Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1948, Qupperneq 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1948, Qupperneq 11
JÓHANNES H. JÓNSSON £attarinh Hressileg og fjörmikil lýsing á hinu ólgandi athafnalífi við Reykjavíkurhöfn á síðastliðn- um vetri. Höfundurinn er ungur loftskeyta- maður. Skömmu fyrir áramótin gerðist ég svo blank- ur, að ég átti ekki lengur fyrir strætó eða rit- blýi, og lánstraust mitt var farið veg allrar veraldar, en það, sem verra var: ég sá fram á að nýja árið myndi ríða í garð með blysum sín- um, púðurkerlingum og rakettum, án þess að ég gæti dreypt á því stórflóði átappaðs sólsins, sem streyma myndi það kvöld. Þessi staðreynd réði baggamuninn, ég brýndi mig með nokkrum vel völdum orðum, brauzt gegnum myrkviði geymslunnar og tók fram óásjálegustu garm- ana mína í þeim göfuga tilgangi, að fara á síld í Reykjavíkurhöfn. Síðan arkaði ég af stað nið- ur að sjó og fór mikinn; ég óttaðist seið hvíl- unnar. Þetta var að kvöldi dags, tunglið, glampandi eins og stífbónaður skalli, öslaði í djöfulmóð um tröllstórar skýjabólstraklessur á himni, og hornaþytur hvæsandi og ofhlaðinna síldarbíla, skrölt í krönum og kalt glamur í ryðguðum keðjum blandaðist gaulinu í vindinum þetta kvöld, en bassinn í þessum þúsundradda kór, sem steig upp frá höfninni, voru tröllslegir dynkir í reykhuldum síldarbátum, að því komn- um að sökkva vegna ofhleðslu, og hás hróp sjó- blautra og hreistrugra sjómanna og hafnar- verkamanna. Bílar hlömmuðu sér miskunnarlaust ofan í polla og slettu á mig og hús, og hátt í loft upp fljótandi efni og þurru, vindhanar, flögg og dulur snéru í austur og boðuðu rigningu. Ég þerraði sora af vanga mínum og kreppti hnefana í vösunum, bölvaði fátækt minni og sökkti mér ofan í botnlausa þunglyndisóra. Loksins stóð ég á hafnarbakkanum og leit yfir heilan frumskóg upplýstra mastra og lagði við hlustirnar. Reyndu að lyfta undir trogið, djöflamergur. — Haltu kjafti! — Lagó! Horn eru þeytt, eins og himinn og jörð séu að farast. Drekkhlaðinn síldarbátu)• með síld úr Kollafirði rennur hljóðlaust upp að Huginn II. — Ætlarðu að brjóta bátinn, öskrar hás sjó- mannsrödd á Huginn II. Glugga á stýrishúsinu er lileypt niður af slíkri heift, að það minnir á skothvell, og úfið höfuð stingst út um glugg- ann og skimar fúlskeggjað og villimannslegt til hægri og vinstri. — Slaka að framan, rymur í hausnum. í flöktandi birtunni frá ljóskeri í mastrinu hleypur tröllslegur mannslíkami. Stakkur þess- arar viðbragsfljótu, álútu veru gljáir af vætu og hreistri, og síldin, sem hún hleypur á, tindr- ar og endurkastar tunglsgeislanum í ótal lit- brigðum eins og þriggja turna silfur. Á milli mastranna eygi ég örfirisey og skammt undan henni stórt flutningaskip með öll siglingaljós tendruð frá dekki til masturstoppa. — Meira salt — salt! — Babú! Drottinn minn. Ég hrökklast til hliðar. — Verkstjórinn. — Hvar er verkstjórinn, hrópa ég, hvar er Viggi, Óli Tomm. Ég er ó- styrkur af öllum þessum ys og þys, ég finn að mér er ofaukið hér á glæsivöllum gjaldeyris- tekjunnar. Ég tek til fótanna og linni ekki hlaupunum fyrr en ég hef hlaupið um þveran og endilang- an hafnarbakkann. — Síld, látið ekki standa á síldinni! — Verkstjórinn. Ekkert svar. Tunna kemur veltandi; ég stekk yfir hana með mýkt pardús- dýrsins. Silfur hafsins vellur, iðar og spriklar í trog- VÍ KlN □ U R 273

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.