Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Blaðsíða 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Blaðsíða 15
Selskapshjal. „Þér, sem eruð sjómaður, getið sagt mér hvað ég á að gera þegar ég finn til sjóveikinnar, sem ég verð svo slæm af.“ „Þér þurfið bókstaflega ekkert að gera, frú, það kemur allt af sjálfu sér!“ # Sigurður gamli horfði í fyrsta skipti á knattspyrnuleik. Það var vítaspyrna og sá, sem tók hana villti svo um fyrir mark- manninum, að hann henti sér í vinstra horn marksins, en knöttur- inn hafnaði hægra megin. „Ja, hann var svei mér sniðugur að forða sér,“ varð Sigurði að orði. * Óli gamli þurfti læknisvottorð vegna endurnýjunar á ökuskírteini. Læknirinn lét hann rétta fram báð- ar hendur og tók eftir að hann skalf mikið á höndum. „Drekkið þér mikið?“ spurði læknirinn. „Ónei,“ svaraði Óli. „Ég helli mestöilu niður!“ Hann var þyrstur! Leiðsögumaðurinn: „Hér var það, sem Jesús mettaði fimm þúsund manns.“ „Getið þér ekki vísað mér á stað- inn þar sem Davíð keypti ölið ?“ VÍKINGUR Á straustofunni. „Því miður, frú mín góð, skyrtur manns yðar eru ekki tilbúnar enn- þá.“ „Það var nú verra. Hann verður alveg óður þegar hann heyrir það.“ „O, það verður varla svo hættu- legt, — hann notar aðeins flippa- stærð nr. 36!“ * ■■■■■■■■■■■■■HanaMHHMH FRI vaktin ■■■■■■■■■■■■■»■■■■■■■■□■ Það var á fyrstu árum reiðhjóls- ins að gömul kona stóð sem ákær- andi í réttinum: „Ég sá hann stefna á mig og ég stökk til hægri og hann beygði til vinstri, svo stökk ég til vinstri og hann beygði til hægri. Svo hrópaði hann: „Stattu kyrr, kerling, — og svo hjólaði hann beint á mig!“ * Lögreglumaður í Monakko, sá hefur tveggja hœða vit. * Strákapör og ungdómsár líða svo fljótt, að áður en varir minnumst við þess tímabils með angurværu brosi og eftirsjá. fAfKVtKiOH Er eilthvað gott í íslenzka sjánvarpinu? 57

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.