Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1946, Blaðsíða 29
SJÓMANNAKÓRINN
Á ÍSAFIRÐI
Um nokkurt skeið hafa sjómenn á ísafirði æft söng
fyrir Sjómannadaginn og önnur meiri háttar tækifæri.
Þessi samtök hafa orðið vísir að því að stofnaður var
Sjómannakór fsafjarðar í marzmánuði í vetur. Mun
þetta eina söngfélagið á landinu, sem skipað er sjó-
mönnum eingöngu.
Tómstundir sjómanna eru stopular. Það er miklum
erfiðleikum bundið fyrir þá að halda uppi slíkri starf-
semi sem kórsöngur krefst. Þeim mun lofsverðari er
sá áhugi, sem ísfirzku sjómennirnir sýna, og sú félags-
lund, sem þarf til að halda saman stórum hóp við hin
erfiðustu ytri skilyrði.
Sjómannakór fsafjarðar var stofnaður af 26 sjómönn-
um. Menn þeir, er kórinn mynda, hafa sungið undan-
farin tvö ár á Sjómannadaginn, bæði við guðsþjónustu
og á kvöldskemmtun dagsins.
í vetur æfði kórinn af kappi þegar landlegur voru.
Söng hann á 30 ára afmæli Sjómannafélags Isafjarð-
ar, og þótti vel takast. Markmið kórsins er, að efla söng
og félagslíf innan sjómannastéttarinnar, og skemmta
á hátíðis- og tyllidögum sjómanna. Er þess að vænta, að
það beri góðan ávöxt.
Stjórn kórsins skipa:
Asgeir Ingvarsson, formaður kórsins og söngstjóri.
Einar Kjartansson, skipstjóri, ritari kórsins.
Björn Guðmundsson, vélstjóri, gjaldkeri kórsins.
Sjómannablaðið Víkingur hefur komizt yfir mynd af
meðlimum Sjómannakórsins og fylgir hún þessum lín-
um. Þrjá af meðlimum kórsins vantar á myndina.
Þessir menn eru á myndinni:
Sitjandi frá vinstri: Þorleifur Örnólfsson, sjómaður. Einar Kjartansson, skipstj., ritari kórsins. Ásyeir Ingn-
arsson, söngstjóri, formaður kórsins. Björn Guðmundsson, vélstjóri, gjaldkeri kórsins. Eggert Samúelsson, sjó-
maður. Gunnar Pálsson, skipstjóri. — Miðröð frá vinsírt'.- Einar Jóelsson, sjómaður. Gestur Sigfússon, sjó-
rnaöur. Kristján Jónsson, sjómaður. Óslcar Sumarliðason, sjómaður. Lárus Sigurðsson, skipstjóri. Hermann
Jóhannsson, sjómaður. Karl Jónsson, vélstjóri. Jón Sn. Bjarnason, sjómaður. Guðm. Ólafsson, sjómaður. —
Aftasta röð frá vinstri: Guðjón Jóhannsson, sjómaður. Jón Egilsson, vélstjóri. Halldór Gíslason, sjómaður.
Kristján Kristjánsson, sjómaður. Ragnar Maríasson, sjómaður. Daníel Rögnvaldsson, sjómaður, Hrólfur Pét-
ursson, sjómaður. Magnús Guðnason, vélstjóri. Halldór Guðjónsson, sjómaður.
Sjómannablaðið Víkingur óskar Sjómannakórnum á ísafirði góðs gengis og langra lífdaga.
V I K I N E U R
1B9