Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1946, Qupperneq 26

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1946, Qupperneq 26
FORTÍÐIN: Eitt hinna gömlu áraskipa, Gideon frá Vestmannaeyjum. Nú er hin mesta gjörbylting hvað snertir skipaflota landsmanna. Hingað stefna nú á næstu tímum stærri og’ betri skip en nokkru sinni fyr. Þess má gjarnan minnast, að sjómennirnir á áraskipunum héldu uppi hinum íslenzka sjómannsheiðri meðan þjóðin átti við rammastan reip að draga. Þeim ber þvíheiður og þökk. Framh. af bls. 183. var flotinn enn aukinn, og enda þótt verzlun heimsveldisins væri fyrst og fremst í höndum sérleyfisfélaga, varð ekki um það efazt, hver mátti sín mest á vettvangi síldveiðanna. Hann hélt fast við stefnu Cromwells og efldi sjávar- útveginn sem mest til þess að tryggja flotanum dugandi sjómenn á hverjum tíma. Aðeins ensk- um skipum var leyft að flytja síld til enskra hafna, og sérhverju veitingahúsi landsins var gert að greiða sérstakan skatt til Hins konung- lega fiskveiðafélags Stóra-Bretlands, svo og að kaupa að minnsta kosti eina tunnu síldar ár hvert. Skipum, sem stunduðu síldveiðar, voru veitt sérstök verðlaun. Fyrir nokkrum árum nam síldarútflutningur Breta fimm milljónum sterlingspunda ár hvert. Og síldarneyzla brezku þjóðarinnar óx með ári hverju. Þjóðverjar hafa hagnýtt síldina mjög í hern- aðarþágu- Þeir nota hana til framleiðslu sprengiefnis. Úr hundrað og tuttugu síldum fæst sprengiefni, sem nægir í lítið tundurskeyti. En auk þess unuu þjóðverjar margvísleg önn- ur efni úr fiski þessum, og lögðu því hina mestu áherzlu á síldariðnaðinn. Adolf Hitler komzt þannig að orði, að hann þarfnaðist tíu þúsund smálesta síldar að meðaltali vikulega. En sá hluti brezka flotans, sem hindraði fiskiveiðar fyrir Hollandsströnd- um, kom í veg fyrir það, að hann fengi aflað teljandi síldar að minnsta kosti saman borið við það, sem kemur fram í þessum ummælum hans. Það má því með sanni segja, að síldin komi enn við sögu og ákveði jafnvel örlög þjóða eins og forðum daga. 1B6 V I K I N □ U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.