Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1959, Blaðsíða 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1959, Blaðsíða 29
kirkjunni, en jarðsett var í graf- reit Lútherstrúarmanna, í stein- steyptri gröf, sem virðist svo tillukt með steyptum hellum og múruð þétt. Albert heitinn hafði aldrei komið heim síðan hann lagði út í heiminn. Hann hafði ráðgert að koma heim á þessu sumri, en því miður brást sú áætlun. Hann stóð alltaf í bréfasambandi við fósturforeldra sína og móður sína og gleymdi ekki afmælisdegi fóstru sinnar. Albert heitinn var glaður og léttur í lund og hrókur alls fagn- aðar, þegar svo bar undir. For- eldrar og fósturforeldrar minn- ast með söknuði hins unga manns, sem svo sviplega var burtu kvaddur, en geyma hug- ljúfar endurminningar um kær- an og góðan dreng. Tr. Ó. FÓR í VÍRANA Framhald af bls. 211. sú, að útgerðin skyldi bera % hluta tjónsins, hásetinn % hluta, og voru hásetanum þannig til- dæmdar 198 þús. kr. úr hendi útgerðarinnar, svo og máls- kostnaður. Báðir aðilar skutu málinu tii Hæstaréttar. Dómendur voru allir sammála um fébótaábyrgð útgerðarinnar, svo og um mat á tjóni hásetans, en það hækkaði Hæstiréttur um 30 þúsund krón- ur. Hinsvegar töldu 3 af 5 dóm- endum, að hásetinn hefði hagað sér svo óvarlega, að skipta bæri sök til helminga, og skyldi út- gerðin bæta hásetanum tjón hans að hálfu, þ. e. 180 þús. kr. Tveir dómenda Hæstaréttar töldu há- setann hafa hagað sér ógætilega, sérstaklega með tilliti til þess hve lengi hann hafði starfað á skipinu,, að hann ætti að bera % hluta skaðans, útgerðin %, og höfðu hlutföllin þarmeð alveg snúist við frá því, sem sjódóm- urinn hafði dæmt. Ef sú niður- staða hefði ráðið, hefði hásetinn einungis hlotið 144 þús. kr. í skaðabætur fyrir fótamissinn. VÍKINGUE Fjarlægir vmir Margar góðar endurminningar rifjuðust upp, þegar sú stund upprann, að hjónin frú Guðný og Ágúst Ebenezerson áttu sex- tugsafmæli í ágúst s. 1. Eflaust hefðu margir gamlir vinir þeirra og ættingja óskað eftir því að vera staddir í ná- lægð þeirra á þessum tímamót- um. Staddir hjá þeim til þess að gleðjast með þeim, þrýsta hend- ur þeirra og þakka þeim fyrir alla gestrisni þeirra á liðnum árum, þegar ástandið var norm- alt, samgöngurnar voru eðli- legar. Ágúst Ebenezersson, skipstjóri. <s>---------------------- Hvað skal gera. Hversu oft hafa ekki foreldr- ar hlustað á kveinstafi krakka sinna á gelgjuskeiðinu: Hvað eigum við að gera? Hvert getum við farið? Fyrsta svarið er: Farðu heim. Málaðu grindverkið. Sláðu gras- flötina. Þvoðu og bónaðu bílinn. Hjálpaðu til við húsverkin. Lærðu að elda mat. Foreldrar þínir geta skiljan- lega ekki haft ofan af fyrir þér Guðný Valdimarsdóttir. Bæði eru þau hjónin af kjam- miklum ís'enzkum stofni, og hafa þau bæði og hvort í sínu lagi túlkað bestu einkenni síns uppruna: skapfestu, tryggð og atorku. Um þetta getum .við íslenzku s j ómennirnir, sem sóttu þau heim að heimili þeirra, Drangey, með mestu sannindum talað. Ég veit, að ég mæli fyrir munn ótal íslenzkra togarasjó- manna og annara vina, þegar Sjómannablaðið Víkingur sendir þessum mætu hjónum alúðar- fyllstu afmæliskveðjur. G. J. ------------------------------« lengur. Bærinn þinn hefur enga hvíldarstofnun fyrir þig. Heimurinn skuldar þér ekki neitt, en hinsvegar átt þú til- veru þinni skuld að gjalda. Tíma þinn, starfsþrá og hæfi- leika. Iðkaðu íþróttir. Vitjaðu sjúkra ættingja. (Hvenær vitja unglingar sjúkra?) Rauði kross- inn myndi þiggja smáaðstoð þína. — Og — hvernig væri að lesa góða bók? Hefurðu kynnst heimsbókmenntunum? — Veistu eins mikið um Shakespeare og Bessi í Kiss me Kate. 213

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.