Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1959, Blaðsíða 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1959, Blaðsíða 17
1958 1. september 1959 í tilefni af því að á morgun er gæzlan ekki getað fundið einn liiðið eitt ár síðan reglugerðin einasta togara þessara þjóða að 12 sjómílna fiskveiðilandhelgi ólöglegum veiðum — og er það íslands gekk í gildi, þá hefur alveg einsdæmi. Ríkisútvarpið farið þess á leit við mig, að ég gæfi því nokkrar upplí'singar um landhelgisgæzl- una hér við land á þessum tíma. Frá sjónarmiði landhelgis- gæzlunnar má segja, að það sem einkennt hafi framkvæmd hinn- ar nýju reglugerðar, sé aðallega tvennt; nefnilega: í fyrsta lagi hafa allar þjóðir, sem veiðar stunda á miðum við Island — aðrar en Bretar — viðurkennt hin nýju takmörk svo frábærlega vel í verki, að þrátt fyrir meiri gæzlu en nokkru sinni fyrr, hefur Landhelgis- I öðru lagi er svo hið vægast sagt óvenjulega framferði brezkra togara, sem öllum er svo kunnugt, að óþarft er að rekja hér. f heilt ár hafa nú að jafn- aði daglega verið 13 brezkir tog- arar að veiðum innan takjnark- anna, og þeirra gætt þar dag og nótt af 4 brezkum herskipum auk birgðaskips, en samtals hafa um 250 togarar og 37 herskip komið þar við sögu, af öllum togarahópnum hafa þó aðeins 4—5% stundað veiðar hér reglu- lega allt árið, hinir eftil’ aðstæð- um — þar af yfir helmingur farið hingað aðeins 1—2 veiði- ferðir. Svæðin 3, sean þessar ólöglegu veiðar hafa verið stund- aðar á, eru yfirleitt 90 sjómílur á lengd, eða um það bil 1/10 af allri landhelgislínunni, en flatar- mál þeirra er þó ekki meira en 3y2% af allri fiskveiðilandhelg- inni eins og hún er nú. Á þessum 13 brezku togurum, sem að meðaltali hafa verið hér að ólöglegum veiðum hvern dag, munu ^ra um það bil 250 manns, en samtals munu áhafn- ir herskipanna, sem gæta þeirra hverju sinni vera um 1000 menn. Þó ,mun réttara að reikna með, að til gæzlunnar þurfi a. m. k. helmingi fleiri herskip en eru hér hverju sinni — eða með öðr- um orðum: Undanfarið ár hafa 8—10 her- skip með um 2000 manns séð um að 13 brezkir togarar með 250 manns um borð geti óáreittir stundað ólöglegar veiðar hér.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.