Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1961, Side 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1961, Side 13
braut hans er sporbaugslaga. Suður fer hann vestanmegin í sundinu en norður austanmegin í því. En allur stofninn tekur ekki þátt í þessum ferðum, nokkur hluti heldur sig í Thule og á öðrum svæðum á veturna og sérstakir hópar reika hingað og þangað. En meirihluti stofns- ins hagar ferðum sínum eins og að ofan segir. Margar sögur hafa verið sagð- ar um hið tilgangslausa rost- ungsdráp, sem átti sér stað í október við Nottinghameyju. Bátar fullir Eskimóum fóru þangað og drápu miklu fleiri rostunga en þeir gátu tekið með sér. Margir sluppu særðir, en fundust seinna dauðir á reki í sundinu. Höggtennumar voru þá hirtar í mörgum tilfellum en annað ekki. Á Nottinghameyju fara rost- ungarnir í land og margir fara alllangt á land upp. Þeir, sem síðar koma, ýta þeim, sem fyrir eru, lengra og lengra frá sjón- um, hin hræðilegu öskur og há- vaði heyrist langar leiðir. Briml- arnir berjast, oft eru þeir særð- ir djúpum sárum á hálsi og baki, ótrúlegt er að þeir lifi sum þeirra af. Fyrrum voru leiðangrar veiði- manna gerðir út frá ýmsum byggðarlögum til þess að afla hundafæðu til vetrarins. Oft lögðu rostungarnir á ofboðsleg- an flótta, þeir hoppuðu áleiðis til sjávar, en oft var þá aðeins um þrönga rennu að ræða, þar sem sjór var auður. Þeir þrengdu sér saman og klifruðu hvor yfir annan, þeir máttar- minni urðu auðvitað undir. Ekki þarf að taka fram, að auðvelt var að hæfa þá í þessum tilfell- um, eina hættan fólst í því. að særður rostungur gerir stundum gagnárás og rekur höggtennurn- ar í gengum bátinn. Rétt er að taka fram, að bæði kanadískir Indíánar og Eskimó- ar segjast vera vissir um, að rostungur ráðist aldrei á bát, sem er rauðmálaður í botninn. Þessu er erfitt að trúa. Þegar vIkingur dýrin eru á æðisgengnum flótta og ryðjast hvert yfir annað, er ekki sennilegt, að þau gefi gætur að litum. Rostungsveiðar við Notting- hameyju eru nú ekki eins ábata- samar og fyrr. Með hinni ágætu veiðimálalöggjöf Kanada, sem miðast að vernd dýranna og jafnframt til hagsbóta fyrir Eski- móana, er nú komið í veg fyrir þessi dýramorð. Meðal annars er samkvæmt lögunum haldið uppi rannsóknum með nýjustu vís- indalegum aðferðum á dýralífi í Norðuríshafinu. Rostungurinn reynir að halda sig eins nærri landi og hann getur, vegna þess að þar er dýp- ið minna en lengra úti. Þetta getur hann á meðan ísinn er ekki orðinn of þykkur. Þegar hann getur ekki lengur brotið gat á ísinn með hausnum og búið sér þannig til öndunarop, neyðist hann til að færa sig ut- ar, þar sem dýpi er meira. Þetta skeður, þegar ísinn er orðinn fjórir til sex þumlungar. Rost- ungurinn reynir ekki að brjóta gat á ís, sem er orðinn þakinn snjó, því neðan frá virðist hann vera næstum svartur í hinni daufu dagsbirtu nóvembermán- aðar, þá fylgir rostungurinn ís- röndinni, sem smátt og smátt færist utar, en alltaf þegar ís- inn brotnar nær landi, fara þeir þangað til þess að notfæra sér hina betri fæðuöflunarstaði, þar sem dýpið er minna. Síðla vetr- ar verða ferðir þeirra strjálli, þá er ísinn orðinn þykkur og brotnar sjaldnar. Langt frá landi við ytri brún íssins er alltaf breitt belti, sem ýmist brotnar af öldugangi og undirsjó eða frýs saman í hellu aftur. Á þessu svæði heldur rostungurinn sig aðallega á vetr- um, þó eins nálægt landi og hon- um er fært að brjóta göt á ís- inn. Á öðrum svæðum nær landi koma straumar í veg fyrir að þykkur ís myndist. Þar getur rostungurinn brotið göt á ísinn, og þar safnast hann saman á vetrum. Rostungurinn getur ekki verið án reglulegs svefns á vetrum. Víða, sérstaklega í sunnanverð- um norðurskautslöndunum, fer hanp í land til að sofa og er þá í stórum hópum. Þetta er varla hægt lengst í norðri, vegaia þess hve ísinn er þykkur þar allstað- ar nærri landi. Á sumrum sést rostungurinn oft sofandi á ís- jökum, sem eru á reki, stund- um kemur það ■ fyrir á vetrum líka, þegar rostungurinn lengst í norðri heldur sig á hafsvæðum við ísröndina fjarri landi. Jafn- vel um háveturinn sofa stöku rostungar þannig á ís. Húð þeirra er þá svo harðfrosin að ómögulegt er að koma skutli í gegnum hana. Þessi harðgerðu dýr virðast ekki vera hrædd við manninn, minnsta kosti er oft hægt að komast mjög nærri þeim án þess þau vakni. Rost- ungurinn hagar sér þó yfirleitt ekki á þennan hátt. Á vetrum sefur hann venjulega þar sem vakir eru í ísnum. Hann flýtur í sjóskorpunni og á fárra mín- útna fresti lyftir hann höfðinu til að anda, en lætur það svo aftur síga. Hann flýtur ýmist með kviðinn eða bakið upp, en oft sefur hann upp á endann í sjónum. Hann getur flotið í þessari stöðu án erfiðleika, vegna þess að hann fyllir kokið af lofti. Hið vöðvamikla kok bæði brimilsins og urtunnar er útvíkkað og myndar poka. Þegar rostungurinn flýtur á þennan hátt virðist hálsinn vera mjög littútnaður og veldur því hinn loftfulli poki. Vegna þess hve rostungurinn á auðvelt með að fljóta sefur hann stundum á floti í sjálfri öndunarholunni, þá hangir hausinn máttlaus niður,. en öðru hvoru lyftir hann upp hausnum leggur höggtennurnar upp á vakarbarminn og dregur andann nokkrum sinnum, að því búnu sofnar hann aftur. Höf'mular Peter Freuclien og Finn Sálomonsen í bókinni The Arctic Year. — Grímur Þorlcelsson tók saman. 101

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.