Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1948, Blaðsíða 26
Guöjórt S. Magnússon
Formannavísur um formenn í Gerðahrenni
1. Einn frá Hofi ódeigur
, afla mikinn hreppir.
Garpur mesti Guðlaugur
góð á miðin lceppir.
2. Löngum hlýtur lýða hrós
lætur skeið fram bruna,
Guðmundur frá götu sjós
grimm þó heyrist duna.
3. Frá Lambastöðum Þorgeir þó
þrauta reynir pínu,
fær oft mikinn fisk úr sjó
fólki handa sínu.
4. Oft þótt boðinn æsi liljóm
ei sem veldur grandi,
öslar gnoðin aldrei tóm
undir Manga á Landi.
5. Aldrei hræðist aflrammur
upp þó dragi flóka,
ötull maður Eggerts bur
er frá Velli króka.
6. Ei mun hræðast útliafs sjó
öldur þó að blaðri,
ein hin mesta aflakló
er Bergur frá Jaðri.
7. Ýtir gnoð á æginn blá
öldur þó að kveini,
strýkst þá froða um stafninn há
stíft hjá Gerða-Sveini.
vélarnar settar, og hefur hús verið byggt yfir þenna
hluta af þilfari skipsins. í skipinu hefur verið komið
fyrir þremur nýjum dieselvéla-samstæðum, og nemur
orka þeirra samtals 800 ha. Tvö stór löndunartæki eru
í skipinu, sem til samans eiga að geta losað um 800
mál á klukkustund. Komið hefur verið fyrir í skipinu
tveim geymum fyrir síldarlýsi, sem rúma samtals 2.200
smálestir.
Geymsla er í skipinu fyrir um 1600 tonn af síldar-
mjöli. Síldarþróin tekur um 10,000 mál síldar.
Eins og fyrr getur verður öllum síldarvinnsluvélun-
um komið fyrir á þilfari og þar verða fjórar síldar-
vinnsluvélasamstæður, og getur hver þeirra unnið sjálf-
stætt. Afköst þeirra allra eru 6 til 10 þúsund mál á
8. Löngum skriða lætur gnoð
Ijúft þó vindur kárni,
fær oft björg úr flyðru vog
formannsprýðin Árni.
9. Sízt er hræddur storms við stjá
stóra gnoð fram setur,
afla reynir oft að fá
einnig litli Pétur.
10. Hátt þó skræki hræsvelgur,
hann er snemma á ferðum,
afla krækir ósmeykur
Arni Jón frá Gerðum.
11. Kristinn halur hugdjarfur
heppinn sjós' í ferðum,
flinkur talinn formaður
finnst sá bóndi i Gerðum.
12. Fleyið setur fljótt á stjá
fram að síla tröðum,
Jóhannes með bjarta brá
bóndi Gauks- á stöðum.
13. Heppinn stýra Halldór má
hærri og smærrí knörum,
fiskar mikið maður sá,
merkur bmidi í Vörum.
14. Hraðar ferðum hreppstjórinn
lieppinn sæs á breiðum,
drifur björg í bátinn sinn
bóndinn þríðji á Meiðum.
Framh. á bls. 291.
sólarhring, allt eftir því hvernig hráefnið er.
f skipinu verður komið fyrir nýju fullkomnu tæki,
til að ná mjöli úr pressuvatni, og hefur slíkt tæki ekki
verið keypt fyrr hingað til landsins. En með þessu tæki
á að vera hægt að ná mestu af föstu, óuppleystu efn-
unum úr límvatninu. Þurrkarar fyrir síldarmjöl eru
af nýrri gerð, og hafa þeir verið notaðir í Kaliforníu
í nokkur ár og taldir mjög fullkomnir. Nokkuð af reykn-
um, sem myndast við þurrkun mjölsins, er leitt inn í
eldhólf þurrkarans og brennist þar. Er lykt vegna
þurrkunar mjölsins því hverfandi lítil.
í skipinu verður komið fyrir efnarannsóknarstofu og
vélaverkstæði til nauðsynlegra viðgerða um borð og
gert er ráð fyrir, að þar verði skrifstofa félagsins.
2BB
VÍKIN □ U R