Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Síða 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Síða 20
hafði veitt þeim hæli. Áætlunin var þaulhugsuð: Það átti að koma af stað óeirðum í Ukrainu til þess að Þýzkaland gæti krækt sér í vænan hluta af þessu vel birga kornbúri. — Skráin yfir þá, sem átti að myrða var til staðar. Á henni voru, auk Mikoffs, sem þegar hafði verið drepinn, nöfn sovézkra stjórnarerindreka, löghlýðinna hvítrússa og jafnvel franskra embættismanna. Starfs- menn við þýzka sendiráðið, sem flæktir voru í málið, voru nafn- greindir. Einnig var birt nafn sjálfs útsendarans — Surjureffs. — Þegar Lisette hafði þýtt hin- ar stóru fyrirsagnir og nákvæmu greinar í frönsku dagblöðunum, fór Hiram að renna í grun, að hann hefði fyrir löngu síðan kálað þessum Surjureff á hótel- herbergi sínu. Málið olli því, að París og hálf Evrópa var sem á glóðum. Og það varð Hiram til óskiptrar á- nægju, að Beauheld aðalritstjóri hafði tekið tillit til óskar hans um, að vera ekki nefndur í sam- bandi við málið. Uppljóstrunin hvatti frönsku ríkis- og leynilögregluna til æðis- genginna eftirgrennslana. Áður en hægt væri að fá fulla yfirsýn yfir ástandið, vantaði einn hlekk í keðjuna: Vinovarieff hershöfð- ingja, sjálfan höfuðpaur samsær- isins. Og Hiram var það nú Ijóst, að það skipti hann miklu máli, að hershöfðingin fyndist, því hann myndi geta borið kennsl á Surjur- eff, sem hafði verið sendur til höfuðs Hiram Holliday. Hiram var nú aftur orðinn að tveimur mönnum — hr. Holliday á daginn og Grognolle á kvöldin. Lisette skildi þetta. En væru nú hinir friðsælu dagar þeirra liðn- ir? Á henni varð ekkert séð. Hún var frönsk, og þar að auki sirkus- stúlka, sem átti dugnað og sjálfs- afneitun að erfðum gegnum marg- ar kynslóðir. Leitin að Hiram Holliday hófst á ný. Franskt dagblað kom fram með þá spurningu, hvort eitthvað samband væri milli hvarfs Ameríkanans, samsærisins og hins ennþá óþekkta Rússa, sem fundist hafði í hótelherberginu, auk hinnar furðulegu frásögu ákveðins skjalaþýðanda. Hiram hélt sig innan dyra á daginn. Á kvöldin fór hann, vel dulbúinn, með Lisette sér við hlið, í leigubíl til sirkussins og þar var hann öruggur sem Grognolle, trúðurinn, sem aldrei sagði orð, en gat samt fengið fólk til að tárast af hlátri. En var hann óhultur? Laugardagskvöld nokkurt gerði lögreglan skyndilega innrás í Antoine-sirkusinn. Staðurinn var yfirfullur af fólki. Það sat í göngum og stig- um og stóð í þéttum röðum með- fram öllum veggjum. 1 miðjum klíðum, þegar Coco, páfagaukur- inn talandi, var að skemmta, kom faðir Antoine, náfölur og sveitt- ur, þjótandi inn í búningsher- bergið, þar sem Hiram og Lis- ette höfðu nýlokið við að búa sig. „Börnin mín.. . börnin mín.. . Þeir eru hérna .... æðandi um allt .. . lögreglan er hérna; þeir eru um allt! Allir skemmtikraft- arnir mínir eiga að koma í eina röð, og sína persónuskilríki. Þeir heimta að fá að sjá alla saman .. . hvern og einn einasta.. . “ Hann greip andann á lofti og leit síðan á þau með slægðarsvip. Hann minntist þess allt í einu, að Grog- nolle hafði byrjað starf sitt und- ir nokkuð sérstæðum kringum- stæðum. „Kæru börnin mín,“ sagði hann, „er það ekki eitthvað, sem þið vilduð heldur trúa föður Antoine fyrir á meðan tími er til?“ Hiram varð illt. Af allri frönskunni hafði hann aðeins skilið eitt orð: Lögregla. En á meðan faðir Antoine var ennþá inni, gat Lisette ekki þýtt hitt fyrir hann. Einhver stakk höfð- inu inn í dyragættina og hrópaði: „Komið strax! Strax! Reynið að hafa hraðann á!“ Þau gengu út úr búningsher- berginu og niður á barinn, þar sem allir skemmtikraftarnirstóðu í einni röð, nema maðurinn með páfagaukinn, sem hægt var að yfirheyra seinna. Hiram og Lis- ette fóru sér að engu óðslega, en stilltu sér aftast í röðina við hlið Kósakkanna. Hiram stóð við hlið risans með alskeggið, en Lisette stóð honum til hægri handar og aftast í röðinni. Hún gat nú sagt honum, án þess að nokkur heyrði til, að lögreglan væri þarna á ferðinni og menn frá leyniþjón- ustunni myndu yfirheyra þau, að engrar undankomu væri auðið, og nú væri öllu lokið. Allt moraði í lögregluþjónum. Frá sviðinu glumdi við rödd páfa- gauksins, þar sem hann söng tví- söng með húsbónda sínum. Tveir borgaralega klæddir menn gengu hægt meðfram röð listamannanna og námu staðai' fyrir framan hvern og einn, og rannsökuðu hann. Foringi þeirra var lágvax- inn maður með gullspangargler- augu, en bak við þau leyndust skörp og kvik augu. Hiram Holliday fannst sem tíminn stæði kyrr og hann gat ekkert hugsað. Þeir höfðu, á einn eða annan hátt, komið upp um hann; einhver hafði ljóstrað ein- hverju upp. — Eftir smástund myndu þeir leggja hendurnar á axlir honum....enginn myndi trúa hinni furðulegu sögu hans, þrátt fyrir að hún væri dagsönn. Hann fann hvernig svitinn spratt fram undan þykkum farðanum. Nú voru mennirnir hálfnaðirmeð röðina og nálguðust hægt og hægt. Þeir gengu framhjá Kó- sökkunuip einum og einum og brátt myndu þeir koma að hon- um. Lisette gat ekki lengur haft stjórn á sér. Hálfkjökrandi kast- aði hún sér um hálsinn á honum og hrópaði: „Nei! Nei! Elsku Hiram minn -— þeir mega ekki taka þig; ég leyfi það ekki.... Ó, Hiram minn, Hiram. . . . !“ En þótt undarlegt megi virð- ast var ekki að sjá, að mennirnir þrír gæfu þessu neinn gaum. Þeir höfðu nú numið staðar fyrir framan stóra Kósakkann, sem ekki reið eins og hinir sex, held- ur þeytti svipuna með háum smellum, og lágvaxni maðurinn VlKINGUR 62

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.