Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1960, Qupperneq 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.08.1960, Qupperneq 22
sinni af kaðlinum á leiðinni til lands, en náði honum strax aftur. Þegar Tómás var kominn á land, strengdu þeir Siska á kaðlinum, svo sem þeir frekast gátu, en hann var þó ennþá töluvert slakur. Næstir fóru í land tveir hásetar, Eiríkur og Ólafur. Gekk þeim líkt og Tómási, misstu af kaðlinum í svip, en náðu honum þó strax aftur og komust heilir til lands. Segir nú Páll, að 2. vélstjóri, sem Elí hét, hafi komið til sín og sagt, að nú skyldi hann fara næstur, en þar sem Páll var þá að þrotum kom- inn, bað hann Elí um að láta sig í friði. Ekki vildi Elí hlusta á neina upp- gjöf, skar stígvélin af Páli, sem bæði voru frosin við fætur hans, og hjálp- aði honum síðan til að ná tökum á kaðlinum, en honum hafði fyrst í stað verið fest í baugspjótið, en seinna var hann færður og þá bund- inn í reiðann, stjórnborðsmegin. Varla hafði Elí þó sleppt af Páli, er hann rann niður kaðalinn, án þess að geta stöðvað sig, enda hend- ur hans og fætur kreppt orðin af kulda. Páll féll beint í sjóinn og segir hann, að þá hafi sér fyrst farið að hlýna og líða vel. Fannst honum sem hann væri kominn í mjúkt og gott rúm, og sofnaði þegar. Man nú Páll ekki lengur eftir því sem skeði um tíma, en hefur það sem hér fer á eftir, frá félögum sínum. Skipverjar fóru hver af öðrum í land eftir kaðlinum, en sökum þess hve hann var marghnýttur, misstu flestir af honum, er þeir komu í sjó- inn, en tókst þó að ná honum aftur og hafa sig til lands. Meðan þessu fór fram flaut Páll í bjargbelti sínu meðvitundarlaus skammt frá landi. Bar hann ýmist upp undir fjöru eða út að skipi og töldu allir hann dauðan. Elí hafði samt alltaf auga með honum, og einu sinni er Pál bar óvenju langt upp, tókst Elí að ná taki á hári hans og draga hann á land. Raknaði Páll þó brátt við aftur, en var mjög máttfarinn og illa á sig kominn. Aðrir skipverjar höfðu yfirleitt verið furðu fljótir að jafna sig, er þeir komu á land, þó allir væru þeir meira og minna þrekaðir eftir erfiði og vosbúð næturinnar. Svo hagaði til á strandstaðnum, að f jara var svo til engin. Uppi yfir var um 7-—8 faðma standberg. Frá berginu gekk í sjó fram lítið eitt hallandi klöpp, um 8—10 m. breið, en eitthvað af stórgrýti þar fyrir framan. Nú fóru þeir Siska og Elí að reyna til að komast upp bergið, en það var mjög erfitt, því snjór og klaki höfðu barizt inn í allar ójöfn- ur. Þeim tókst þó að skáklífa upp á stall, scm var svo til í miðju berg- inu, og var svolítill flái upp að hon- um, en þar fyrir oftn avr bergið að mestu lóðrétt. Drógu þeir félagar þá upp til sín langt borð, sem rekið hafði, og lagði Siska síðan í hamarinn, en Elí ýtti á eftir honum með borðinu. Ekki var aðra handfestu að fá en þá, sem Siska tókst að krafsa í harðbarinn snjóinn, með skeiðahnífi sínum. Mik- inn stuðning hafði hann af borðinu, sem Elí hélt undir honum og taldi hann, að án þeirrar hjálpar hefði sér aldrei tekizt að komast upp. Að lokum tókst Siska að ná berg- brúninni og vega sig upp á hana. Uppi var mikill snór og gerði það honum erfiðara fyrir. Hann hafði haft um sig kaðal, er Elí gat