Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1961, Qupperneq 28

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.1961, Qupperneq 28
Enginn verður óbarinn biskup! >> Eftir Franz Berliner Strandferðabáturinn skríður inn lygnan f jörðinn, hafflöturinn er eins og silfraður spegill, litrík, toppmjó fjöll, nærri ómögulegt að greina skil láðs og lagar, allt umhverfið, himinn og haf, rennur saman í ólýs- anlega tæra blámóðu. Og kyrrðin, . . . fyrir næsta nes, þá blasir við litla, grænlenzka þorpið, lognreyk- irnir liðast upp frá einstaka húsi. Uppi á múlænum ofan við þorpið gnæfa loftnetsstengurnar, þarna á ég að eyða næstu mánuðum, nýbak- aður loftskeytamaður, með annars flokks próf (80 merki á mínútu) upp á vasann. Fyrsta flokks próf, 125 merki á mínútu, var hraði, sem kennari okkar fullvissaði okkur um að aldrei væri notaður í venjulegri afgreiðslu . . . Mér varð hugsað til prófdagsins, veikt hóstakjöltur og tækið var sett í gang. Hópur af verðandi neistum*) beygðu sig yfir blaðið og kreistu blýantana sveitt- um fingrum, krystaltær morsemerk- in liðu úr heyrnartólunum inn í eyru okkar, líkt og glerperlur í holur. Engar truflanir, ekkert skrjáf og engin tónbreyting. •—• Kennararnir læddust um á tánum og gættu dyr- anna, eins og postulinn sjálfur, svo enginn kæmist inn í helgidóminn. Ef einhver ræskti sig, sendu hinir honum nístandi augnaráð og misstu af einum eða tveimur merkjum um leið ... heilög kyrrð ríkti. Eftir stutta viðdvöl í þorpinu, var haldið upp brattann. Með mér í jeppanum voru samstarfsmenn mín- ii, harðsoðnir loftskeytamenn, flest- ir í peysum, margir reykjandi pípur og sumir með alskegg. Við vorum átta neistar á vakt í einu. Stöðin var aðalþjónustustöðin fyrir veðurathugunarstöðvar Græn- lands. Hér var safnað saman upp- lýsingum og sendar um heiminn, og *) Neisti, gælunafn fyrir loftskeyta- menn, algengt í hinum enskumælandi heimi og í Skandinavíu. allt varð þetta að gerast á sama klukkutímanum, og útsendingar timana varð að passa upp á mínútu. Þetta vissi ég allt, þarna var tekið á móti á ritvélar, því kveið ég fyr- ir, það var sök sér að taka á móti morsemerkjum, þó maður þyrfti ekki að lemja þau inn á ritvélar líka. Nú vorum við komnir að stöðvar- húsinu. Það minnti mann á musteri, friðsæll staður, fjarri mannabyggð, en þegar ég opnaði dyrnar, hrökk ég öfugur til baka, hávaðinn var yfirgnæfandi, í nafni allra útvalda, ég greip um dyrastafinn. Voru þetta Ragnarök, þetta hljómaði eins og hljómkviða fordæmdra. Það vældi og tísti í hátölurum söngur í raföl- um, smellir í ritvélum, einhvers staðar úr fjarska heyrðist kall í norskum sel-skipstjóra, kall eftir kall: Áuvlsunn . . . Áuvlunn . . . Það drundi í þrem stórum viðtækj- um, stilltum á alþjóðaneyðarbylgj- ur, þeir voru skrúfaðir eins hátt upp og hægt var Einn loftskeytamannanna sat og hamraði niður fréttir á ritvél í hvert skipti, sem norski skipstjórinn gal- aði, bölvaði hann og tottaði pipuna í ákafa, en aldrei stöðvaðist ritvél- in. Inn í næsta herbergi voru þrír skeggjaðir neistar, þeir hömuðust eins og þeir ættu lífið að leysa. Þeir hömruðu á sendilyklana, lömdu á ritvélarnar og skrúfuðu ýlfrandi viðtæki, eins og óðir væru, tottandi pípur eða sígarettur. Öðru hvoru grýttu þeir heyrnartólunum á borð- ið, til að þjóta á milli herbergja og gala í hvem annan . . . Hver dj . . . timinn er kominn, hrópaði einn, og setti í gang eitthvert ferlegt appa- rat, sem gleypti pappírsræmu, sem annar hamaðist við að framleiða í einhverju járnverkfæri, sem söng og glamraði í . . . Ég óskaði þess — Svona cigið þið að stökkva! VÍKINGUR 116

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.