Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1967, Qupperneq 22
Böðvar Steinþórsson, bryti:
Nokkur orð í fullri vinsemd
1 fréttum útvarps og blaða
frá 73. aðalfundi Skipstjóra- og
stýrimannafélagsins Öldunnar, er
haldinn var 3. febr. s.l. er þess
getið að fundurinn „hafi sam-
þyJckt að skora á stjóm FFSÍ að
vinna að því, að endurkosið verði
í byggingarnefnd Sjómannaskól-
ans, fyrir þá er fallið hafa frá í
nefndinni, svo að hún geti orðið
starfhæf, þar sem telja má, að
starfi nefndarinnar sé ekki lokið,
með ófullgert skólahús og ófrá-
gengna skólalóð.“
Þar sem þetta mál var talsvert
rætt á síðasta þingi FFSÍ, og það
hefur nokkuð komið á dagsskrá
á stjórnarfundum FFSI, tel ég
rétt að ræða nokkuð þá skoðun,
er ég hef á þessu máli. En skoðun
mín hefur berlega komið fram á
síðasta Farmanna- ogfiskimanna-
sambandsþingi, og einnig innan
stjórnar sambandsins. En eftir
birtingu þessarar ályktunar Öld-
unnar, verður að telja rétt, að
mín skoðun komi einnig fram
opinberlega, svo menn geti áttað
sig á þeim sjónarmiðum, er uppi
eru, varðandi framanritað mál.
Ég vil í upphafi taka fram, að
liðinn er aldarfjórðungur eða
meir, síðan byggingarnefndin var
skipuð. Af þeirri ástæðu einni tel
ég rétt að endurskipuleggja starf
hennar. Þá bætist við að nefndin
hefur ekki komið saman til fund-
ar um langt árabil, svo vitað sé,
og margir nefndarmenn eru látn-
ir, án þess að verið hafi skipað
í þau skörð, er þannig mynduð-
ust. Vegna þessa álít ég rétt að
fella niður störf byggingarnefnd-
arinnar, og fela þau hússtjórn
byggingarinnar, er skipuð yrði,
og ætti þessi hússtjórn að hafa á
hendi yfirstjóm byggingarinnar
fyrir hönd ráðuneytisins.
Þessi sama hússtjórn ætti, í
samráði við ráðuneytið, og þá
64
skóla, sem í byggingunni eru til
húsa, að sjá um öll óleyst mál
varðandi bygginguna sjálfa, svo
og lóðina. Að ætla að láta þetta
lengur vera í höndum manna, er
skipaðir voru fyrir rúmum aldar-
fjórðungi, ásamt viðbót skipaðri
nú, tel ég vera fjarstæðu. Algjör
nýskipan mála á hér að koma til.
Þegar byggingarnefndin var skip-
uð, voru skipaðir í hana fulltrúar
frá útvegsmönnum, frá FFSÍ, á-
samt fulltrúum nokkurra stétta-
félaga sjómanna, auk skólastjóra
Stýrimannaskólans og skólastj.
Vélskólans. Ekki er hafður í
byggingarnefndinni fulltrúi til-
heyrandi fyrirhuguðum Mat-
sveina- og veitingaþjónaskóla.—
Má það furðulegt teljast, því
ljóst virðist að strax í upphafi
hafi verið ákveðið, að slíkur skóli
skyldi starfa innan veggja þess-
arar byggingar. En að slíkan
fulltrúa skuli hafa vantað, tel ég
hafa orðið undirstöðu talsverðs
óþarfa misskilnings varðandi
Matsveina- og veitingaþjónaskól-
ann.
Aðalmisskilningur þar um er,
hvað hugsað var um þegar bygg-
ing húsnæðis fyrir Matsveina- og
veitingaþjónaskólann var fyrir-
huguð. Átti þar að vera iðn-
fræðsluskóli að einhverju leyti
fyrir matreiðslu- og framleiðslu-
menn, eða skóli fyrir matsveina
á fiskiskipum og flutningaskip-
um, eða eitthvað þar á milli, þar
ofar eða þar neðar, eða eitthvað?
Sumir telja, að það hefði átt að
reka í sambandi við skólann mötu-
neyti fyrir nemendur hinna ýmsu
skóla innan Sjómannaskólans.
(Eg vil taka fram, að þegar ég
hér á eftir tala um Sjómanna-
skólann, á ég við bygginguna og
sameiginlegar þarfir allra skóla
innan hennar).
Ég efa ekki nú, að það mun
hafa verið hugmynd byggingar-
nefndarinnar, að í Matsveina- og
veitingaþjónaskólanum yrði rek-
ið mötuneyti fyrir nemendur Sjó-
mannaskólans, og sú hugmynd
hafi verið ofarlega hjá nefndinni,
þegar húsakynni voru til umræðu
og útdeiling milli hinna ýmsu
skóla, og þegar ákvörðun var tek-
in um hvaða húspláss hver fyrir
sig fengi. Og að borðsalur á 1.
hæð, út frá eldhúsi, væri fyrir-
hugaður Sjómannaskólanemum,
en þessum sal var ráðstafað í
þarfir Matsveina- og veitinga-
þjónaskólans á annan hátt.
Ég leyfi mér að lýsa yfir furðu
minni á, hvernig byggingarnefnd
leyfði sér að sniðganga okkur í
Matsveina- og veitingaþjónafé-
lagi Islands á þeim tíma, þegar
við, fullir áhuga, reyndum eftir
öllum hugsanlegum leiðum að
kynna okkur þetta mál innan
byggingarinnar.
Og þrátt fyrir að blöð og út-
varp fóru að birta frá okkur á-
lyktanir um þetta efni, og allar
Rœtt um að breyta yfirstjórn
Sjómannaskólabyggingarinnar
og starfrœkslu mötuneytis þar.
VlKINGUR