Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1946, Blaðsíða 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1946, Blaðsíða 46
Aflaskipið Keflvíkingur i Aflahæsti bátur við Faxa- flóa á s.l. vetrarvertíð var Keflvíkingur, G. K. 400. Afli hans var yfir 1700 skippund. Skipstjóri á Keflvíkingi er Valgarður Þorkelsson. þetta augljóst um allar æðstu menningarstofnanir, er einmitt voru settar í Kaupmannahöfn, sem sameigin- legum höfuðstað allra landa konungs til afnota öllum þegnum hans, en þó einkanlega hinum norrænu, .svo sem t. d. háskólinn með söfnum sínum. Konunglega bókasafnið þar er hið gamla einkabókasafn konungs, er opnað var fyrir almenning. Þjóðminjasafnið, Lista- safnið, Tauhúsið og Rosenborgarsafnið í Kaupmanna- höfn eru t. d. allt greinar af hinu gamla kunstkammer konungs, og svona mætti lengi telja. Ég spyr ykkur nú, íslendingar, viljið þið gefa Dön- um hluta Islands í öilum þessum sameignum? Viljið þið gefa það í skyn, að fsland hafi verið réttiaus hjá- lenda í sambandinu við Dani með því að gera ekki kröfu til þjóðréttarlegrar uppgerðar sameignanna? Linkind og eftirlátssemi í þessum uppgerðarmál- um munu Danir launa illu einu, og tjón og fyrir- litningu mun þjóð vor af því hljóta. 1 þessum upp- yerðarmálum á þjóð vor allt að vinna, en getur engu tapað við að leita réttar síns á löglegan hátt. Aður stundi þjóð vor undir rangindafargi Dana og sveið það, að hafa ekki þá þjóðaréttarlegu viður- kenningu og það afl, er þurfti, til að geta neytt þjóða- réttarins í baráttunni við Danmörku. Nú hefur fsland fengið hina þjóðaréttarlegu viðurkenningu og getur neytt þjóðaréttarins, og nú hefur þjóð vor fengið það afl, sem þarf, til að ná lögum af stærri þjóð, þar sem íslendingar geta nú sótt öll ágreiningsmál við Dani í alþjóðadóm. íslendingum var nokkur vorkunn, að þeir hófust ekki handa um sókn þessara mála, meðan þá brast þjóðaréttarlega viðurkenningu og meðan þeir höfðu ekki fengið sjálfir meðferð utanríkismála sinna. En nú er það ekki lengur vansalaust, ef þjóðin dregur það að hef ja öfluga sókn í öllum þessum málum, afhendingu sérgreinanna og uppgerð og skipting sameignanna. í öllum þessum málum eiga íslendingar þegar að gera sínar allrafyllstu kröfur. Fallist Danir á þær, þá er vel, en ekki gefur reynslan von um, að svo verði. Er svo er komið, eru tvær leiðir: að reyna að semja um málin, eða stefna strax í alþjóða dóm. Verði samninga- leiðin reynd, og vilji ísland af einhverjum ástæðum láta sér nægja minna í bili en það, að ná rétti sínum að öllu leyti, og gera samning um eitthvað minna til bráða- byrgða, verður ísland að taka það skýrt og skorinort fram í þeim bráðabyrgðasamningi hver réttarsjónar- mið þess eru, og áskilja sér allan þann rétt óskertan framvegis, þrátt fyrir bráðabyrgðasamninginn, ella verður litið svo á, að ísland hafi gefið upp eða afsalað sér þeim rétti, sem það hefur ekki fengið í samningn- um. Austur-Grænlands-samningurinn milli Norðmanna og Dana í Osló 1923, var gerður með svona fyrirvara. Norðmenn fengust ekki til að semja upp á annan máta en þennan, vildu ekki óbeint játa á sig nokkurt afsal. Dönsk-íslenzk samninganefnd situr nú enn einu sinni á rökstólum. Sagt er, að hún sé til orðin fyrir tilmæli Dana. Sagt er og, að viðfangsefni hennar sé, að semja um fiskiréttindi handa Færeyingum og afleiðingar sam- bandsslitanna. En hvort sem það hefur verið sagt eða sagt ekki, þá gizka ég á, að aðaltilgangur og aðalverk- efni þessarar nefndar eigi að vera sá, að geta slengt viðlíka romsu og þessari framan í fslendinga síðar: Þið skipuðuð samninganefnd til að semja við Dan- mörku í tilefni af sambandsslitunum. Hví settuð þið þar ekki fram kröfu um fulla afhendingu séreigna íslands, og hví setti ísland þar ekki fram kröfur um uppgerð sameigna, ef það taldi sig eiga óuppgerðar sameignir við Danmörku. Þar sem þiö báruð eklci fram slíkar ákveðnar kröfur þar, höfum vér Danir litið svo á, að fsland xtti engar sameignir undir vorri liendi og engar óuppgerðar sameignir við Danmörku, eða fsland hafi þá viljað gefa þetta upp, ef það taldi sig eiga það. Svo munu þeir vísa til hins forngilda, að „sá, sem .. . segi til i tíma eða þegi síðar“, og gefa oss sömu svör og æðstuprestarnir Júdasi forðum. Þetta er mergur málsins í þeim samningum, er nú standa yfir, þótt hitt sé efa- laust, að Danir vilji krækja hér í þau réttindi, er þeir geta fengið fyrir lítið eða ekkert, bæði handa sjálfum sér og öðrum. Þess vegna verður fsland nú að setja fram fyllstu kröfur sínar um allt það, sem ég liér hef nefnt, og eng- an samning gera við Danmörku nú nema með rammbyggi- legasta fyrirvara um allt það, sem liér hefur verið nefnt. 2D& V I K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.