Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1946, Page 43

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1946, Page 43
til kvölds. Elías hugsaði málið í fiýti, eiginlega var hann búinn að syndga með eina flöskuna — hann hafði brotið tíunda boðorðið og ágirnst flöskuna af Black and White sem sást bezt í gegn um rifurnar á vín- skápnum — og fyrst hann hafði syndgað lítið gat hann eins syndgað mikið. Hafi maður sagt A verður maður að segja B, stendur einhversstaðar. Þar með varpaði hann öndinni og tók dírkarann. Og nú var Elías kominn út á hina hálu braut. Sem rausnarlegur gestgjafi bauð hann Pétursson einn lít- inn — og fékk sér einn sjálfur til að vera með. Þeir fengu sér báðir einn í viðbót, og einn enn — og hættu svo með þeim fjórða. Svo boi'ðuðu þau kvöldmat af þeim vistum sem í húsinu voru, ásamt brauði og smjöri og ýmsu nýmeti úr bakpokum gestanna. Svo fengu þeir sér nokkra snapsa áður en þeir fóru að sofa og frúin fékk nokkur glös af kampavíni. Þannig gekk það í þrjá daga, þangað til frúin var orðin góð í öklanum. Það urðu þrír ógleymanlegir veizludagar. Pétursson og Elías þúuðust og sóru hvor öðrum eilífa vináttu — og meira að segja frúnni þótti orðið svo vænt um Elías, að hún táraðist þegar hún kvaddi hann. — Og lofaðu mér því, kæri vinur, sagði Pétursson, að heimsækja okkur þegar þú kemur heim úr fríinu, ég hlakka svo til að sjá þig aftur og endurgjalda þér gestrisni þína — hér er nafnspjaldið mitt með heimilis- fanginu. Elías tók við nafnspjaldinu en leit ekki á það fyrr en gestirnir voru úr augsýn. Þau veifuðu hvort til annars eins lengi og mögulegt var. Þegar Elías loks leit á nafnspjaldið varð hann skelf- ingu lostinn. E. Pétursson Yfirfangavörður. Hringbraut 5—7. Já, eitthvað á þessa leið var viðburðarásin í hinni myndauðugu frásögn Elíasar sjálfs — samkvæmt rétt- arskjölunum. Elíasi fannst hann að vísu ekki vera sakiaus eins og barn í móðurkviði — en að minnsta kosti eins og fermingarbarn. Þegar hann var kominn út að þessu með E. Péturs- son yfirfangavörð, greip dómarinn fram í fyrir hon- um: — Það er enginn fangavörður í öllu landinu sem heitir E. Pétursson! En Elías var ekki sleginn af laginu. — Það veit ég vel, en ég er vinur vina minna, ég sagði ekki rétta nafnið — það er það eina, sem ég hefi skrökvað í þessu máli — ég bjó E. Pétursson bara til. — Þér haldið þá fram, skaut dómarinn inn í, að yfirfangavörðurinn á Hringbraut 5—7 hafi verið með í þessu fyiliríi í kofanum, sem þér brutust inn í! — Nei, svaraði sá ákærði, Hringbraut 5—7 er heidur ekki til. — En hver var það þá, spurði dómarinn hastur í máli. — Ekki eitt orð af mínum munni! sagði Elías með virðuleika, — ég er ekki þannig maður að ég svíki félaga minn, yfirfangavörðurinn og ég erum vinir. — Ég tek út hegninguna einn — en herra dómari, þetta verður í tíunda sinn sem ég fæ dóm — það er heilt afmæli — og fastur viðskiptavinur eins og ég er, ætti að fá afslátt. cjur: r . Asgeir DaníeLsson Ásgeir Daníelsson, hafnarvörður og hafn- sögumaður íKeflavík varð sextugur 20 júní s.l. Ásgeir er fæddur á Yzta-Gili í Húnavatns- sýslu 20 júní 1886. Foreldrar hans voru Daníel Guðnason, Árnesingur að ætt, og Ingunn Jósa- fatsdóttir frá Ásgeirsá í Víðidal. Ásgeir flutt- ist þriggja ára gamall til Suðurlands og ólst upp á Miðnesi. Ásgeir hóf að stunda sjó innan við fermingu. Fimmtán ára gamall fór hann fyrst á þil- skip, og var síðan lengi á skútum, vélbátum og togurum. Eftir að Ásgeir hætti sjómennsku starfaði hann við afgreiðslu- og innheimtustörf hjá Guðmundi Kristjánssyni, skipamiðlara. Síðustu tíu árin hefur Ásgeir verið hafnar- vörður og hafnsögumaður í Keflavík. Hann er vinsæll röskleikamaður. VÍKINGUR 2D3

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.