Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Síða 8
um togaraútgerð og landhelgismál
Hálfdan Henrysson.
gildi eru víðtækar undanþágur
um botnvörpuveiði innan 12
mílna fiskveiðilandhelginnar.
Niðurstöður ítarlegra fiski-
rannsókna Islendinga og annarra
þjóða hafa nýlega leitt þá alvar-
legu staðreynd í Ijós, að ekki er
unnt að gera ráð fyrir auknum
þorskafla við strendur landsins,
þar sem þorskstofninn virðist nú
fullnýttur og jafnvel meira en
það. Dánartala þorskstofnsins
hér við.land er nú að áliti fiski-
fræðinga 70%, en þeir telja, að
stofninn fari minnkandi, ef þessi
tala fer yfir 65%. Sézt því, að
ekki virðist vera um meira verð-
mæti að ræða í þessum auðlinda-
sjóði við strendur landsins.
Ef togurum yrði hleypt inn fyr-
Nú er mikið rætt um togara-
útgerð, og er þá oft komið inn á
þá braut, hvort nokkur framtíð
verði fyrir togara hér við land á
komandi árum. Ennfremur heyr-
ist oft, að hleypa ætti þeim inn í
landhelgina í von um aukinn afla
og þá um leið batnandi afkomu
togaraútgerðarinnar.
Skoðun mín á þessum málum
oooooooooooooooooo
HÖFUM VARAHLUTI OG VEITUIV/
VIÐGERÐARÞJÓNUSTU FYRIR
BRYCE
olíuverkin
AöalumboöiO
8. Stefánsson & Co. h.f.,
Grandagarður — Sfnii 15579
OOOOOOOOOOOOOOOOOO
Skólaritgerð eftir Hálfdan Henrysson
3. bekk farmanna haustið 1966.
er sú, að lítill hagnaður myndi
verða af því að hleypa togurun-
um inn fyrir landhelgislínu. Þeg-
ar um þessi mál er rætt, ber að
taka svo fjölmargt til greina, til
þess að geta myndað sér heildar-
skoðun á málinu, en það yrði allt
of löng upptalning, og mun ég
því aðallega snúa mér að veiga-
mestu rökunum, sem á móti þessu
mæla. Eg ætla að byrja á að
minnast þess, að togararnir eru
ekki lokaðir fyrir utan 12 mílna
fiskveiðilögsögu, eins og margir
virðast halda. Samkvæmt gild-
andi lögum er íslenzkum skipum
leyft að veiða með botnvörpu og
flotvörpu allt inn að 4 sjómílna
fiskveiðilandhelgi, eins og hún
var ákveðin 1952. Auk þess er
samkvæmt lögum nr. 40/ 9. júní
1960 heimiluð dragnótaveiði und-
ir vísindalegu eftirliti innan 4ra
sjómílna markanna á vissum
svæðum. Af þessu er ljóst, að í
ir, þá er um leið búið að lesa
dauðadóm yfir bátaútgerðinni, og
á hún þó við næga erfiðleika að
etja, þó að þessu yrði ekki bætt
ofan á. Hafa verður það í huga,
að meiri hluti eða jafnvel allt
magn, sem bátaflotinn hefur lagt
á land, hefur farið til frystingar,
en aðeins rúmlega þriðjungur af
afla togaranna hefur gengið til
frystihúsanna. Það hlýtur því að
gefa auga leið, að með slíkum að-
gerðum sem þessum myndum við
leggja megnið, ef ekki öll frysti-
hús okkar undir hamarinn. Vand-
ræði togaraútgerðarinnar tel ég
að séu fyrst og fremst dýrtíðinni
og verðbólgunni að kenna, en
ekki minnkandi afla. Afli togar-
anna árið 1965 varð um 75.000
tonn og óx frá árinu áður um
10.000 tonn. Úthaldsdagar togar-
anna árið 1965 voru samtals
8.822, en árið áður voru þeir
9.478. Þannig óx aflinn á hvern
50
VÍKINGUR