Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1946, Qupperneq 28
GuSm. Jensson:
Sjómenn og samninganefndir
Árið 1943 sendi 7. þing Farmanna- og fiski-
mannasambands íslands áskorun til Alþingis og
ríkisstjórnarinnar þess efnis, að FFSl. og Al-
þýðusambandi fslands yrði leyft að hafa full-
trúa frá samtökum sjómanna í nefnd þeirri eða
nefndum, sem framvegis önnuðust sölu sjávar-
afurða. Svo var hægt í sakirnar farið, að ekki
var krafizt atkvæðisréttar í nefndinni, þessum
fulltrúa til handa. Tilmælunum var aldrei svar-
að, og við það situr enn í dag. Enn eru sjó-
menn algerlega hundsaðir og lokaðir úti, þegar
semja á um sölu sjávarafurða, taka ákvarðan-
ir um hin raunverulegu laun þeirra.
Þótt þessi sé venjan þegar sjómenn eiga í
hlut, þá eru þess víst engin dæmi, að sjómaður
eða verkamaður sé sendur út af örkinni þegar
gera á innkaup fyrir verzlunarstéttina. Væri
það þó engan veginn fráleitt frá almennu sjón-
armiði séð, ef innkaupin eiga að gerast með
hag neytandans fyrir augum, en ekki seljand-
ans eingöngu, eins og nú er.
Vel má vera, að ríkisvaldið telji sér trú um,
að því fleiri kandidatsgráður, sem krydda slík-
ar nefndir, því betur sé til þeirra vandað. Þaðan
sé ólíkra afreka að vænta en frá hinum lítt
menntuðu og láglaunuðu fiskimönnum. Skrif-
púltsmenn þeir, sem valdir hafa vei’ið í slíkar
nefndir, hafa aldrei verið í vafa um hæfni sína
til starfsins. Víst er um það, að ekki hafa þeir
þurft að kynna sér hjá samtökum sjómanna,
hver laun fiskimenn teldu sig þurfa að hafa til
samræmis við aðrar stéttir í landinu, miðað við
lengd vinnudags og vinnuafköst. Sjómenn og út-
gerðarmenn eiga að láta sér nægja með það,
sem þessar fræðimannanefndir fá áorkað hverj u
sinni. Og er það þó sannast sagna, að stundum
virðist samningasnillin ekki mega minni vera
frá fslendinga hálfu.
íslenzkum fiskimönnum er það naumast lá-
andi, þótt þeir t. d. ljái því eyrun, er sænskir
stéttarbræður þeirra segja þeim, að samninga-
nefnd sú, sem send var héðan til Svíþjóðar í
fyrravor, hafi orðið þeim þungur ljás í þúfu
og farið illa að ráði sínu gagnvart síldveiðisjó-
mönnum og útgerðarmönnum. Hvort fiskimenn-
irnir íslenzku leggja trúnað á þessar sögur Sví-
anna eða ekki, læt ég ósagt. Það er næsta ótrú-
legt, að íslenzku samninganefndinni hafi ekki
verið að fullu kunnar kröfur þær, sem sænskir
sjómenn og útgerðarmenn ætluðu að gera, svo
mjög sem hagsmunir þeirra fara saman við
hagsmuni sjómanna og útgerðarmanna hér.
Það er víst, að saltsíldarverðið síðastliðið
sumar var alltof lágt, miðað við framleiðslu-
kostnað, og skipting þess neðan við allar hellur.
Þrjátíu og tvær krónur fengu sjómenn og út-
gerðarmenn fyrir að leita síldarinnar út í hafs-
auga á dýrum skipum, veiða hana og flytja
upp á bryggjur, en 58 krónur komu í þeirra
hlut, sem settu síldina í tunnur og veltu þeim
um borð í flutningaskip.
Eigi slíkt mat á vinnu og slíkur útreikning-
ur á kaupgreiðslum að ríkja hér í framtíðinni,
þá hlýtur sú spurning að vakna, hvort ekki sé
rétt að sjómenn setji síldina sjálfir í tunnur og
komi þeim um borð í flutningaskipin, og það því
fremur, sem heyrzt hefur, að Svíarnir, sem
söltuðu sjálfir um borð í skipum sínum, hafi
fengið 170,00 kr. fyrir tunnuna.
Er ekki tímabært að sjómenn og útgerðar-
menn semji framvegis sameiginlega um sölu
sjávarafurða, annist um verkun þeirra og komi
þeim á erlendan markað, í stað þess að halda
áfram að deila innbyrðis um skiptingu þess litla
hundraðshluta fiskverðsins, sem þeim er út-
hlutaður ?
Sjómannadagurinn
vax’ hátíðlegui' haldinn um land allt sunnudaginn 2.
júní. Voi’u hátíðahöldin hin veglegustu, svo sem vera
bar. Hófust þau kl. 8 að morgni, er fánar voru dregnir
að hún á skipum á Reykjavíkux-höfn og húsum víðsveg-
ar um bæinn. Þá hófst og sala á merki dagsins og Sjó-
mannadagsblaðinu.
Eftir hádegi söfnuðust sjómenn saman undir merkj-
um félaga sinna og gengu í skrúðgöngu kringum Tjörn-
ina og inn á Austui’völl. Þar hófst útisamkoma kl. 2.
Biskupinn yfir Islandi, Sigurgeir Sigui’ðsson, minntist
látinna sjómanna, en að því búnu fluttu i’æður Emil
Jónsson, samgöngumálai'áðheri’a, Halldór Þoi’steinsson,
útgerðai’maður og Sveinn Jónsson, sjómaður. —
Um kvöldið voru sjómannahóf að Hótel Borg og í
Sjálfstæðishúsinu.
Mikil og vegleg hátíðahöld fóru og fram í sjávai’-
þorpum og kaupstöðum víðsvegar um land.
1BB
V I K I N G U R