Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1953, Page 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1953, Page 23
MINNINGARORÐ: Bjarni Bæringsson „Þar féll grein af góðum stofni, grisjaði dauði meir en nóg“. Þann 5. nóvember 1949 andaðist á sjúkrahúsi úti í Englandi einn af mætustu borgurum Drangsness- þorps, og er vel þess vert að minnast hans, þó að nokkuð sé umliðið. Bjarni sálugi var fæddur 12. september 1906 að Kollsvík í Rauðasandshreppi í Barðastrandarsýslu. Ættfólki hans er ég því miður ókunnur. í fæðingarsveit sinni dvaldi Bjarni allt til fullorðinsára, fluttist síðan til Reykjavikur og kvæntist þar 12. nóv. 1932 eftirlifandi konu sinni, Önnu Ólafsdóttur, ættaðri úr Tálknafirði. Aðalstarf Bjarna á þessum árum var sjómennska ýmist á smærri eða stærri skipum, enda mun hon- um hafa verið sjómennskan í blóð borin sem flest- um Vestfirðingum. Vorið 1934 flutti Bjarni sál. sig búferlum frá Reykjavík norður að Drangsnesi við Steingrímsfjörð og bjó þar síðan til dauða- dags. Fyrstu ár sín hér á Drangsnesi stundaði hann að mestu sjó, en hin síðari árin vann hann nær eingöngu smíðavinnu, mest við bátasmíði, bæði nýsmíði og viðgerðir. Það mátti heita rétt sama, að hvaða verki Bjarni Bæringsson gekk, svo jafn- vígur var hann á störf, og öll verk sín vann hann með alveg sérstakri alúð, trúmennsku og snyrti- mennsku. Bjarni sálugi var mikill skapfestumaður um leið og hann var þó glaðvær og viðmótsþýður, dreng- skap og frjálst félagslyndi setti hann jafnan öðru ofar. Allverulegan þátt átti hann hér í verkalýðs- málum, komu þar fram sem annars staðar hans farsælu mannkostir. Heimilisfaðir var Bjarni mjög góður, fór þar saman innileg hjúskaparást, ást til barna, heilbrigð skapgerð, prúðmennska og björt framsýni. Ég tel mér skylt, þó að nokkuð sé umliðið, að minnast þessa ágæta samferðamanns með hlýju og hljóðlátu þakklæti fyrir allt hið góða, er hann ávallt auðsýndi í viðkynningunni. Bjarni sál. var jarðsunginn frá kapellunni á Drangsnesi 10. desember 1949, að viðstöddu meira fjölmenni en ég hef séð þar við slík tækifæri. — Að endingu þetta: Vertu blessaður og sæll, Bjarni. Guð blessi minningu þína. Drangsnesi í júní 1953. Guðm. Þ. Sigurgeirsson. Innlendar fréttir... FRAMHALD af bls. 1M- 19/5. Olíufélagið h.f. og SÍS eru aía thuga möguleika á aÖ kaupa stört olfuskip til flutninga. Fisk- herzlan nam í marzlok tæplega 22 þús. tonnum. í Stokkhólmi var ný- lega undirritaÖur viðskiptasamn- ingur milli Islands og Israels. - Brezkur togari fékk ekki viSgerÖ hér á landi, kom hann heim eftir 14 daga. AflaveríSmæti helmingur kostnaíSar. - AÖeins einn íslenzk- ur togari stundar nú Grænlands- veiSar, Olafur Jóhannesson frá PatreksfiríSi, en austf jarÖartogar- inn Egill rauði muna vera aÖ staíS á GrænlandsmiíS. — GeríS veríSur flugbraut í Grímsey í sumar. Flugvöllurinn er mikiÖ hagsmunamál Grímseyinga. # 21/5. Um 1000 tonnum af tog- arafiski var landað í gær. Komu 5 togarar inn, en verkamenn vant- atSi til uppskipunarinnar. — GótS aflahrota í víkunum inn af Bakka- flóa. --- SkagfiríSingar búast til fuglaveitSa í Drangey. — Hi?S nýja skip S.I.S. er væntanlegt seinni hluta Júní. ---- SkipiÖ, sem dælir upp skeljasandi, kemur um a?Sra helgi. — Mikil vinna og fram- kvæmdir eru nú fram undan í Grafarnesi í GrundarfiríSi. — Flöskuskeyti, sem varpað var i sjó- inn á Isaf jaríSardjúpi á jóladag 1950, rak viÖ Bergen í marz s.l. — Islendingar munu sennilega eignast Asdictæki i sumar. 23/5. íslenzkur skipstjóri á norskum togara kennir norskum sjómönnum togveicSar viÖ Nor^ur- Noreg. HingaíS til hafa fáir þeirra stundatS þær. -- Minni hafís og fjær landinu én venjulega er á þessum tima árs. * 26/5. HvalveitSarnar hefjast lík- lega annaÖ kvöld. — Á næstunni mun fara viíSskiptanefnd til Moskvu, sem á aíS semja um viÖ- skipti Islands og Sovétrikjanna. * LEIÐRÉTTINGAR 1 greininni „Um hvalinn" á öðrum stað í blaðinu eru þessar leiðu villur: Bls. 130, aftari dálkur, 29. línu að ofan „þurran munn“, les „þveran munn“. Bls. 131, aftari dálkur, 29. línu að ofan: „notast sem símatæki“, les „notast sem síunartœki V í K I N G U R 149

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.