Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1961, Page 22

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1961, Page 22
Þorskveiðar við S-Grænland Við Suður-Grænland fengu ensk og þýzk veiðiskip óvenjulega mik- inn þorskafla 1952 og 1953. Meðal dagsafli varð allt að því 483 korb. (ca. 24 tonn). Svipað jafngóður afli fékkst aftur 1957. Næstu veiði- tímabil fór aflinn hins vegar aftur minnkandi og varð svo lélegur árin 1959 og 1960, að hann stóð ekki undir kostnaði. Rannsóknir þær, sem framkvæmdar hafa verið á vegum Aldur Og- stærS fisksins í Jjorskafla þýzkra veiðiskipa við SuSur-Grænland á árunum 1952—1960. Vinstra megin sýnir samfellda línan heildaraflamagnið, en brotna Iinan aðalárganginn í heildaraflanum. Neðst er stærS fisksins í cm, og má af samanburði viS J>á línu sjá lengd fisksins í aflamagn- inu á hverju ári. En til hægri er afla- magnið og aldur fisksins í þvi. Institut fiir Seefischerei, hafa gert það mögulegt, það fylgjast nokkum veginn nákvæmlega með stigbreyt- ingum þorskveiðinnar við Suður- Grænland og jafnvel lagt grundvöll að því, að nokkurn veginn örugg- lega megi spá fyrir um aflamagnið. Þannig spáir A. Meyer fiskifræðing- ur því, að vænta megi nokkuð góðs þorskafla á veiðitímabilinu 1960— 1961. Hinn góði afli á tímabilinu 1952 —1953 og síðan á tímabilinu 1957 —1958, byggðist að verulegu leyti á sterkum árgöngum áranna 1945 og 1950. Nær helmingur alls aflans var 7 ára gamall fiskur frá hvorum þessara árganga (sjá mýnd). Síðar höfðu báðir þessir árgangar mikil áhrif fyrir veiðarnar við Austur- Grænland og ísland. Skýringin á þessu fyrirbæri virð- ist vera sú, að meginkjarni 7 ára þorsksins, sem er um það bil að verða kynþroska, hópar sig þéttar saman, og að um upphaf 8. ársins sé hann kynþroska og gjóti þá í fyrsta sinn. Suður-Grænland er einnig uppeldissvæði fyrir yngri þorsk. Aðstreymi hins kynþroska þorsks myndar þéttar torfur og sókn á dýpra vatn. Þær rannsóknir, sem fyrir liggja um þessi mál, virð- ast benda til þess, að þorskurinn, sem er að verða kynþroska, leiti til Austur-Grænlands og Islands til þess að hrygna. Þessi ályktun gæti verið rétt með tilliti til þess, að við Suður-Grænland verður helzt vart við mikið aflamagn, þegar sterkir árgangar eru um 7 ára aldur og hópar sig saman til fyrstu hrygn- ingar. En um þetta leyti er þorsk- urinn á heppilegri stærð til veiða eða um 65 til 70 cm, og einnig að haustinu og framan af vetri vel nærður og feitur. Þegar hann svo er veiddur í kalda Grænlands- straumnum og settur í 1—2 gráðu C ísstráðar lestarstíur, er hann á heppilegu geymslustigi til þess að hægt sé að landa honum í góðu ásigkomulagi. (úr afz — h. j.). VÍKINGUE 110

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.