Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1946, Page 27

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1946, Page 27
íslenzkur skipstjóri og uppfinningamaður Eftir að hafa siglt um tveggja ára bil frá Kaupmannahöfn, var ég hinn 30. ágúst 1901 lög- skráður í Hamborg sem timburmaður og matrós á briggskipið „Dorane“ frá Fanö. Var ég síðan á skipi þessu, unz ég lét afskrá mig á sama stað 29. marz 1902. Skipstjórinn hét J. P. Sigurðsson, íslendingur að ætt. Sigurðsson var Skagfirð- ingur, hafði farið mjög ungur í siglingar (14— 16 ára), og mér vitanlega aldrei til íslands kom- Þegar Sigurðsson hætti að sigla varð hann forstöðumaður heimavistarinnar við sjómanna- skólann í Svendborg. Síðan hef ég ekkert um hann heyrt. Sé hann enn á lífi, er hann orðinn gamall maður. Þegar „Captain Sigurdsson“ er nefndur við danska skipstjóra, kannast flestir við nafnið. Ef bætt er við, hvort þeir þekki „Sigurdsson Pat- ent Lodd“ (dýptarmæli), svara allir játandi. — ið síðan. Þegar ég var með honum, var hann bú- settur í Nordby á Fanö. Þessa ferð mína á Dorane fórum við frá Ham- borg til Bahia í Brasilíu og vorum 82 daga á leiðinni. Flutningur okkar var ýmis konar vörur, sem kallað er (General Cargo). Frá Bahia fórum við til Rio de Janerio og tókum þar flutning, salt- aðar nautshúðir og nautshorn. Vorum við 92 daga á leiðinni þaðan til Hamborgar með við- komu í Falmouth í Englandi. Þetta þótti ekki neitt sérlega seinlegt ferðalag þá, en þætti það líklega nú. Sigurðsson hafði byrjað sjómennsku sína á seglskipum, og var á þeim, að því er ég vissi bezt, alla sína sjómenskutíð. Dýptarmæli þenna fann J. P. Sigurðsson upp. Hef ég heyrt skipstjóra segja, að hann væri með beztu dýptarmælum og sé notaður mikið í dönsk- um skipum og jafnvel víðar. J. P. Sigurðsson var sérstakt prúðmenni í allri framkomu og mjkill dugnaðarmaður. Heyrði ég aldrei neinn undirmann hans tala óvirðulega um hann, og var það óvanalegt í þá tíð. Sigurðsson var einkar laghentur, og lagði á margt gjörva hönd. -—- Fylgir hér mynd af Do- rane, tekin eftir málverki, er hann málaði sjálf- ur af skipi sínu. Tryggvi Jóakimsson. ■ VIKINGUR 187

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.