Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1953, Side 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1953, Side 13
unum milli jakanna. Nýleg slóð eftir ísbjörn lá í krákustígum um einn stærri jakanna. Þeir urðu stærri og stærri, eftir því sem við kom- umst lengra inn í flákann. Ofan úr „hrafns- hreiðrinu" bárust fyrirskipanir og bendingar skipstjórans, sem reyndi að koma skipinu fram hjá stærstu hafísjökunum og dreifðum borgar- ísjökum. Hann var sífellt að atuga ísflákann í sjónauka sínum, og skyggnast eftir veiðibráð. Um nóttina létum við reka með ísnum og hreyfðumst aðeins eins og hann. Við nutum þá hins fyrsta heita matar í marga daga. Eftir að við höfðum þurrkað rúmfötin okkar, er dignað höfðu á leiðinni, bjuggum við okkur undir langa og rólega nótt. Leitin stóð í nokkra daga í viðbót eða til 23. marz síðdegis; þá fórum við að sjá margar sela- vöður, og um sólsetrið sáust hundruð sela uppi á ísnum. Kæpitíminn var að hefjast á þessum slóðum. Vartdal skipstjóri ákvað að stöðva skipið um nóttina, til þess að kvekkja ekki dýrin. Það hafði farið að hvessa síðari hluta dagsins og undir kvöldið var kominn snarpur vindur. Milljónir örsmárra ískristalla þyrluðust upp, bárust með vindinum og sköpuðu skrautlegt sólarlag þetta kvöld. En vindurinn kom af stað þungum undirsjó, svo að allmikil ókyrrð komst á hafísinn. Þetta var nú ekki sem heppilegast, því að það gerði starf okkar erfitt og hættu- legt. Skammt frá skipinu heyrðum við gólið í kóp- unum, að kalla á mæðurnar. Það minnti á vol í barni eða máfavæl. Fyrst hélt ég, að það væri einhver úti á ísnum að kalla á hjálp. Allt var nú búið undir morgundaginn. Sela- banarnir brýndu hnífa sína og athuguðu byss- urnar. Við vorum allir í æstu skapi af tilhlökk- un og eftirvæntingu. Á morgun! Þessi fyrsti hópur var vöðuselur — lang al- gengasta og verðmesta selakyn íshafssvæðis- ins. Þrjár aðalkæpistöðvar þessarar tegundar (Phoca groenlandica) eru þekktar: Ein þeirra er á rekísnum norðan við Nýfundnaland og norðaustan við Labrador, önnur milli íslands og Svalbarða — „Vesturísinn“ — þar eru einnig kæpistöðvar blöðruselsins, og þriðju stöðvarn- ar eru við mynni Hvítahafsins, undan norður- strönd Evrópu. Selveiðar vegna grávörunnar hafa tíðkazt við Nýfundnaland frá því um 1800. Meðan þessar veiðar stóðu sem hæst, var ársveiðin kringum hálf milljón kópar. Þessi mikla slátr- un var aðalorsök þess, hve selveiðunum hrak- aði ört. Meðalársveiðin við Nýfundnaland síð- asta áratuginn var 170.000 kópar. í fyrra var veiðin á þessum slóðum 96.782 kópar, veiddir á 13 skip. Selveiði Norðmanna í marz og apríl í fyrra í „Vesturísnum“, var 60.000 kópar á 31 veiði- skip. Eitthvað af þessu var fullorðinn selur. Flest þessi skip fóru aftur norður í maí, til þess að veiða fullorðinn sel við austurströnd Græn- lands. Norsk selveiðiskip veiddu einnig í Hvítahaf- inu í mörg ár; 1925 veiddu skip okkar þar t. d. 340.000 seli. En síðustu 25 árin hafa Rússar hins vegar aukið mjög veiðar sínar á þessum slóðum,. og á síðasta ári neituðu þeir norskum skipum um skjallegt loforð um siglingaröryggi og báru við tundurduflahættu. Löngu fyrir dag, þennan fyrsta veiðidag okk- ar, voru allir komnir á fætur og ákafir að kom- ast af stað. Seladrápsmennirnir klifu yfir borð- stokkinn út á ísinn og hlupu í spretti eftir skelk- uðum selnum. Þeir stukku af einum jaka á annan og voru í stöðugri hættu að detta á flug- hálum ísnum og lenda í vök. Þeir stukku yfir breiðar, uggvænlegar rennurnar og lentu stund- um ofan í, af ákafanum. Þegar það kom fyrir, voru félagar þeirra skjótir til hjálpar og drógu þá upp úr. Þetta kom alloft fyrir þennan dag, Vöðuselskópur. VÍKINGUR 139

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.