Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1961, Blaðsíða 16
Ellert Kr. Schram
skipstjóri
Hinn 16. marz var til moldar
borinn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík aldursforseti sunn-
lenzkra skipstjómarmanna, Ell-
ert K. Schram, skipstjóri.
Hann andaðist á sjúkradeild
Hrafnistu 6. s.m., þá nýlega orð-
inn 96 ára.
Foreldrar Ellerts voru þau
hjónin Hallbjörg Guðmunds-
dóttir og Kristján Schram. Þeg-
ar Ellert var á þriðja ári missti
hann móður sína.
Nokkrum árum síðar fluttist
faðir hans til Ameríku. Ellert
var þá á áttunda ári. Var hon-
um nú komið í fóstur suður í
Njarðvíkum þar sem hann korn-
ungur fór að stunda sjó á opn-
um skipum eins og þá var venja.
Rúmlega tvítugur að aldri lærði
Ellert siglingafræði hjá Markúsi
Bjarnasyni síðar skólastjóra
Stýrimannaskólans og lauk fulln-
aðarprófi 1889. Upp frá þessu
hóf Ellert skipstjórastörf á
skútum, og hafði skipstjórn á
hendi í 33 ár með mikilli prýði,
öðrum til fyrimyndar.
Fyrstu kynni mín af Ellert
K. Schram hófust veturinn 1911.
Hann var þá verkstjóri hjá H.P.
Duus við seglasaum á stórri
vinnustofu þar sem unnu um 20
menn við seglasaum, en Duus
var þá stærsta útgerðarfyrir-
tæki í Reykjavík. Vann ég tvo
vetur undir stjórn Ellerts, lærði
ég hjá honum uppdrátt á segl-
um og allan frágang þeirra. Síð-
an hefur haldizt kunningsskapur
milli okkar Ellerts, hefur það
verið mér til mikillar ánægju. Á
þessum árum var Ellert skip-
stjóri á kt. Björgvin, sem hann
hafði skipstjórn á í mörg ár.
Skip hans bar af hvað hirðu-
semi snerti, svo vel var Ellert
Schram látinn sem skipstjóri að
hann hafði sömu hásetana ár
eftir ár. Ellert var einn í hópi
þeirra samtíðarmanna sinna sem
voru á undan sinni samtíð, hann
var einn af þeim 24 skipstjórum
og stýrimönnum, sem stofnuðu
Skipstjóra- og stýrimannafélag-
ið ,,Aldan“ 1893. Voru þetta
fyrstu félagasamtök sem stofn-
uð voru af sjómönnum hér á
landi. Ellert var um tíma í
stjórn öldunnar.
Ellert hafði alla tíð mikinn á-
huga fyrir framgangi félagsins
og fylgdist vel með störfum þess.
Hann gaf fyrir nokkrum ár-
um fjárupphæð til Öldunnar.
Ber sá sjóður nafn Ellerts K.
Schram. Af þeim 24 sem stofn-
uðu Öldufélagið var Ellert sá
síðasti sem kvaddi þennan heim,
og varð þeirra elztur að árum.
Það mun hafa verið 1917 sem
Ellert hætti skipstjórn, ekki
kunni hann við að sitja auðum
höndum, heldur stofnsetti hann
seglavinnustofu á Vesturgötu 6
ásamt vini sínum og félaga
Finni Finnssyni, skipstjóra,
VÍKINGUE
104