Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1953, Síða 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1953, Síða 16
Stórskipið Champellion í brimgarðinum lijá Beirut. aðeins 15 menn af 323 létu lífið, mun eflaust fyrst og fremst að þakka því, að storminn lægði og brimið minnkaði áður en ástandið um borð í skipinu versnaði enn meir, því að jafnvel 25,000 manns, sem hvorki hafa ráð né tæki, er skiljanlega til einskis gagns við slík tækifæri. Um orsakir þessa strands veit greinarhöfund- ur ekki, en í Beirut og víðar gekk sá orðrómur, að skipstjórinn hafi vilzt á flugvallarljósvita, sem nýlega hafði verið tekinn í notkun á þess- um slóðum og ljósmerkjum hafnarinnar í Beirut. Frá hafi til hafnar Á byggingu unglingaskólans í Faston í Englandi hefur verið sej;tur veðurviti, sem er í lögun eins og skip Nelsons „Victori“. Nelson var nefnilega á sínum tíma nemandi í þessum skóla. * Gíbraltar er eini staðurinn í Evrópu, þar sem lifa villtir apar. Er það brezk þjóðtrú, að svo lengi sem þeir geti lifað í þessari þýðingarmiklu flota- stöð, hafi Bretar einir umráð yfir staðnum. Þess vegna gæta yfirvöld staðarins þess vandlega, að apastofninn í Gíbraltar verði ekki útdauður. Nelson hafði annan veikleika en þann, sem allir vita um — fyrir kvenfólki. Hann var sjóveikur alla sína ævi. * Skipafélagið „National Bulk Carriers Inc,“ í New Yoi’k hefur pantað 3 málmflutningaskip hjá jap- önsku skipasmíðastöðinni „Kaure“. — Stærð skip- anna verður 60 þús. brto. smál. hvert. Lengdin er 230,5 metrar. Aðalvélarnar fi’amleiða 13 þús. hest- öfl og ganghraðinn verður 14 sjómílur. — Kjölur- inn að fyrsta skipinu verður lagður í ágúst í ár, að því næsta í desember u. k. og að hinu þriðja í marz næsta ár. 142 V I K I N G L) R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.