Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Side 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Side 6
Þeir voru víöa útgeröarstaöir þessara báta og stutt á tniöin. Mestur hluti þessa stórfiskjar fór svo aftur út úr Breiðafirðin- um og út í álinn, og norður með Vestfjörðunum, en mikið magn af þessum fiski stoppaði oft um 12—15 mílur úti af Bjargtöng- um og var þar oftast upp í sjó, stundum allt fram í ágústmánuð, því um það leyti var þá síldin að ganga hér vesturum. Nokkuð af þessum stóra fiski varð svo eftir innum allan Breiðafjörð að aflok- inni hrygningu, sumt í álnum, en einnig líka á grunnsævi, helzt á leir eða sandbotni milli grunna, og lá þar af sumarið. Stórar göngur af smærri fiski helltu sér yfir Vestfjarðagrunnið í apríl og síðar, stundum komu þær að norðan, stundum virtust þær koma hérna upp úr Víkur- álnum, en oftast komu þær að sunnan,fyrir Jökul, og voru mjög mismunandi lengi á leiðinni, til dæmis frá Jökli og vestureftir, sem hefir vafalaust ekki stafað af því, að þær vissu ekki hvert ferðinni væri heitið, heldur af því að sjávarhiti og önnur lífs- skilyrði, svo sem eins og lifandi sjór, voru misjafnlega snemma árs hér fyrir hendi á grunnslóð- inni. En sá guli virðist helzt ekki vilja hafa lægri sjávarhita í sín- um heimkynnum en 4—5 gráður, og getum við víst ekki láð honum það. Ég tel að þorskurinn sé mjög staðbundinn og átthagakær að eðlisfari, eftir að hann hefir tek- ið sér bólfestu á einhverjum stað. Ég held því fram, að það sé engin tilviljun, hvar fiskur er, og hvar er fisklaust. Það er eins með þorskinn og aðrar lifandi verur, hann lifir ekki nema þar sem hann hefir lífsskilyrði, og hann hefir sjálfsagt ekkert á móti því að lifa áfram á þeim slóðum, sem hann ólst upp, og velja sér þar lífsskilyrði, ef þau væru finnan- leg. Og ef þorskurinn hefði eitt- hvað griðland til að hrygna á, og ungviðið fengi að vaxa upp í friði, þá efast ég ekki um að fiskinum fjölgaði aftur, en erfitt gæti ver- ið að fá hann inn á firðina aftur, nema gera eitthvað fyrir þá áð- ur, því trúlega eru sumir þeirra orðnir óbyggilegir fiski. Víða hér við ströndina á grunn- sævi, eru stór svæði, sem aldrei fæst annað á en ungviði, eins til tveggja ára, ár eftir ár, áratug eftir áratug, það bendir til svo ekki vei’ður um villst, að þar eru uppeldisstöðvar, aðeins uppeldis- stöðvar fyrir yngstu aldursflokk- ana. Við höfum það í hendi okkar að verulegu leyti, hvort við vilj- um hlúa að þessum uppeldisstöðv- um, eða eyðileggja þær. í „þorskastríðinu" var það megin þungi okkar raka, að við ætluðum að friða uppeldisstöðv- amar fyrir botnvörpu, en í stað þess að friða þær eins og lofað var, hefir dragnót og botnvörp- um verið beitt á þessi svæði. Ör- lagaríkar vanefndir það. Önnur svæði eru þar sem eldri árgangar halda sig, svo til að staðaldri mestan hluta ársins, og enn önnur svæði, þar sem annað- hvort fæst fullorðinn fiskur, eða enginn fiskur. Það bendir til að þar séu ekki uppeldisstöðvar, heldur dvalarstaður fullorðins fisks. Og það sem nú er að koma í Ijós, varðandi aflaleysi togar- anna, er jú það, að enginn þorsk- ur er lengur til, til að halda sig á þessum gömlu dvalarstöðum, Þetta var útvegurinn, sem aldrei baö itm styrk, en fúnar nú víöa í naustum. Hönd eyfiingarinnar greip fyrst á þeirra mithim. 48 VlKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.