Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Page 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Page 11
einhverjir skipverja dirfðust að hreyfa mótmælum, voru þeir um- svifalaust drepnir og hent fyrir borð. Að slíkt ástand viðgekkst, átti áreiðanlega rætur sínar að rekja að engin lög voru til um vernd sjómanna og siglingar einkennd- ust af áhrifum sjóræningja og smyglara. En þessi áhrif urðu ríkjandi vegna hinna mörgu sjó- orrusta, sem háðar voru á stjórn- artímabili Elísabetar Englands- drottningar á 16. öld. Eftir að Kólumbus hafði fund- ið Vesturindísku eyjarnar og síð- ar Mið-Ameríku, var Spánn aðal heimsveldið. Englendingar litu öfundaraugum spönsku skipin, sem fluttu óheyrileg verðmæti heim frá hinum nýfundnu lönd- um Vesturheims. Þetta varð til þess að enska stjórnin á dögum Elísabetar hvatti raunverulega þegna sína til að gerast sjóræn- ingjar og ráðast að spönsku skip- unum. Órói ríkti þá all mikill milli Spánar og Englands. En hin vitra Elísabet vissi að England var ekki nógu sterkt til að heyja beina styrjöld við Spán. Hins vegar lá hún ekki á liði sínu að hvetja ýmsa skipaeigendur að ráðast að spönskum skipum með dýrmæta farma að vestan, ef færi gafst. Hún fór ekkert leynt með það að ensku krúnunni væri það þóknanlegt að fá einhvern á- bata af herfanginu. 0g í móti var boðinn stuðningur til að útbúa skip og leiðangra í þessum til- gangi. Á þennan hátt hugðist Elísabet að grafa undan yfirráðum Spán- verja á hafinu, jafnhliða því, sem hún bætti slæman efnahag Breta heimafyrir. Þessi aðferð virtist bera árang- ur. Og aldrei hefur veldi sjóræn- ingja verið meira en á dögum Elísabetar drottningar. Og þegar ræningjar Elísabetar voru sem ákafastir í bardaganum, fangelsaði hún Maríu Stúart, Skotadrottningu. Við þessa ráð- stöfun varð Spánarkonungur, Fillipus IV, æfur og Frakkar VÍKINGUR einnig, en báðar þessar þjóðir vildu að María Stúart yrði drottn- ing Englands. Styrjöld skall þá fyrst um sinn ekki á milli landanna. Ástandið um borð í brezku sjó- ræningjaskipunum versnaði sí- fellt. — Græðgi skipaeigendanna varð stöðugt meiri og hið svokall- aða „Bounty," sem var hlutur skipshafnar til jafns við skipseig- anda fór lönd og leið. Fleiri og fleiri skip voru útbúin sem sjó- ræningjaskip, og harðneskjan, sem ríkti á þessum skipum varð til þess að illt var að fá sjómenn til starfa á skipunum. Á tímabili var talið verra að vera sjómaður á þessum skipum heldur en að dvelja í fangelsi sem fangi. Skipaeigendur svifust einskis, og enska stjórnin sá í gegnum fingur sér við þá. — Svokallað shanghaing var eftir enskum lög- um bannað, en tók nú að blómstra. Til urðu hópar manna, svonefnd „Shanghai-gengi,“ sem höfðu það hlutverk að útvega sjóræningja- skipstjórum „mannskap" í skip- in. Fóru þessir menn inn á knæp- urnar í hafnarhverfunum, vopn- aðir bareflum, og tíndu upp ýmsa karla, sem sátu þar að drykkju, og ráku þá um borð í skipin. Ef mennirnir sýndu minnsta mót- þróa voru þeir umsvifalaust barð- ir niður og bornir um borð. Þess- ir vesalingar lærðu fljótt, að það var til einskis að óhlýðnast. Foringjar þokkaiðjuhópanna fengu ákveðna þóknun fyrir hvern mann, sem þeim tókst að koma um borð og greiddu síðan hjálparmönnum sínum einhverja aura fyrir aðstoðina. Að kæra til yfirvaldanna út af svona málum var þýðingarlaust. Slík mál voru bara látin daga uppi. Og ákafinn 58

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.