Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Side 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Side 18
UllllillX IN KEÐJA RSTERKARI N VEIKASTI LEKKURINN TRYGGING ER NAUÐSYN ALMENNAR TRYGGINGARf PÓSTHÚSSTRÆTI 9 SÍMI 17700 Paal (jallicci jf nátíyi tiii cfaaiann Framhaldssaga G. Jensson þýddi Kona, sem sat nálæg't byrjaði að hlæja. Hiram leit ávítandi á hana og konan hrópaði upp: „Sjá vesa- linginn" og hélt áfram að hlæja. Hiram flutti sig til, svo að hann gæti gefið henni nánar gætur og horfði á hana með sínum rauna- mædda svip. Þá veinaði hún af hlátri og það verkaði smitandi á þann sem næstur sat. Hiram var til að byrja með dálítið móðgaður yfir þessari kátínu. En þá mundi hann allt í einu eftir farðanum, sem stúlkan hafði smurt á hann með æfðum fingrum í búnings- herberginu á meðan hann hafði, á þessari hræðilegu og alltof stuttu stund sagt henni frá því, sem fyrir hann hafði borið. Og hún faldi hann með því að breyta honum í sirkustrúð. Nú varð hann allur annar mað- ur. Hann tók til að prófa sig á- fram með hláturmildu konuna, sem var feit og móðurleg, og með kafloðinn fæðingarblett á annarri kinninni. Hann starði stöðugt á hana og hún engdist um af hlátri. Þetta var smitandi, og einn af öðrum byrjuðu menn að hlæja, þangað til allt svæðið, þar sem hún sat tók þátt í gamninu. Hir- am sneri nú athyglinni að fal- legri, ungri stúlku í þriðju röð, og hún fékk um leið hláturs- krampa. Þá sneri hann sér að hinni konunni og dæsti, til að gefa í skyn, að hún væri nú gleymd, en þá hló hún hærra en nokkru sinni fyrr. Áhorfendur skildu nú hugsunina í þessu og tóku að hrópa: „Grognolle, gættu að þér Grognolle, mundu eftir fyrstu ástinni. Hún er eina konan fyrir þig.“ Hiram reyndi nú eitthvað nýtt. Hann lét sem skyndilega væri komin rigning og hann mætti til með að spenna upp skemmdu regnhlífina sína, regnhlífina, sem hann hafði slegizt með í London, og Lisette hafði á síðasta augna- bliki í búningsherberginu, rifið í tætlur, til þess að sjá honum fyr- ir tilhlýðilegu verkfæri, sem hæfði gerfinu. En Hiram vissi lít- ið um látbragðsleik, þó að hann væri furðulega fljótur að læra. Hann vissi þó, að nú varð hann að trúa því af öllum sínum lífs- og sálarkröftum, að það væri komin rigning, og hann yrði, hvað sem það kostaði, að spenna upp regnhlífina, svo að hún gæti skýlt honum. Hann vann að þessu hægt og af mikilli þolinmæði, með djúpri sorg og vonleysislegu augnaráði athugaði hann hvern óbrotinn tein og rifna tætlu. — Hann stækkaði rifurnar og jók skemmdirnar, þar til hann að lokum hóf sámvafða flækju af teinum og tætlum yfir höfuð sér. Og launin létu ekki á sér standa. Hver hláturbylgjan af annarri gekk yfir, og húsið skalf og nötr- aði, svo að feiti faðir Antoine, með yfirskeggið, kom hlaupandi út úr skrifstofu sinni, til að gá hvað væri á seyði. Það var tvennt, sem hann rak augun í og vakti undrun hans. Annað var það, að lögregluþjónar voru að henda út nokkrum mönnum, sem bersýni- lega höfðu ruðzt inn án þess að borga, og höfðu brotizt inn í bún- ingsherbergin. Hitt var nýr trúð- ur, sem hann hafði aldrei séð áð- ur, og varð þess nú valdur, að gamla sirkushúsið skalf af fagn- aðarlátum, svo að hann hafði VlKINGUR 60

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.