Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1946, Qupperneq 47

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1946, Qupperneq 47
Glæsilegt björgunarafrek í síðasta ág'úst-hefti ameríska tímaritsins „Fishing Gazette" birtist frásögn um frækilega björgun sem átti sér stað hér við land. Þótt undarlegt megi virðast hef- ur ekkert birzt á prenti um hana ennþá hér á landi og er ekki vonum fyrr að afreks þessa sé að nokkru getið. Greinin, sem birtist í hinu ameríska fiskveiða-tíma- riti fer hér á eftir í lauslegri þýðingu: „Gísli Halldórsson, umboðsmaður fyrir General Mot- ors dieselvélar — áður nefndar Gray dieselvélar — hefur skýrt frá frækilegri björgun báts í sjávarháska, er varð með þeim hætti að annar bátur, knúin,n G. M. dieselvél, kom til hjálpar. Þetta gerðist í marz-mánuði við austurströnd íslands. Ofsarok hafði skollið á og fiskibátarnir leituðu hafn- ar. Komust flestir heilir í höfn en nokkrir týndust. í Hornafjarðarhöfn voru fjórir bátar þegar komnir að. Var einn þeirra m.b. „Hvanney", sem er 19 brúttó- smálestir að stærð. Þegar bátarnir fara inn í höfnina þurfa þeir að fara yfir grynningar í Hornafjarðarósi og ef illt er í sjó brýtur stundum á gynningum þessum. Er þá stórhættu- legt að sigla yfir þær. Einmitt þannig stóð á þegar sást til m.b. „Báru“ sem einnig er 19 brúttósmálestir að stærð. Flestir íbúar þessa litla þorps voru sjónarvottar að því er báturinn nálgaðist og horfðu á baráttu hans við brotsjóana og hættulega strauma, þar á meðal fað- ir skipstjórans. Þegar báturinn kom á versta staðinn, skall yfir hann brotsjór, sem kastaði honum á hliðina af slíku afli að fiskilínan flæktist um siglutoppana og auk þess í skrúfuna. Þrátt fyrir þetta tókst að koma bátnum á réttan kjöl enda þótt hann léti ekki lengur að stjórn og var þá varpað akkeri. Útlitið var nú háskalegt og töldu menn vonlaust um að bátur og skipshöfn kæm- ust af. Þegar hér var komið voru skipshafnir þeirra báta, sem lágu í Hornafjarðarhöfn beðnar að fara til hjálp- ar. En þær áræddu ekki að leggja úr höfn og töldu að slíkt væri að ganga í opinn dauðann — að einni skips- höfn undanskilinni. Skipstjórinn á „Hvanney“, Jens Lúðvíksson, sem er viðurkenndur dugnaðar- og aflamaður og skipshöfn hans, hikuðu ekki þegar til þeirra var leitað en treystu á bát sinn og hina hraðgengu, léttbyggðu G.M.- dieselvél. Nú kom það sér vel að ekki þurfti að hita G. M,- dieselvélina upp eða undirbúa hana undir gangsetningu, því að hún fer jafnskjótt í gang og á þarf að halda. Það voru ekki liðnar nema fáar mínútur eða jafnvel sekúndur, þegar báturinn skreið á fullri ferð út úr höfninni yfir hið hættulega grunn, og braut bæði fyrir framan hann og aftan. Virtist sjónarvottum báturinn fara eins og fugl flygi þar sem hann æddi áfram með ellefu mílna hraða. — En það er mikill hraði fyrir fiskibát af þessari stærð, sem auk þess þarf að vera gott sjóskip. Þegar „Hvanney" kom þangað sem „Bára“ lá, gerði skipshöfnin fyrst tilraun til að fleyta línu milli bát- anna. En það reyndist ókleift vegna strauma sem eru mjög sterkir á þessum slóðum. Skipstjórinn varð því að komast nær hinum hættulega stað svo að hægt væri að kasta línu yfir í „Báru“ — og þetta tókst. En þegar verið var að draga línuna yfir í „Báru“ festist vélstjórinn á „Hvanney“ í henni og var nærri kominn fyrir borð, þegar skipshöfnin á „Báru“ sleppti þessari björgunarlínu sinni til að koma í veg fyrir það. Aftur varð „Hvanney“ að nálgast meir og fékk hún við það á sig brotsjó og síðan annan. En vélin gekk ótrufluð engu að síður og báturinn lét að stjórn. Enn náðist samband milli bátanna og var nú vindan sett í gang og beið nú skipshöfnin á „Báru“ nokkur augnablik með öndina í hálsinum eftir því, að séð yrði hvort „Hvanney" myndi takast að draga Báruna frá brotinu. Og þetta tókst. Var þá akkerið dregið upp á „Báru“ og hélt „Hvanney" með hana í eftirdragi út ósinn. Var veðrið nú svo slæmt og svo illt í sjóinn að Jens Lúðvíksson gerði ekki tilraun til að komast inn í höfn- ina yfir grynningarnar, en tók stefnu austur með landi til Fáskrúðsfjarðar. Er það talin 8—10 tíma ferð í góðu veðri. Kom „Hvanney" með „Báru“ til Fáskrúðsf jarðar dag- inn eftir og hafði þá haft hana í drætti alla leiðina. Hvarvetna á Austurlandi er björgun þessi talin sýna afburða karlmennsku og bera vott um góða sjómennsku. En engu að síður ber hún vott um það hve hin létt- byggða og hraðgenga G. M. dieselvél er örugg og kraft- mikil. Tiu menn áttu líf sitt undir því að vélin brigðist ekki. Og hún brást ekki í þessari miklu þrekraun. V I K I N G U R 2G7

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.