klifið eftir, þegar Siska hafði komið sér fyrir á bergbrúninni með kaðalinn um sig miðjan. Er þeir Siska og Elí höfðu jafnað sig nokkuð, drógu þeir upp félaga sína, hvern af öðrum, og gekk það að sjálfsögðu þeim mun betur sem fleiri komust upp, og þegar síðasti maðurinn var dreginn á land úr skipinu, voru 8 af skipverjum þegar komnir upp á bjargbrún. Skipstjórinn vildi fara síðastur frá borði, en þar sem hann var orð- inn mjög þrekaður, bauðst stór og sterkur háseti, Samuel að nafni, til þess að verða síðastur og varð það úr. Þegar röðin kom að honum, batt hann um sig kaðalinn, stökk fyrir borð og var dreginn á land jafn- framt því sem hann synti sjálfur. Um kl. 10.30 voru allir skipbrots- mennirnir komnir upp á bjargbrún, en þá var sjórinn farinn að ganga upp að berginu. Nokkru áður lögðu tveir af félög- um Páls af stað með hann á milli sín, þar sem hann gat ekki gengið óstuddur. Ekki vissu þeir hvar þeir voru staddir, en austan hvassviðri var og hríðarslydda, og héldu þeir undan veðrinu. Skömmu síðar gafst Páll upp og skildu þeir hann eftir undir vörðu, er þeir komu að, þar sem þeir áttu þ áorðið erfitt með að halda sjálfum sér á fótunum. Áfram héldu þeir samt, vestur eftir berginu þar til er þeir komu að vita, sem síðar reyndist vera Sel- vogsviti, en sáu svo nokkru seinna húsin í Selvogi. Þegar 2. stýrimaður var á leið til lands hafði hann slasazt, er planki rakst harkalega í brjóst hans. Á leiðinni til byggða komust félagar hans með hann að vörðu þeirri, er Páll á undir, en þar þó Jegvan stýri- maður. Strax er fyrstu skipbrotsmenn- irnir komust til bæja, brugðu heima- menn við og héldu austur eftir berg- inu til hjálpar þeim skipbrotsmönn- um, er ókomnir voru, og höfðu þeir með sér hestvagn, en í honum voru Páll og líkið af 2. stýrimanni flutt til bæja. í Selvogi var tekið á móti þeim félögum af mikilli gestrisni og þeim veittur góður beini og öll sú að- hlynning, sem töku voru á. Sóttur var læknir til Eyrarbakka, jafn- íramt því, sem sýslumanni var til- kynnt um strandið. Var Páll verst haldinn þeirra fé- laga og vart hugað líf um tíma. Hann fékk mikinn krampa í hand- leggi og fætur og var með óráði og sótthita fram á næsta dag, en þá fór honum batnandi, enda vék lækn- irinn ekki frá rúmi hans, meðan hann var sem veikastur. Aðrir skipbrotsmenn náðu sér furðu fljótt eftir volkið, enda hraust- ir og þeim vel hjúkrað. Um eftirmiðdaginn fóru nokkrir heimamenn austur á bjarg til að grennslast um afdrif annarra skip- verja. Hafði brimið þá kastað skip- inu fast upp að berginu, þar sem það lá á hvolfi, mikið brotið. Ekki fundu þeir nein lík í þeirri ferð. Að morgni þess 28. marz var enn farið á strandstaðinn og fundust þá þrjú lík rekin. Voru það feðgarnir Henry og Elías Hansen, svo og 1. stýrimaður. Nokkrum dögum seinna fannst enn eitt lík, er reyndist vera af Rasmus Jacobsen. Þann 29. marz kom kútterinn „Verðandi" til Selvogs og tók um borð eftirlifandi skipverja af „Ern- estinu" ásamt fjórum líkum. Fór „Verdandi" með þá til Grindavíkur, en þaðan héldu þeir um Reykjavík til Færeyja. í þessu sjóslysi fórust 9 menn, en 17 komust af. Ifalldór Sigurþórsson. VÍKINGUR 198

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.