Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1959, Page 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1959, Page 16
19-58 1. september 1959 ■<&---r------------:——------------- I tilefni af því að á morg'un er liðið eitt ár síðan reglugerðin 12 sjómílna fiskveiðilandhelgi Islands gekk í gildi, þá hefur Ríkisútvarpið farið þess á leit við mig, að ég gæfi því nokkrar upplí'singar um landhelgisgæzl- una hér við land á þessum tíma. Frá sjónarmiði landheigis- gæzlunnar má segja, að það sem einkennt hafi framkvæmd hinn- ar nýju reglugerðar, sé aðallega tvennt; nefnilega: í fyrsta lagi hafa allar þjóðir, sem veiðar stunda á miðum við ísland —- aðrar en Bretar — viðurkennt liin nýju takmörk svo frábærlega vel í verki, að þrátt fyrir meiri gæzlu en nokkru sinni fyrr, hefur Landhelgis- -----------------------------------<$i' gæzlan ekki getað fundið einn einasta togara þessara þjóða að ólöglegum veiðum — og er það alveg einsdæmi. í öðru lagi er svo hið vægast sagt óvenjulega framferði brezkra togara, sem öllum er svo kunnugt, að óþarft er að rekja hér. í heilt ár hafa nú að jafn- aði daglega verið 13 brezkir tog- arar að veiðum innan takjnark- anna, og þeirra gætt þar dag og nótt af 4 brezkum herskipum auk birgðaskips, en samtals hafa um 250 togarar og 37 herskip komið þar við sögu, af öllum togarahópnum hafa þó aðeins 4—5% stundað veiðar hér reglu- lega allt árið, hinir eftir aðstæð- um — þar af yfir helmingur farið hingað aðeins 1—2 veiði- ferðir. Svæðin 3, segn þessar ólöglegu veiðar hafa verið stund- aðar á, eru yfirleitt 90 sjómílur á lengd, eða um það bil 1/10 af allri landhelgislínunni, en flatar- mál þeirra er þó ekki meira en 3/4% af allri fiskveiðilandhelg- inni eins og hún er nú. Á þessum 13 brezku togurum, sem að meðaltali hafa verið hér að ólöglegum veiðum hvern dag, munu ^ra um það bil 250 manns, en samtals munu áhafn- ir herskipanna, sem gæta þeirra hverju sinni vera um 1000 menn. Þó mun réttara að reikna með, að til gæzlunnar þurfi a. m. k. helmingi fleiri herskip en eru hér hverju sinni — eða með öðr- um orðum: Undanfarið ár hafa 8—10 her- skip með um 2000 manns séð um að 13 brezkir togarar með 250 manns um borð geti óáreittir stundað ólöglegar veiðar hér.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.