnstúrbínurnar við Sogið, sem tóku til starfa
1937, eru frá Karlstads Mekaniska Verkstad.
Verkfræðingum Karlstads verksmiðjanna var það
mjög ljóst, hver nauðsyn var á, að gerð yrði endingar-
betri, einfaldari og stærri skiptiskrúfa fyrir skip en
áður hafði þekkzt, því að skiptiskrúfur þær, sem not-
aðar voru á minni fiskibátum, entust illa, og reynslan
var stundum sú, að viðhaid skiptiskrúfu og búnaður
Skiptiskrúfa.
hennar var oft eins kostnaðarsamt og viðhald mótors-
ins, sem dreif hana.
Hin skamma ending á skiptiskrúfum þeim, sem fram-
leiddar voru, stafaði hvað mest af ófullkomnum smurn-
ingsbúnaði og að vatn og óhreinindi gátu smogið inn á
núningsfleti blaðanna, skiptitein, skiptirör og oft alla
leið fram í skiptilegu, sem oftast var kúlulega, er illa
þoldi salt vatn. Skiptiskrúfan og búnaður hennar var
einnig oft verri en skyldi af sparnaðarástæðum.
Mörgum sjómönnum var fullkunnugt um, hverja yfir-
burði skiptiskrúfan hafði fram yfir fastaskrúfuna, þar
sem með skiptiskrúfunni er ávallt hægt að láta mótor-
inn ganga með hentugasta snúningshraða, svo að hann
skili hæsta notagildi, þótt erfiðið að drífa skipið áfram
aukist, svo sem á hlöðnu skipi, í mótvindi, eða með skip
eða veiðarfæri í eftirdragi, þar sem aftur á móti mótor
með fastaskrúfu missir sinn rétta snúningshraða og
jafnframt afl, þegar erfiðið að drífa skipið áfram
eykst.
Ef fastaskrúfan er höfð svo lítil (iétt), að mótorinn
nær að drífa hana upp í. fullan snúningshraða í sterk-
um mótvindi og sjógangi eða á togveiðum, er útilokað
með sömu fastaskrúfu að hagnýta allt afl mótorsins í
lausu skipi, í góðu veðri eða á undanhaldi. Af ótta við
viðhaldskostnað skiptiskrúfunnar hafa margir fram á
þennan dag kosið fasta skrúfu, þó að henni hafi orðið
að fylgja gírskipting, í smærri fiskibáta, sem gefizt
hefur misjafnlega vel, og sumar gerðir gírskiptinga
hafa reynzt alldýrar í viðhaldi.
Eftir að Kaplantúrbínan með skipsskrúfulagi og
vökvadrifnum skiptiútbúnaði hafði um lengri tíma
reynzt afburða vel, yarð það úr, að verkfræðingar Karl-
stads verksmiðjanna ákváðu að smíða skiptiskrúfur með
sama skiptiútbúnaði fyrir skip.
Tilraunir voru gerðar á árunum 1926—1928, skrúf-
urnar þrautretyndar í þar til gerðri tilraunastöð, sem
verksmiðjurnar eiga og sérstaklega er gerð fyrir skips-
skrúfur. Frá 1928 hafa Karlstads verksmiðjurnar smíð-
að skiptiskrúfur, er þeir nefna Kamewa-skrúfur fyrir
skip frá ýmsum löndum við mótora af stærðunum 125—
7000 virk hestöfl.
Skal nú reynt að lýsa að nokkru Kamewa-skrúfunni:
Allir núningsfletir ganga í olíubaði, og þrýstingui' á
olíunni er ávallt meiri innanfrá, — einnig þó að vélin
sé ekki í gangi, -— en utanaðkomandi þrýstingur vatns-
ins. Óhreinindi eða vatn kemst því ekki inn í skipti-
búnaðinn.
Tvöfaldar þéttingar fyrirbyggja, að olían komist út
eða vatn inn í skrúfuhausinn, þó að olíuþrýstingur-
inn falli.
Skiptiteinn eða skiptirör er ekki til, en í þess stað
er skrúföxullinn gegnumboraður fyrir þann vökva, sem
hreyfir skii)tiútbúnaðinn í ski'úfuhausnum og- jafnframt
smyr alla slitfleti.
Vökvadælurnar eru tvær fyrir skiptinguna, önnur
drifin af hjálparvél, þar sem hún er fyrir hendi, en
annars eru báðar drifnar af aðalvél. Önnur dælan er
nægileg, hin er til vara.
öryggisfjöður er komið fyrir í skrúfuhausnum þann-
ig, að þó svo vildi til, að vökvaþrýstingurinn félli vegna
bilunar, stillir fjöðrin blöðin fyrir fulla ferð áfram,
svo að ekki þarf að stöðva ferð skipsins, á meðan við-
gerð fer fram, eða þar til að landi er komið.
Skrúfuhausinn og öxullinn ei'u gerðir svo sterkir,
17B
V í K I N G U R