Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Síða 2

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Síða 2
I greinargerð segir m. a.: „Heildarsamtök sjómanna hafa gert um þetta ýmsar samþykktir og áskoranir, sem allar benda á nauðsyn þessa máls, þ. e. að koma upp athvarfi fyrir sjómenn til lestrar, skrifta og tómstundaiðju, þegar í land er komið. . . . „Síld- veiðiskipin munu nú vera um 180, en á þeim munu vera rúmlega 2000 sjómenn. Því mætti líkja núverandi ástandi í þessum mál- um við læknislausa tvö þúsund manna afskekkta byggð“ . . . Þessi mál þarfnast úrlausnar hið fyrsta, og því er tillagan flutt um þetta efni“. Það eru orð að sönnu, að bregða verður skjótt við, ef einhver lag- færing í þessum málum á að fást fyrir komandi síldarvertíð fyrir austan. 1. 2. Þá skal hér.aö lokum kvæöinu vent í kross og minnzt einu sinni enn á verndun hrygningasvæö- 3. anna. Þetta mun ávallt verða við- 4. kvæmt mál, sem varðar hagsmuni vissra verstöðva. Málin munu þó hafa skipast þannig að vorgots- 5. síldin verður tæplega veidd öllu lengur. Annaðhvort náttúran sjálf eða rányrkja undanfarinna ára ráða þar úrslitum, nema hvorttveggja sé. Hins vegar er ekki að örvænta að þorskurinn kunni ennþá að leita á fornar slóðir til hrygn- ingar. Ennþá er tími til þess að gera ráðstafanir til að takmarka á að- alstöðvum þessa athafnalífs þorsksins, grófustu rányrkjuna um viss tímabil, — og þorsk- hringnótina á skilyröislaust aö banna á því tímabili. Til fróðleiks fyrir hlutaðeig- andi ráðamenn í þessum efnum set ég hér ályktun frá 20. þingi F.F.S.I. haustið 1961. Var hún samin af nefnd skipstjórnar- manna á þinginu, sem kunnu góð skil á þessum málum. 44 Friðunarsvæði l\lo. 1. Bankahryggir 1. Útmörk — Vesturmörk. Lína dregin út frá Geirfuglaskeri réttv. 292° NV. ca. 63 fm. dýpi í norðurmörk. 2. Norðurmörk. Lína, sem hugsast dregin í miðinn Hana- hausinn við Ufsaberg að innmörkum. 3. Innmörk — A-mörk. Lína, sem hugsast dregin í miðið. Gatið í Súlnaskeri sé lokað, dýpra frá séð. 4. Suðurmörk. Lína dregin á milli Súlnaskers í Geirfugla- sker. Friðunarsvæði No. 2. Einidrangs og Þrídrangshraun. Suðurmörk. Lína, sem hugsast dregin í miðin. Nyrzti kirkjuhausinn á Elliðaey við Faxa, að út- mörkum. Útmörk. Lína, sem hugast dregin í miðið. Hryggur- inn á Suðurey laus suður undan Álsey að V esturmörkum. Vesturmörk. Lína, sem hugsast dregin í stefnu réttv. 18° NA N yfir Einidrang í innmörk. Innmörk. Lína, sem hugsast dregin í miðið: Bunki á Bjarnarey við Faxa í Austurmörk. Austurmörk. Lina, sem hugsast dregin í miðið: Súlna- sker hálft vestur undan Gelding í Suður- mörk. í báðum þessum till. er iiðeins átt við hraunin, innan þessara marka. Friðunarsvæði No. 3. Karginn, slæmt hraun NVAV frá Einidrang ca. 6 mílur, allan friðaðan. Allt Selvogsbankahraunið utan 4ra mílna land- helgismarkanna friðað. 20. þing F.F.S.Í. telur að þessi svæði séu þó aðeins brot af því, sem æskilegt væri að friða um hrygningartíma og vill benda á, að hlið- stæðar ráðstafanir þurfi að gera annarsstaðar við strendur landsins, á hrygningarsvæðum, t.d. áframhaldandi vestur og kringum land, þar sem um hrygningu gæti verið að ræða. Þingið telur í þessu sambandi nauðsynlegt að benda á, að greiða þurfi, með skipulagn- ingu veiðisvæða, úr þeirri flækju, sem mynd- ast, þar sem togveiðar, neta- og línuveiðar mætast. Samanber árekstra þá sem orðið hafa milli þessara veiðiaðferða á Solvogsbanka. Telur þingið vænlegast til árangurs um slíka skipulagningu, að leitað verði umsagnar viðkomandi aðila, sem þarna hafa hagsmuna að gæta. VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.